Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 14
14 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
V
oltaic heitir gripurinn sem
endar Volta-ævintýri Bjark-
ar Guðmundsdóttur. Þar má
finna DVD-upptökur af tón-
leikum frá París og Íslandi,
plötu með endurhljóðblönd-
unum af lögum Voltu eftir aðra listamenn,
„live“-hljóðupptöku af Björk með hljómsveit
í Olympic Studios og DVD þar sem öll þau
myndbönd sem gerð voru fyrir plötuna má
finna.
Það er bið eftir Björk, en allir miðlar
landsins keppast um að ná tali af henni. Svo
birtist hún, bleikklædd og fáguð í stíl, að
vanda. Hún býður mér inn í borðstofuna á
veitingastaðnum Við tjörnina. Þetta er svo
yndislegt hús, segi ég. „Já, mann langar
bara að flytja inn hérna,“ svarar hún. Við
vitum báðar að við erum ekki komnar til
þess. Ég er mætt til að leika blaðamann, hún
er stjarnan sem situr fyrir svörum.
Um margt að velja
Upptökurnar úr Olympic Studios, af hverju
ákváðuð þið að nota þær frekar en upptöku
af tónleikunum? „Við tókum upp tónleikana
fyrir útvarp, áður en við fórum á túrinn.
Svo notuðum við það ekki, ég man ekki út
af hverju, en við hugsuðum vá, en gott að
eiga þetta sem heimild og geta gefið þetta
út sjálf, seinna.“ Hún segir hljómsveitina
svo hafa verið sívaxandi á túrnum og safn-
ið sýni þróunina vel. „Þannig að ef þú hefur
áhuga þá ertu með Voltu, plötuna, síðan ertu
með hljómsveitina, búna að æfa lögin áður
en hún fer á túr og síðan eftir túrinn, þegar
við erum búin að vera að spila í tvö ár og
orðin pínu sjúskuð og ég orðin hás og svolít-
ið rokkuð á því.“
Á mynddisknum eru tvær upptökur, frá
París og Íslandi. „Ég ætti náttúrlega ekki að
vera að segja frá þessu, en á Parísartónleik-
unum lenti ég í rosalegum vandræðum og
gat ekki tekið háu nóturnar mínar. Þannig
að þegar við héldum kirkjutónleikana hér
tókum við bara rólegu lögin, sem er erfið-
ari að syngja. Ég var í raun enn með hnút á
raddböndunum þá, en nú er hann farinn.“
Margar hliðar raddarinnar
Í viðtali við Interview varstu spurð hvort
tónleikaupptökur væru raunverulegri heim-
ild um mismunandi hliðar raddar þinnar en
upptökur í hljóðveri. Er þessi heimildar-
söfnun um það, að fanga þessar hliðar? „Já,
í rauninni. Þegar ég túra þá er ég alltaf að
hugsa meira um tónlistina heldur en rödd-
ina mína. Til dæmis á Parísartónleikunum,
sem eru aðaltónleikarnir, þar var ég með
vandamál. Ég gerði Parísartónleikana og
svo þremur dögum seinna voru Náttúrutón-
leikarnir og eftir þá aflýsti ég öllum tón-
leikum í tvær vikur og fór til London til sjö
lækna. Þetta var í fyrsta skipti á ævinni sem
ég lenti í svona vandræðum.“ Upptökurnar
eru því af söngkonunni í erfiðleikum með
röddina. „Síðan er ég núna, ár síðan túrinn
var, búin að fara til hellings af sérfræðing-
um og læra alveg nýjan kafla af tækni sem
ég kunni ekki og hvernig maður á að læra
að eldast.“
Björk tekur fram að það sé ekki að merkja
í dag, en röddin er þreyttari en blaðamaður
hefur áður heyrt hana. „Það var „reunion“
hjá hópnum i gær, því hljóðmaðurinn fór í
dag. Við fórum á Boston og dönsuðum til
þrjú og öskruðum, þannig að ég er óvenju
hás í dag. En það er eins og þú segir, þegar
maður er í stúdíóinu þá tekur það mig venju-
lega tvö ár að gera plötu eða eitthvað. Maður
er að dúlla sér við útsetningar og bítin. Svo
vakna ég einn morguninn og bara, vá, ég er
í toppformi í dag og syng. Ég tek kannski
fjórar, fimm tökur og svo finn ég þá bestu en
á tónleikum hefur maður ekki þann lúxus.
Þannig að það er í raun sannara. Þegar
maður labbar á sviðið verður maður bara að
vinna með það sem maður hefur þann dag-
inn. Mér finnst það alltaf svolítið spennandi.
Ég hef gaman af þessum andstæðu pólum.“
Full mynd- og hljóðgæði
Tónleikarnir verða sýndir í Háskólabíói á
miðvikudögum og laugardögum. „Já, ég
er rosalega fegin og yrði mjög glöð ef fólk
myndi sjá þetta í miklum hljóðgæðum. Nátt-
úrutónleikarnir voru erfiðir, bæði var svo-
lítið kalt og raddarlega séð voru það verstu
tónleikarnir. Svo var svo bjart þar, sem er
auðvitað æðislegt, sumarnæturnar á Íslandi,
en við gátum ekki verið með neitt af ljósun-
um okkar og leiserana. Í bíó fær fólk að sjá
allt það. Mér fannst það vera hluti af þessu
Volta-ævintýri, það var svolítið neon-frum-
stætt. Þess vegna var gaman að draga leis-
erinn fram. Hann var í tísku fyrir tuttugu
árum, skilurðu? Við fengum gamaldags
reif-leiser. Mennirnir voru bara, heyrðu,
við getum gert miklu flottara dót með leis-
er. Ég bara, nei, nei, nei, nei, við viljum
retró leiser. Það var hluti af útlitinu, þetta
træbal-reif. En já, ég yrði rosalega glöð ef
fólk myndi koma að sjá þetta.“
Komin annað í huganum
Í huganum virðist Björk nú þegar búin að
skilja við Voltu og komin allt annað. „Ég er
náttúrlega bara byrjuð að vinna næstu plötu.
Maður er enn þá í myrkrinu í þoku og getur
ekki lýst neinu. Það kemur í ljós seinna.“
Hún beinir því sjónum sínum alfarið að
tónlistinni í bili. „Ég tók alveg fjóra mán-
uði fyrir jólin í þessa náttúrubaráttu hérna
heima. Það kom mér á óvart, maður var
alveg átján tíma á dag í því. Í janúar ákvað
ég að ég þyrfti að fara alveg í tónlistina. Ég
geri meira gagn þar, held ég. Ég fór til New
York, ákvað að fara alla leið í slipp, og fór
vikulega til osteopata sem sérhæfir sig í
söngvurum og raddþjálfara og talþjálfara
og söngþjálfara og næringarfræðings, ég
tók allan pakkann. Það var mjög gaman. Það
tekur alltaf svolítið úr manni að túra. Maður
þarf yfirleitt að fara í slipp á eftir.“
Lærir að tala að nýju
Er eitthvað sem þú komst að um sjálfa þig í
því ferli öllu? „Já, alveg gomma.“ Björk vand-
ar sig við svarið. „Góð spurning. Ég komst
að því af hverju að alltaf þegar ég labba þá
anda ég eðlilega en þegar ég er kyrr þá fer
öndunin öll í hakkabuff hjá mér. Það var svo
augljóst að það þurfti einhver að segja mér
það (hlær). Þegar ég er að syngja á tónleik-
um þá er ég hlaupandi út um allt, því ég kann
það miklu betur en að vera kyrr.“ Hún segir
sönginn þó aldrei hafa verið vandamálið. „Ég
fór til Engel Lund þegar ég var átján ára og
þá sagði hún mér að ég talaði eins og mús. Ég
pældi aldrei í því. Svo fór ég til raddþjálfara
og hún sagði mér að vandamálið væri hvern-
ig ég tala. Hún var aðallega að leiðrétta það,
ekki söngröddina, hún kemur af einhverri
eðlisávísun, það er ekkert að henni. Það var
mjög áhugavert. Svona er þegar maður er
búinn að gera eitthvað vitlaust í fjörutíu ár.“
Björk hlær að þessu. Það virðist aldrei taka
á hana að ræða raddarvandræði sín, hún er
reynslunni ríkari.
Nýr staður í sjónmáli
Ég las einhvers staðar að þú hefðir verið í
Gvatemala. Hvað varstu að gera þar?
„Ég var bara að semja, fór á bátnum og
samdi á honum. Ég var í smá rannsókn. Ég
fór til Púertó Ríkó, Dóminíska lýðveldisins,
Kúbu, Belís, Mexíkó og Gvatemala að reyna
að finna stað til að semja á. Mér finnst svo
erfitt að vinna í New York, ég er ekki mikið
borgarbarn. Í ákveðinn tíma finnst mér rosa-
lega gaman að fara í háhælaða skó og setja á
mig varalit en ég get ekki búið þar eða samið.
Þannig að ég var að reyna að finna einhvern
stað sem væri nálægt New York en samt í
náttúrunni. Ég held að ég sé búin að finna
hann núna, Púertó Ríkó sé málið. Það er líka
stutt að ferðast þangað. Það er næsta plan að
fara þangað.“
Staðsetningin er að mörgu leyti fullkom-
in til að geta eytt tíma bæði með tónlistinni
og fjölskyldunni, en Matthew Barney, sam-
býlismaður Bjarkar, vinnur í New York og
þau eyða helmingi ársins þar. Björk virðist
því komin með stað í tilverunni aftur eftir
tveggja ára túr, stríð við röddina sína, nátt-
úruverndarbaráttu og rót. Ég spyr hana hvort
við þetta sé einhverju að bæta, veit að ég er
að renna út á tíma og Bjarkar bíða enn blaða-
menn í hrönnum. „Nei, ég er alveg góð.“ Með
því skil ég við Björk.
