Fréttablaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 7. júlí
2009, 188. dagur ársins.
3.19 13.32 23.44
2.23 13.17 0.08
Frekar myndi ég treysta honum Sigurjóni fyrir peningunum
mínum en þér.“ Eitthvað á þessa
leið hljómaði þýðing á frasa úr
enskri tungu í sjónvarpsþætti um
daginn. Ég skellihló yfir orðtakinu
þar sem ég taldi það vísa til þess að
einhver kynni svo illa með peninga
að fara að betra væri að afhenda
Sigurjóni Árnasyni, fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, þá til
varðveislu og ávöxtunar.
ÞÝÐINGIN þótti mér líka eitt af
kærkomnum afsprengjum banka-
hrunsins. Öllu leiðinlegra þykir
mér þegar fólk talar um að eitt-
hvað sé á „gamla genginu“ eða að
eitthvað sé „gasalega 2007“. Skyndi-
lega gat hvaða búllu eigandi hækk-
að verð svívirðilega og gerði við-
skiptavinurinn athugsemdir var
þeim samstundis mætt með svari
um að það væri nú ekki hægt að
heimta „gamla gengið“ á vörur
nú til dags. Engu máli virtist
skipta hvort varan væri ættuð úr
Flóanum eða New York, hvað þá
að verðhækkunin væri í einhverj-
um takti við raunverulega gengis-
lækkun krónunnar. Segi einhver að
hlutur sé „svolítið 2007“ fylgir svo
yfirleitt skömmustusvipur eins og
viðkomandi hafi gert eitthvað af
sér það ár.
Í FYRSTA lagi þykir mér ekkert
tiltökumál að takast á við verð-
hækkanir séu þær í takti við
gengis þróun. Bankahrunið átti þó
ekki að veita hvaða manneskju í
rekstri leyfi til að ganga á réttindi
starfsmanna sinna og snuða kúnna
sína eins og margir virðast halda. Í
öðru lagi þá segir ártalið 2007 mér
ekkert meira en árið 2006 eða 2005.
Það snerti mig ekkert að heyra að
einhver útrásarvíkinganna hefði
látið setja leðurhimnasæng í einka-
þotuna sína, fengið hægðatregðu
eftir að hafa étið súkkulaðibúðing
blandaðan gullflögum eða eitthvað
annað sem þeim gat látið sér detta í
hug, eins og að fá milljarða lán frá
bankanum sínum til að eyða pen-
ingum í.
SJÁLF keypti ég ekkert sérstakt
árið 2007 og tel því ekki að ég þurfi
að setja upp hundshaus heyri ég
minnst á tímabilið. Í raun minn-
ist ég þessa árs helst sem ársins
sem Crocks-skórnir komust í tísku.
Crocks voru afspyrnu ljótir, áber-
andi og dýrir skór sem fjöldi venju-
legs fólks lét sig hafa út í að kaupa í
nafni tískunnar og reyndi jafnvel að
telja sér trú um að þeir væri smart
og fínir. Birtingarmynd góðæris
almennings árið 2007 finnst mér
því helst felast í þessum skærlituðu,
klossuðu plastskóm. Fólk lét hafa
sig út í eitthvað sem er óumdeilan-
lega ljótt, í besta falli hlægilegt.
Crocks ganga
aftur
H E I L S U R Ú M
Lagar sig að líkamanum
Veitir fullkomna slökun
Engin hreyfing milli svefnsvæða
Hefur óviðjafnanlega þyngdardreyfingu
Kemur líkamanum í rétta stellingu til hvíldar
Þarf ekki að snúa
10 ára ábyrgð
30% AFSLÁTTUR
Á ÞRÝSTIJÖFNUNAR-
SVAMPSRÚMUM
Sængurver
(140x200 cm)og koddaver
(50x70 cm)Verð frá 5.300 kr.
Verð nú frá
3.180 kr.
ÞRÝSTIJÖFNUNAR-SVAMPSRÚM
(Queen size 153x203)
Verð frá 165.500 kr.
Verð nú frá
115.850 kr.
Mikið úrval af hágæða sængurfatnaði á ótrúlegu verði
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
40–50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SÆNGURFATNAÐI
ATH! AÐEINS ÚT ÞESSA VIKU
A
R
G
H
!
0
6
0
7
0
9
SÆNGURFÖT
Rekkjan er með stórglæsilega sængurfatadeild með miklu úrvali
af sængurfötum. Meðal annars bjóðum við sængurföt frá þýska
framleiðandanum Brennet sem hefur sérhæft sig í vönduðum
sængurverum frá árinu 1881. Brennet notar eingöngu hágæða
efni í vörur sínar, t.d. 100% Mako bómullarsatín. Brennet er einn
örfárra sængurveraframleiðanda í heiminum sem hefur leyfi til
þess að nota hitajöfnunarefnið Outlast í vörur sínar.
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil