Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 30

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 30
138 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN breiðum á vatninu. Fann ég mikið af honum á grynnslum og i þornuðum ijarnarstæð- um. Hvarvetna á þessum slóðum vaxa nykrur í vötnum og tjörnum. Algengastar eru þráðnykra og grasnykra. Hjá Hóli, Gagnstöð og Heyskálum er smánykra (Potamogí ton pusillus) i þéttum breiðum og blóm og aldin algeng. Blöðrunykra (P. natans f. pio- lixus) er algeng á þessu svæði. Vex hún víða þétt og þekur yfirborð vatnsins með blöð- um sínum. Fjallnykru (P. alpinus) fann ég á tveinr stöðunr, í Eiðavatni og í tjörn hjá Bóndastöðum. Hjartanykra (P. perfoliatus) er mikil í Eiðavatni og í tjörnum hjá Bóndastöðunr og hjá Hrollaugsstöðum. Langnykra (P. praelongus) finnst í nokkrum djúpunr tjörnum hjá Bóndastöðum (Torftjörn) og hjá Hrollaugsstöðum. Knjáliðagras (Alopecurus geniculatus) vex í kringum bæinn á Bóndastöðum, en verður ekki vart í túninu, þegar lengra kemur frá bænum. Lotsveifgras (Poa laxa flexuosa) er í lausaskriðum vestan í Sönghofsfjalli og líka uppi á því (431 nr) á smá- grýttum melum. Allmikið. Vatnsnœli (Scirpus acicularis) er víða. Mest er það í kringum Eiðavatn og í því, með fram löndunum. Þar eru stórar spildur meðfram vatninu algrónar vatnsnæli, bæði aðaltegundinni og tilbrigðinu f. submersa. Líka er mikið vatnsnæli við tjarnir hjá Hóh og Gagnstöð og á leirunum við Selfljót hjá Unaósi. Móastör (Carex rupcstris) má lieita algeng, og víða er mikið af henni. ígulstör (C. echinata) er nokkuð sjaldgæf. Fundin á fjórum stöðum: Sandbrekku, Bóndastöðum, Hrollaugsstöðum og Unaósi. Heigulstör (C. glareosa) á nokkrum stöðum við Selfljót, frá brúnni lijá Unaósi og norðureftir. Dvergstör (C. glacialis). Fann mjög lítið af henni, aðeins á tveim stöðum: Tókastöðum og Sandbrekku. Örfá eintök á hvorum stað. Fölvastör (C. livida). Þessa starartegund fann ég fyrst hinn 26. ágúst 1937 hjá Geitafelli í Reykjahverfi N. Mjög fá eintök á litlum bletti. Næst fann ég hana hinn 26. ágúst 1941 í Höfðahverfi N. Þar óx hún mjög strjált á allstóru svæði — frá Lómatjörn og norður hjá Grýtubakka. Eftir eintökum þaðan var hún tekin með í III. útgáfu af Flóru íslands. En sumir grasafræðingar efuð- ust um, að það væri rétt nafngreining, heldur væri þetta belgjastör (C. panicea). í sum- ar fann ég svo mikið af þessari tegund, að ekki verður lengur efazt um, að það sé Carex livida, sem um er að ræða. Hún er töluvert mikið útbreidd frá Ormsstöðum í Eiða- þinghá að Hrollaugsstöðum í Útmannasveit og vex nokkuð þétt á sumum stöðum, t. d. í Bóndastaðablá í kringum Torftjörn. Þar var hún svo þétt, að mér virtist hún vera þriðji hluti af gróðrinum. Hvar sem ég hef fundið fölvastör, hefur jarðvegsástandið verið hið sama: lárétt mýri, svo blaut að næstum vatnar yfir jarðveginn. Gullstör (C. serotina). Fundin á einum stað hjá Sandbrekku, þar sem heita Lyngásar, austan Bjarg- landsár. Flœðaslör (C. subspathacea). Á nokkrum stöðum við Selfljót norður undir sjó. Hvítstör (C. bicolor). Við Bjarglandsá hjá Sandbrekku. Dökkasef (Juncus castaneus). Mjög lítið. Á einum. stað hjá Tókastöðum. Hnúðasef Q. bulbosus). Víða mjög mikið, einkum hjá Sandbrekku, í kílum og síkjum þar í eng- inum. Á Bóndastöðum, Gagnstöð og Heyskálum vex það mikið. Trjónubrúsi (Sparganium angustifolium) er algengur í pollum og tjörnum, og er víða mikið af honum. Mógrafabrúsa (S. hyperboreum) sá ég á nokkrum stöðum, en óvíðar og minna en undanfarandi tegund. Af brönugrösum eru barnarót, friggjargras og hjónagras algeng. Brönugras (Orchis maculata) fann ég á tveim stöðum: Gilsárteig og Sandbrekku. Tviblöðku (Listera cor- data) fann ég á nokkrum stöðum hjá Unaósi, í Ósfjöllum, og krœklurót (Corallorhiza trifida) á Sandbrekku og Gilsárteig.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.