Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 9
ÚR SÖGU HELLISKVlSLAR
3
inu. Ég skoðaði þenna jökul sumarið 1931 þ en veit ekki til, að neinn
hafi komið að honum fyrr né síðar. Nú virðist mér tilsýndar, að lítið
sé eftir af honum og varla annað en hreyfingarlaus fönn.
Snemma í júlí 1931 voru Rauðfossakvísl og Helliskvisl neðan við
mynni hennar mjög gruggugar af jökulgormi, og kunnugustu menn
hafa sagt mér, þ. á m. Guðmundur heitinn Árnason í Múla, að þessar
ár hafi jafnan í þeirra minnum verið með jökullit, a. m. k. á sumrin,
fram yfir 1930 og hafi jafnvel einnig verið jökullitur á Helliskvísl
fyrir ofan ármótin. Þorvaldur Thoroddsen gisti við Landmannahelli
27.-—28. júlí 1889, og farast honum svo orð um Helliskvísl2: „Jökul-
litur er dálítill á Helliskvísl og sumstaðar í henni sandbleyta, því
töluvert af vatninu í henni kemur undan jökulfönnum i Mógilshöfð-
um.“ Sumarið 1931 kannaði og mældi Pálmi Hannesson Torfajökul
og nágrenni hans. Á ágætu korti, sem Pálmi birti síðan af þessu
svæði (mælikv. 1:100 000)3, er sýndur einn smájökull í Stórhöfða.
Nú er þar enginn jökull, enda enginn sýndur á korti Landmælinga-
stofunnar dönsku, sem gert var eftir ljósmyndum, teknum úr lofti
1937 og ’38. Miklu stórkostlegri rýrnun jökla á þessum slóðum kem-
ur þó fram, ef þessi nýjustu kort eru borin saman við Uppdrátt Is-
lands eftir mælingum Björns Gunnlaugssonar, útg. 1849. Á því korti
er Torfajökull sýndur margfalt stærri en hann er nú og látinn ná
allt vestur að Rauðfossafjöllum. Ekki mun það nú alls kostar rétt, að
samfelldur jökull hafi hulið allt þetta svæði á 19. öld, en eflaust hef-
ur verið miklu snjóugra þar fyrir aldamótin og margir smájöklar
rýmað eða horfið síðan. Málvenja Landmanna og fleiri nærsveita-
manna bendir og til hins sama. Þeir kalla miklu stærra svæði en nú
er hulið jökli einu nafni „Torfajökul“, segja t. d.: „Reykjadalir (Hrafn-
tinnuhraun eða Jökulgil) í Torfajökli".
Við rýrnun jöklanna hefur Helliskvísl breytzt úr jökulá í berg-
vatnsá, og má telja, að sú breyting væri um garð gengin 1940. Ég
sá Helliskvísl fyrsta sinni nokkurn veginn tæra í ágúst 1936. Enn
fær hún þó jökullit í vatnavöxtum, en það grugg mun aðeins stafa
af því, að þá skolast fram gamall jökulleir úr farveginum.
Rétt ofan við mynni Rauðfossakvíslar kemst Helliskvísl fyrsta sinni
á grjótbotn og verður úr því víða straumhörð. Lygnan mikla þar
fyrir ofan er bersýnilega svo til orðin, að hraun, upp komin í undir-
1) Hekla. Árbók Ferðafélags Islands 1945.
2) FerS til VeiSivatna sumaríS 1889. Andvari, 16. ár.
3) Árbók Ferðafélags Islands 1933.