Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 70

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 70
62 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN að prenta hann. Þá var það Hólaprent, sem kom til bjargar. Nú er öldin önnur. Prentsmiðjur sækjast nú eftir prentun rita, sem þær for- smáðu áður, og undirbjóða hver aðra bak við tjöldin. Hefur þetta með fleiru orðið til þess, að Náttúrufræðingurinn var fluttur úr Hóla- prenti. En ekki skal því gleymt, sem sú prentsmiðja hefur gert fyrir tímaritið. * Stjórn Náttúrufræðifélagsins hefur nú samþykkt, að ritlaun fyrir greinar í Náttúrufræðinginn skuli hækkuð úr 20 kr. upp í 25 kr. á blaðsíðu, þ. e. úr 320 kr. í 400 kr. fyrir örkina. Jafnframt var ákveð- ið, að framvegis yrðu engin sérprent gerð af greinum í timaritinu, nema höfundar æsktu þess, og yrði það þá á kostnað þeirra sjálfra. Bið ég því þá, sem sérprenta óska, að tilkynna mér það um leið og þeir senda greinar sínar, og tilkynna jafnframt eintakatölu sér- prentanna. # 1 þessu hefti Náttúrufræðingsins birtist þriggja óra skýrsla um fuglamerkingar þær, er framkvæmdar eru á vegum Náttúrugripa- safnsins og skýrsla um endurheimtur merktra fugla. Fuglamerkingar safnsins eru í beinu áframhaldi þeirra, er áður voru framkvæmdar á vegum Náttúrufræðifélagsins, og voru skýrslur um þær birtar i félagsskýrslunum eða sem fylgirit með þeim. Þótti því rétt að birta nú skýrslu um merkingamar í tímariti félagsins, en mér þætti vænt um að fá að heyra álit lesenda á því, hvort þeir vilja slíkar skýrslur í ritið framvegis eða ekki. Skýrslumar eru nú birtar i formi, sem samþykkt hefur verið á alþjóðaþingi fuglafræðinga, og verður því formi haldið framvegis, hvort sem skýrslurnar verða birtar í Nátt- úrufræðingnum eða ekki. * Það er nú mjög í móð í voru landi að sækja alls konar alþjóðamót og taka þátt í hvers kyns alþjóðasamstarfi. Það gegnir því nokkurri furðu, að við skulum næstum einir vestrænna þjóða afneita þátttöku í Unesco, menningarsamtökum Sameinuðu þjóðanna. Hér á landi er þó þörf margháttaðra rannsókna af því tagi, sem Unesco styður, svo sem ýmissa náttúrufræðilegra rannsókna, er hafa alþjóðlegt gildi, t. d. loftslagsrannsókna, eldfjallarannsókna o. s. frv. Einnig hefur Un- esco gert mikið að því að styrkja vísindamenn til þátttöku í alþjóða- mótum, en það háir íslenzkum vísindamönnum meir en flestum starfs- bræðrum þeirra erlendum, hversu einangraðir þeir eru og hversu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.