Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 2
2 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jóns- syni fyrir að hafa staðið saman að framleiðslu fíkniefna í iðnaðar húsi í Hafnarfirði. Úr upphafs efnunum sem fundust í húsinu hefði mátt framleiða að minnsta kosti 353 kíló af amfetamíni, að því er segir í ákæru. Ákæran var birt tvímenn- ingunum á fimmtudag. Jónas Ingi og Tindur voru hand- teknir vegna málsins um miðjan október í fyrra. Á tveimur stöðum í Hafnarfirði, að Móhellu og Rauð- hellu, fundust 38 kíló af svokölluðu P-2-NP-efni, sem er upphafs- eða milliefni í amfetamínframleiðslu, og þrír og hálfur lítri af svokölluð- um P-2-P-vökva. Úr því hefði verið unnt að framleiða minnst 353 kíló af amfetamíni. Þá fannst á stöðunum tveimur búnaður fyrir milljónir til fíkni- efnaframleiðslu. Sérfræðingur um fíkniefnaverksmiðjur frá alþjóða- lögreglunni Interpol, sem kom til landsins sérstaklega vegna máls- ins, sagðist aldrei hafa séð full- komnari verksmiðju. Til marks um umfangið var að mennirnir fluttu til lands- ins rúmt tonn af íblöndunar- efnum. Til viðbótar þessu er Jónas Ingi ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni í öðru iðnaðar- húsnæðinu rúm átján kíló af kannabisefnum ætluðum til sölu, og að hafa átt tæp 700 grömm af amfetamíni í hinu húsinu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins gengst Jónas Ingi við því að eiga fíkniefnin, en neitar því hins vegar að hafa ætlað að fram- leiða fíkniefni úr upphafsefnunum sem fundust. Jónas og Tindur gætu átt von á tólf ára fangelsi fyrir brotið. stigur@frettabladid.is Hraði ekki hækkaður Vegamálastjóri hefur hafnað tillögum um að hámarkshraði á Reykjanes braut verði hækkaður úr 90 kíló metrum á klukkustund í 100 kílómetra. Hann segir ekki víst hversu mikilli þjónustu verði hægt að halda úti þar á næstunni og því sé ekki hægt að hækka hraðann. REYKJANES Hefði mátt búa til 353 kíló af amfetamíni Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jónssyni hefur verið birt ákæra fyrir amfetam- ínframleiðslu í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Jónas Ingi þrætir fyrir að hafa ætl- að að framleiða amfetamín gengst við að eiga fíkniefni sem fundust í húsnæðinu. Verð á mann í tvíbýli: 159.900kr. Sérferð 18.–25. ágúst 2009 Fararstjóri: Margrét Árnadóttir fjallaleiðsögumaður Innifalið: Flug til Friedrichshafen með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á 4* Hotel Oberstdorf með hálfu fæði, ferðir til og frá flugvelli erlendis, allar gönguferðir með fararstjórn og kynningarfundur með veitingum fyrir ferð.F í t o n / S Í A Gönguferð í þýsku Ölpunum Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 vinsamlegast sendið fyrirspurn á info@expressferdir.is ELDSVOÐI Eldur kom upp á sorp- haugum höfuðborgarsvæðisins á Álfsnesi aðfaranótt föstudags. Engan sakaði í eldinum og hvorki hús né önnur mannvirki voru í hættu. Starfsmenn Sorpu aðstoðuðu slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins við slökkvistarf í gærmorgun. Reyk lagði frá sorphaugunum í nokkurn tíma. Líklegt er talið að um sjálfsíkveikju hafi verið að ræða. Hiti undanfarið gæti hafa átt þátt í íkveikjunni. - þeb Sorphaugar í Álfsnesi: Sjálfsíkveikja á sorphaugunum ÁLFSNES Mikinn reyk lagði frá sorphaug- unum fram eftir degi í gær og höfðu margir samband við slökkviliðið vegna hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ragnar, fór hún nokkuð að grenja, skyttan? „Það hefur verið óttalega mikill grátur og grenj í kringum þetta.