Náttúrufræðingurinn - 1953, Qupperneq 57
GRÓÐURSKRAF
49
og víðar. Kúmen í Höskuldsstaðaselstrjágarði. Villilín í Höskulds-
staðaselshlíð. SkriSdepla og vorbruSa vaxa skammt frá Eydölum.
II. Fjöllaufasmári og flalar baldursbrár.
Óvenju mikið fannst af fjöllaufasmára í Reykjavík sumarið 1952.
Blöð smárans eru venjulega þrífingruð, eins og kunnugt er, en all-
oft finnst fjögurra laufa smári. Börn leita að honum í von um að
óskir þeirra rætist. 1 ágúst fundu börn allmikið af fimmlaufasmára
í Reykjavík, og var frá því skýrt i blöðum. Varð það til þess, að farið
var að leita að fjölblaðasmára um allan bæinn. Komu brátt fjögurra-
og fimmlaufa smárar í leitimar svo tugum eða jafnvel hundruðum
skipti; bæði hvítsmári og rauðsmái'i. Nokkrir sexlaufasmárar fund-
ust einnig og einstaka sjölaufa. Býður nokkur betur?
Alloft finnast einkennilegar baldursbrár, með flatar körfur og flata
stöngla. Hef ég t. d. oft séð þær á Háskólalóðinni í Reykjavik, og
börn fundu þær úti í örfirisey s.l. sumar. Langvöxtulegustu bald-
ursbrána af þessu tagi fann Þór Hagalín í garði sínum í Reykjavík
s.l. haust. Var baldursbráin 65 cm. á hæð og breidd stöngla 7 cm.
Körfumar voru stórar og flatar. Stundum verða sumar gi’einar sól-
berjarunna flatar. Margt er undarlegt í náttúmnnar ríki.
III. Nokkrir slæSingar.
Nokkrar tegundir hafa slæðzt úr görðum í Reykjavílc og virðast
vera að ílendast. Dagstjarna (Melandrium rubrum), kvöldstjarna
(Hesperis matronalis) og skógarkerfill (Anthriscus silvestris) vaxa
hér og hvar utan garðanna og sá sér árlega. Randagras (Phalaris
arundinacea var. picta), Ijósatvítönn (Lamium album) og regnfang
eða daggarsmali (Tanacetum vulgare) vaxa lika prýðilega utan garð-
anna og breiðast út með rótarskotum. Sandfax (Bromus inermis)
hefur vaxið á Háskólalóðinni síðan um 1940. Árlega sjást vafsúra
(Polygonum convolvulus), bókhveiti (Fagopyrum sagittatum), hélu-
njóli (Chenopodium album) og arfarnustaröur (Sinapis arvensis) og
sá sér í öllum eða allflestum ámm. Arfanœpa (Brassica campestris)
og akursjóður (Thlaspi arvense) sjást einnig árlega, en em ekki eins
algengar. Þroska stundum fræ. Af fágætum slæðingum má nefna:
Tartara-bókhveiti (Fagopyrum tataricum), íkornabygg (Hordeum ju-
batum), piparrót (Armoracia rusticana), hvítan og gulan steina-
smára (Melilotus albus og M. officinalis), naSurkoll (Echium vul-
gare) og krókamö'Öru (Galium aparine). Hafa þær allar fundizt á
4