Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 17

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 17
HVERFJALL 127 TAFLA I Table I I II SiO, 49.76 49.30 TiO, 1.55 1.10 alo3 14.71 14.98 Fe203 2.16 0.90 FeO 12.10 9.27 MnO 0.22 0.19 MgO 6.43 6.96 CaO 11.03 12.63 Na,() 1.92 2.15 KoO 0.34 0.91 )“2o.. 0.10 0.28 HoO+ 0.26 0.79 H2o : 0.04 0.00 100.62 99.46 I. Vikurmoli úr innri keilu Hverfjalls. II. Laxárhraunið yngra í Laxárgljúfri. I: Pumice from the inner cone of Hvcrfjall. Analyst. Jóhann Jakobsson. II: Younger Laxárhraun at Laxárgljúfur. Analyst. Svavar Hermannsson. þess öll merki að vera myndað við sprengigos, þar sem gosefnið hef- ur að iangmestu leyti (yfir 90%) verið magma, sem hefur tætzt sund- ur í vikur, en saman við þetta gosefni hefur blandazt grjót úr þeim föstu jarðiögum, sem sundrazt hafa við gosið. Líklegast hafa spreng- ingarnar byrjað á fremur litlu dýpi, og í ofanáliggjandi lögum liefur verið lítið sem ekkert af móbergi, en aðallega hraunlög, eldri og yngri, flest að líkindum frá jökultímanum, lík og sjá má í skorning- um í Laxárdal sunnantil t. d. í Hólkotsgili, en eitt hraunlag a. m. k. frá því eftir jökultímann. Það hraun hefur runnið úr gígaröð vestán í hlíðinni suður af Beinahrygg, og gengur inn undir norðurhluta Hverfjalls. Hugsanlegt er og, að eitthvað hraun úr gígaröðum suð- austur af Hverfjalli liggi inn undir fjallið. Eftir að hafa athugað túfflögin í gígveggnum, gróf ég í innri keil- una og hrygginn suður af henni. Þegar á 20—30 sm dýpi kemur þar niður á vúlkanskt túff, sem líkist mjög túffinu í gígveggjunum, en vikurinn í því virðist yfirleitt heldur grófari og meira ber á vikur- kenndum hraunklessum. Vikur úr keilunni hefur verið efnagreind- ur af Jóhanni Jakobssyni á Atvinnudeild Háskólans, og er efnasam- setning lians sýnd í meðfylgjandi töflu. Til samanburðar er sýnd efnasamsetning Laxárhraunsins yngra, sem runnið hefur úr Lúd- entsborgum og Þrengslaborgum. Sem sjá má, er efnasamsetningin næsta lík, kísilmagn næstum nákvæmlega hið sama, en nokkur mun-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.