“ Eigendur sextán jarða í Rauðasands- hreppi eru óánægðir með grenjaskyttu sveitarfélagsins. Þeir vilja frekar aðra skyttu. Ragnar Jörundsson er bæjarstjóri Vesturbyggðar. VARNARMÁL Tveir rannsóknar kaf- bátar rússneska sjóhersins hafa haldið sig við Norður-Atlantshafs- hrygginn í sumar. Með þeim hafa verið kjarnorkuknúnir árásar- og þjónustukafbátar, að því er fram kemur á vef Varnarmálastofnunar. Þar segir að kafbátaleitar- flugvélar hafi fylgst náið með ferð- um kafbátanna og miðlað upplýs- ingum til Atlantshafsbandalagsins. Svo virðist sem kafbátarnir séu notaðir til að vinna að kortlagn- ingu og vísindarannsóknum. Kafbátarnir héldu sig nokkra tugi sjómílna austur og norðaustur af íslensku efnahagslögsögunni í lok júní og byrjun júlí. - bj Kjarnorkukafbátar við lögsögu: Rússar kanna hafsbotninn MENNING Óhætt er að segja að kreppan sé fyrirferðarmikil á Listasafninu á Akureyri um þess- ar mundir. Málverkasýning undir yfirskriftinni Kreppumálararnir verður opnuð í dag þar sem sýnd verða verk eftir Jón Engilberts, Þorvald Skúla- son og fleiri þjóðþekkta mál- ara. Um kvöld- ið munu síðan nafntogaðir skemmtikraft- ar beina spjót- um sínum að kreppunni á uppistandi í boði safnsins. „Auðvitað er mjög óvenjulegt að listasafn standi fyrir uppákomu sem þessari. En við lifum líka á óvenjulegum tímum þar sem örvænting ræður ríkjum og því er nauðsynlegt að vega upp á móti ástandinu,“ segir Bergur Ebbi Benediktsson, einn þeirra sem troða upp. - rve / sjá Inni og úti Listasafnið á Akureyri: Hlegið að kreppunni FÓLK Á litlu svæði nálægt Frankfurt í Þýskalandi getur að líta nokkuð stórt auglýsingaskilti sem auglýsir bjórtegundina Pfungstädter. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að á skiltinu má sjá þrjár kynslóðir frægra íslenska karlmanna. Lengst til vinstri er Bragi Bergþórsson, einn efnilegasti tenórsöngvari landsins, Páll Berg- þórsson, fyrrum veðurstofustjóri, er fyrir miðju og Bergþór Pálsson baritónsöngvari lengst til hægri. Bragi er sonur Bergþórs og barnabarn Páls. „Ég tók þessa mynd fyrir tveimur árum og svo hafði auglýsingastofa samband við mig og vildi kaupa myndina eftir að hún sá hana á flickr- heimasíðunni minni,“ segir Bragi Bergþórsson, tenórsöngvari og sá yngsti í karlleggnum. Segist hann ekki vilja gefa upp verðið sem hann seldi myndina á en segir þetta aðallega hafa verið í gríni gert. Þess ber að geta að Páll hélt ekki á bjórflösku við myndatökuna. Hönd hans var bætt inn á síðar. - vsp Þrjár kynslóðir prýða bjórauglýsingaskilti í Þýskalandi: Var aðallega í gríni gert JETZT PFUNGT‘S! Þrjár kynslóðir í beinan karllegg auglýsa bjór í Þýskalandi. Myndin var keypt af auglýsingastofu sem skoðaði flickr- síðu Braga. Höndunum var bætt inn af auglýsingastofunni. ALÞINGI Þingmenn ræddu kosti og galla þess að senda Evrópusam- bandinu (ESB) aðildar umsókn í allan gærdag og fram eftir kvöldi, og stóð þingfundur enn þegar Fréttablaðið fór í prentun. Uppnám varð í þinginu í gær þegar Ásmundur Einar Daða- son, þingmaður Vinstri grænna, kvartaði undan