Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 11
HVERFjALL
121
sem eru þar mörg innan um móbergið, hafi sigið niður í þykkfljót-
andi leðju. Ranann suður úr innri keilunni í Hverfjalli telur
Trausti vera verk jökla, en keiluna sjálfa vera annaðhvort myndaða
úr malarruðningi í sambandi við bráðnun íssins, eða e. t. v. standa
í sambandi við veik lokaumbrot í gígkverkinni. Trausti ræðir einnig
í grein sinni líkingu Jrá, sem sé með Hverfjalli og hringfjöllum
tunglsins og telur, að sú tegund kraftlítilla eldgosa, sem myndað
hafi Hverfjall, sé einmitt sú, sem helzt rnætti búast við á tunglinu.
Eigin athuganir ó Hverfjalli
Ég vík þá að eigin athugunum á Hverfjalli. Fyrstu kynni mín af
því fjalli voru þau, að ég gekk á það að kvöldlagi í fimmtabekkjar-
ferð vorið 1931, og var það til að njóta útsýnis yfir Mývatnssveit
fremur en til athugunar á fjallinu. Aftur gekk ég á fjallið í fimmta-
bekkjarferð vorið 1948. Ég veitti því þá eftirtekt, að í grjótruðn-
ingnum, sem þekur fjallið, er nokkuð af dílóttu hraungrýti, og sé ég
í dagbók minni, að ég hef talið Jretta benda til, að fjallið væri yngra
en eitthvað af dílalnaununum á Mývatnssvæðinu. Síðustu fjögur
sumurin hef ég unnið nokkuð að jarðfræðirannsóknum á Mývatns-
svæðinu og stuðzt {xí mjög við öskulög við aðgreiningu hinna ýmsu
hrauna. Fyrstu sumurin fann ég þó ekkert öskulag á Mývatnssvæð-
inu, sem mér fannst nógu Jrykkt eða gróft til að geta örugglega verið
úr Hverfjalli. Hins vegar hefur mér alltaf Jrótt mjög ósennilegt, að
ísaldarjökull hafi getað gengið yfir Hverfjall, án þess að aflaga það
meira en raun ber vitni. Ég hallaðist því helzt að þeirri niðurstöðu,
að fjallið væri myndað alveg í ísaldarlokin, áður en jarðvegsmyndun
hefði byrjað á Jressum slóðum. Að fjallið væri sprengigígur varð mér
þegar ljóst sumarið 1949, er ég gekk á fjallið ásarnt Pálma Hannes-
syni og athugaði innri gerð Jress nokkru nánar. Ég bætti síðan um
þessar athuganir næstu sumurin og mun nú leitast við að gera grein
fyrir athugunum mínum.
Skal fyrst vikið nokkuð að lögun og stærð fjallsins.
Eins og af meðfylgjandi myndum má sjá, er Hverfjall nær hring-
laga, en hringurinn þó aðeins sveigður inn frá SSV, en úr SSA vegg
gígsins hefur skriða hlaupið niður og gígurinn því víkkað dálítið í
þá átt. Lengsta þvermál hans, frá SSA til NNV er um 1040 m, stytzta
þvermál, þvert á jrá stefnu, er 1000 m, en meðaljivermál um 1015 m.
Hæstur er SSV barmur gígsins, 452 m y. s., NNA barmurinn er 438
m, en lægstur er NV barmurinn, um 390 m. Þar eð sléttlendið vest-