Fréttablaðið - 11.07.2009, Page 20
20 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusamast-
ur? Núna.
Ef þú værir ekki gítarleikari,
hvað myndirðu þá vilja vera?
Píanóleikari. Sex strengir eru
stundum ekki nóg.
Hvert er uppáhaldstónskáld-
ið þitt? Mateu Malondra Flaquer.
Eitt besta tónskáld Spánar.
Hvað er það versta sem hefur
verið sagt við þig? Reyni að gleyma
því, með ágætum árangri.
Ef þú byggir ekki í Amster-
dam hvar myndirðu vilja búa?
Á Djúpavogi. Þar er svo stutt til
allra átta.
Draumahelgin þín? Barcelona.
Kíkja á eitt eða tvö listasöfn, fá
sér kaldan bjór og tapas, siesta, á
tónleika og svo út að borða.
Ef þú ættir að spila Jackson-lag,
hvaða lag yrði fyrir valinu og af
hverju? Myndi aldrei reyna það.
Hvert er versta starf sem þú
hefur unnið? Reyndi einu sinni
að vinna á togara en var sjóveik-
ur allan tímann. Það var erfitt að
æfa sig á gítarinn í svoleiðis fíl-
ing.
Uppáhaldsstaðurinn þinn í
heiminum? Erfitt að segja. Var
nýlega í Berlín og féll alveg fyrir
þeirri borg. Annars er Stöðvar-
fjörður alltaf flottastur.
Ef þú ættir tímavél, hvert mynd-
irðu vilja fara og af hverju? Myndi
bara geyma hana inni í stofu og
strjúka henni annað slagið.
Hvenær fékkstu síðast hláturs-
kast? Þegar ég horfði á Ricky
Gervais Politics-uppistandið.
Bók eða bíómynd? Bók.
Hollendingarnir Cees Nooteboom
og Geert Mak í uppáhaldi núna.
Hvað er best við Ísland? Nátt-
úran.
En verst? Kuldinn.
Hvaða eitt atriði myndi full-
komna lífsgæði þín? Friður á jörð
og allt það.
Hvaða lag á að spila í jarðarför-
inni þinni? Stöð í Stöð.
Hvað er næst á dagskrá? Ein-
leikstónleikar á Gljúfrasteini
sunnudaginn 12. júlí kl. 16.00.
Sama dag kl. 20.00 spila ég með
bandaríska píanóleikaranum Shu-
ann Chai í Húsinu á Eyrarbakka.
Síðan held ég til Mallorca á Spáni
og held tónleika þar og tek mér
smá frí til að skoða eyjuna og
drekka í mig sólina.
sigridur@frettabladid.is
Of sjóveikur til að spila á gítar
Svanur Vilbergsson gítarleikari segir stutt til allra átta á Djúpavogi og þar myndi hann vilja búa ef
hann flytti frá Amsterdam. Hann heldur stofutónleika á Gljúfrasteini á morgun.
SVANUR VILBERGSSON Myndi aldrei reyna að spila lag eftir Michael Jackson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Svanur Davíð
Vilbergsson
FÆÐINGARÁR: 1981
LÍFIÐ Í HNOTSKURN: Ég er upp-
alinn á Stöðvarfirði en lærði
tónlist í Englandi, á Spáni og í
Hollandi. Starfa sem klassískur
gítarleikari, bý í Amsterdam
en hef meðal annars spilað í
Boston, Seattle, Amsterdam
og London og svo auðvitað á
Íslandi.
■ Á uppleið
Afskriftir Björgólfs-
feðgar fá niðurfellda
milljarða og við hin
bíðum spennt eftir
að fá helmingsafslátt
á lánunum okkar. Það
hlýtur að koma að því bráðum.
Sykrað gos Við þurfum
alla þá orku sem við
getum náð í og því er
málið að drekka sykrað
gos en eltast ekki við
sykurskert sull. Það er
bara bull.
Tjöld Tjöld eru réttu
græjurnar fyrir árið 2009
en fellihýsi svo 2007. Það
er bara halló að teppa hálft
tjaldstæðið með ofvöxnu felli-
hýsi eða risavöxnum húsbíl.
Esjan Þetta fallega fjall sem gnæfir
yfir höfuðborginni er eitt besta
útivistarsvæðið sem hægt er að
komast í tæri við á höfuðborgar-
svæðinu. Ekki skemmir fyrir að
fjallganga er bæði ódýr líkamsrækt
og holl fyrir sálarlífið. Og er það
ekki einmitt það sem þjóðin þarf?
■ Á niðurleið
Tvíhöfði Voru frá-
bærir í minningunni
en hafa ekki elst vel.
Gamlir aðdáendur
ættu að forðast að
hlusta á nýju plötuna
þeirra, það fellir bara
goðin af stallinum.
Dýrar veiðigræjur Partíið er
búið eins og allir vita. Það
er miklu meira kúl að
standa á árbakkanum
með veiðistöng
úr Europris og
ánamaðk úr
garðinum en
dýra merkja-
vöru.
Pepsi-deildin Á þetta
að vera eitthvað djók?
FH-ingar eru komnir
langleiðina með að klára
deildina, eru með tólf stiga forrystu
og næstu leikir snúast um hvort
Hafnarfjarðarliðið slái einhver
stigamet. Önnur lið þurfa að girða
sig í brók.
Facebook Vefsíðan er að útrýma
hugtakinu „besti vinur“ enda eiga
margir vel á annað hundrað, ef
ekki þúsund, vini. Þá hefur síðan
reynst gróðrar-
stía fyrir
net níðinga
og hún hefur
orskað sambandsslit. Vonandi
er tími bréfaskrifta að renna upp
aftur.
MÆLISTIKAN
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
AUKAKRÓNUR
2 iPod Shuffle á ári
fyrir Aukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur keypt þér tvo iPod Shuffle á ári í Apple-búðinni fyrir Aukakrónurnar sem safnast
þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum
Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum.
Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*