þrýstingi frá sam- flokksmönnum sínum. Ásmund- ur sagði að sér hefði verið sagt að styddi hann tillögu sjálfstæð- ismanna um tvöfalda atkvæða- greiðslu gæti komið til stjórnar- slita, og ákvað að taka ekki frekari þátt í umræðu á þinginu í gær. Þingfundur mun hefjast á ný klukkan 10.30 í dag, en ólíklegt er að atkvæði verði greidd um til- löguna fyrr en eftir helgi, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Ekki verður þingfundur á morgun. Aðildarumsókn að ESB er annað tveggja hitamála sem til stendur að klára áður en sumar- þingi lýkur. Þingið á einnig eftir að fjalla um Icesave-samningana. Ásta Ragnheiður segir ekki ljóst hvenær það mál komi úr nefnd og til umræðu í þinginu. Það verði þó vonandi í næstu viku. Á því velti hvenær sumarþingi ljúki. - bj Þingforseti reiknar með áframhaldandi umræðum um ESB-aðild næstu daga: Kvartaði undan samflokksmönnum TÓMLEGT Mikið líf var í þingsalnum við upphaf þingfundar, en heldur fækkaði í salnum þegar leið á umræðurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMKEPPNISMÁL Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest fyrri úrskurð Samkeppniseftir- litsins um að Vélar og verkfæri ehf. hefði misnotað markaðsráð- andi stöðu sína við sölu á efni til að framleiða höfuðlyklakerfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Í úrskurði áfrýjunar nefndar samkeppnismála sem birtur var í gær er staðfest að Vélar og verk- færi séu í markaðsráðandi stöðu og hafi brotið samkeppnislög. Áfrýjunarnefndin ákvað hins vegar að lækka sekt Véla og verk- færa úr 15 milljónum í 10 milljón- ir króna. - bþa Vélar og verkfæri ehf. sektað: Misnotuðu markaðsstöðu Sakaður um árás á yfirvaldið Ríflega þrítugur maður hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, en honum er gefið að sök að hafa ráðist með ofbeldi að opinberum starfsmönnum í Leifsstöð í apríl í fyrra. Hann er sakaður um að hafa reynt að taka öryggisvörð hálstaki og hóta tveimur lögregluþjónum lífláti. DÓMSTÓLAR BERGUR EBBI BENEDIKTSSON BÁÐIR HLOTIÐ ÞUNGA DÓMA FULLKOMINN TÆKJABÚNAÐUR Sérfræðingur frá Interpol sagði verksmiðjuna eina þá fullkomn- ustu sem hann hefði séð. MYND/LÖGREGLAN Jónas Ingi Ragnarsson, 37 ára, var árið 2004 dæmdur í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir að láta undir höfuð leggjast að koma Litháanum Vaidasi Jucevicius til hjálpar þegar fíkniefna- belgir sprungu í iðrum hans, og fyrir ósæmilega meðferð á líki Vaidasar þegar hann kom, ásamt öðrum, líkinu fyrir í Neskaupstaðarhöfn. Jónas neitaði alltaf sök í málinu, og kom meðal annars fram í fjölmiðlum til að bera af sér sakir, en í dóminum sagði að framburður hans væri svo fráleitur að það tæki engu tali. Tindur Jónsson, 22 ára, var árið 2006 dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, en hann réðst á annan mann í samkvæmi og hjó í höfuð hans með stórri sveðju. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir fjórar aðrar líkamsárásir og fíkniefnabrot. Tindur fékk að afplána hluta refsingar sinnar á áfangaheimilinu Vernd, til að hann gæti stundað nám í efnafræði á sama tíma. Jónas Ingi og Tindur hafa báðir setið inni síðan amfetamín- verksmiðjan uppgötvaðist og af plánað eftirstöðvar dóma sinna. JÓNAS INGI RAGNARSSON SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.