Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 10
10 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
Paul Bennett er einn af eig-
endum IDEO, framsækins
og skapandi hönnunarfyrir-
tækis. Fyrirtækið var valið
meðal fimm framsæknustu
fyrirtækja Bandaríkjanna
árið 2008 ásamt Google,
Apple og Facebook. Hann er
að koma til landsins í fjórða
sinn og vill gera hvað hann
getur til að hjálpa til.
„Við erum að vinna með ráða-
mönnum um að opna vettvang þar
sem fólk getur komið með hug-
myndir og sameina fólk í baráttu
í endurreisn landsins,“ segir Paul
Bennett. Hann er einn af eigendum
hönnunar-, ímyndar- og sköpunar-
fyrirtækisins IDEO auk þess að
vera hönnunarstjóri hjá fyrir -
tækinu.
Paul segir að hann hafi fest kaup
á léninu www.DesignAndRecov-
ery.is sem hann vonast til að eigi
eftir að vera vettvangur hugmynda
og sköpunar á næstunni. „Við von-
umst eftir að koma henni í loftið á
næstu níutíu dögum,“ segir Paul.
„Við viljum ná ráðamönnum og
aðilum vinnumarkaðarins í sam-
ræmt átak. Þetta er erfitt þar sem
margir koma að þessu en ég er von-
góður um að þetta hafist enda eru
allir að vinna að sameiginlegum
málstað“.
„Það sem Ísland þarfnast er sví-
virðilega einfaldar lausnir,“ segir
Paul. Hann bætir við að þær séu
þó ekki auðfundnar. Hann segir
að hann horfi til þeirra aðferða
sem Barack Obama hafi gripið til.
„Hann er ekki endilega að gera
afskaplega mikið en hann upp-
lýsir almenning um hvað hann
er að gera, sem fyllir fólk bjart-
sýni.“ Hann bendir á að ríkis-
stjórn Obama standi fyrir vefsíðu
sem eigi að auðvelda almenningi
að hjálpa samfélaginu á einhvern
hátt og fylgjast með aðgerðum hins
opinbera.
Aðspurður segir Paul að ef hann
væri í forsvari fyrir íslensku þjóð-
ina um þessar mundir myndi hann
einbeita sér að því að auka gegnsæi
allra aðgerða. „Íslenskir ráðamen
þurfa að forðast að vinna bak við
luktar dyr. Það fólk sem ég hef rætt
við er tvístigandi um það hvort það
vill samþykkja Icesave eða ganga
í Evrópusambandið en er sammála
um að þessari óvissu sem nú ríkir
þurfi að ljúka,“ segir Paul.
Paul er að koma til landsins í
fjórða skipti síðan allt fór í kalda
kol og segir að hann hafi fund-
ið fyrir því að fólk vilji hjálpa og
gera uppbyggilega hluti. „Fólk er
ekki endilega að leitast eftir því
að fá borgað fyrir sína vinnu, það
er einungis að leita eftir því að
taka þátt í uppbyggingu landsins.
Það þarf að finna eitthvað að gera
fyrir fólk og gefa því tækifæri á að
taka þátt í þjóðhagslega og samfé-
lagslega hagkvæmum verkefnum.“
Hann segir Íslendinga að mörgu
leyti líka fólki í Kísildal (e. Silicon
Valley) í Kaliforníuríki. „Fólk er
frjótt og hefur ákaflega mikið af
hugmyndum. Það þarf að búa til
eitthvað sem er gerlegt og raun-
verulegt auk þess sem það verður
að taka afar skamman tíma,“ segir
Paul.
Aðspurður segir Paul að ekki sé
þörf á að skapa nýja ímynd fyrir
Íslands. „Allir vilja hjálpa litla
Íslandi. Þetta snýst um að hefja
endurreisnina.“ Paul segir að hann
eigi í viðræðum við BBC og fleiri
erlenda fjölmiðla um að koma hing-
að til lands til að hjálpa við að auka
jákvæða umfjöllun um endurbygg-
ingu landsins.
Fyrirtækið sem Paul á hlut í
og starfar fyrir, IDEO, vinnur
aðallega að vöruþróun, ímyndar-
vinnu og annarri sköpunarvinnu.
Meðal viðskiptavina fyrirtækis-
ins eru bandaríska ríkið, Proctor &
Gamble og Microsoft. Fyrirtækið
hefur jafnframt unnið að verkefn-
um í Afríku til að bæta aðgengi að
vatni. Vinna þess er því ákaflega
fjölbreytt. Fyrirtækið var valið eitt
af fimm framsæknustu fyrirtækj-
um Bandaríkjanna árið 2008 ásamt
Google, GE, Apple og Facebook.
Paul hvetur alla sem hafa áhuga
á að taka þátt í verkefninu að hafa
samband við sig persónulega á net-
fangið pbennett@iedo.com. Einn-
ig er hlekkur á umræðuvef á Face-
book á vefsíðu fyrirtækisins, www.
ideo.com. bta@frettabladid.is
Svívirðilega einfaldar lausnir
PAUL BENNETT Þetta er fjórða heimsókn Pauls til landsins. Hann hóf að fylgjast með málefnum Íslands eftir að Íslendingur benti
honum á ástand mála hérlendis. IDEA var valið eitt af fimm framsæknustu fyrirtækjum í heiminum árið 2008 og var þar í hópi
með Google, Apple, GE og Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTAVIÐTAL: Paul Bennett, hönnunarstjóri og einn af eigendum fyrirtækisins IDEO