Hefur fundið sinn stað í lífinu
Björk Guðmundsdóttir kveður Volta-ævintýrið með bíósýningum og útgáfu. Sjálf er hún komin allt annað, jafnvel alla leið til
Puerto Rico. Kolbrún Björt Sigfúsdóttir ræddi við Björk um atburði síðustu ára og framtíðina.
VOLTA-ÆVINTÝRIÐ BÚIÐ Björk kemur til frumsýningar á Voltaic í Háskólabíói í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÞÓR
Voltaic kemur út í þremur mis-
munandi útgáfum; þrefaldri
hágæða vínylútgáfu með DVD,
geislaplötuútgáfu ásamt DVD í
sérútgáfu og staðlaðri CD/DVD
útgáfu.
Voltaic DVD-tónleikaupptaka
Upptaka af tónleikum Bjarkar
í París
1. Brennið þið vitar
2. Earth Intruders
3. Hunter
4. Immature
5. Joga
6. Pleasure Is All Mine
7. Vertebrae by Vertebrae
8. Where Is the Line
9. Who Is It
10. Desired Constellation
11. Army of Me
12. Bachelorette
13. Wanderlust
14. Hyperballad
15. Pluto
16. Declare Independence
Upptökur af tónleikum Bjark-
ar í Langholtskirkju
17. Pneumonia
18. My Juvenile
19. Vökuró
20. Sonnets / Unrealities XI
21. Mouth‘s Cradle
Tónleikamynddiskurinn færir
fólki Volta-tónleika eins og
þeir gerðust bestir en veita
þó innsýn í raddarvandræði
Bjarkar. Hvergi vantar þó upp
á spilagleðina, framkomuna,
búningaskipti eða annað það
sem gerir tónleika hennar
jafn eftirminnilega og raun
ber vitni. Helst ber að nefna
einstakar útgáfur af lögum
Medúllu.
Upptökur í Olympic Studios
frá því fyrir hljómleikaferða-
lagið.
1. Wanderlust
2. Hunter
3. Pleasure Is All Mine
4. Innocence
5. Army of Me
6. I Miss You
7. Earth Intruders
8. All Is Full of Love
9. Pagan Poetry
10. Vertebrae by Vertebrae
11. Declare Independence
Upptaka sem bætir fáu við
plötur Bjarkar en fangar
samhljóm hljómsveitarinnar
sem tekst á við magnaðar
útsetningar. Hálfgerð „Best
of“ sem virkar á mann eins og
léttir hádegistónleikar, enda
tekið upp með útvarp í huga.
Voltaic Volta mixes
1. Earth Intruders - Spank
Rock remix
2. Innocence - Simian Mobile
Disco remix 12“
3. Declare Independence
- Mathew Herbert 12“
4. Wanderlust - Ratatat remix
5. The Dull Flame of Desire -
Modeselektor‘s RMX for girls
6. Earth Intruders - lexx remix
7. Innocence - Sinden Remix
8. Declare Independence
- Ghostigital In Deep End
Dance Remix 12“
9. The Dull Flame of Desire
- Modeselektor’s RMX for
Boys
10. Innocence - Alva Noto
Unitxt Remodel 12“ Version
11. Declare Independence
- Black Plus mix
12. Innocence - Simian Mobile
Disco dub remix
Dansvænar útgáfur af dans-
vænum smellum. Tilvalið í
sveitt partí og áhugavert sem
skoðun á hljóðblöndunartækni
og taktpælingum dagsins í
dag.
Voltaic, Volta-myndböndin
1. Earth Intruders
2. Declare Independence
3. Innocence - Version 1 (sig-
urvegari)
4. Wanderlust
5. The Dull Flame of Desire
6. Innocence - David Saghiri
7. Innocence - Dimitrio
Stankowicz
8. Innocence - Etienne
Strubbe
9. Innocence - Juliet Himmer
10. Innocence - Laurent
Labouille
11. Innocence - Mario Caporali
12. Innocence - Miko o_o
13. Innocence - Misi Park &
Pierre Khazem
14. Innocence - Christiano Leal
15. Innocence - Roland
Matusek
Myndbönd við lög Bjarkar eru
alltaf áhugaverð, hvað þá
þegar snillingar eins og Michel
Gondry koma þar að. Hér er
einnig að finna allar útgáfur
Innocence sem efnt var til
keppni um. Safnið er þó helst
fyrir harða aðdáendur.
➜ VOLTA Í HNOTSKURN