Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 22
● Forsíðumynd: Valgarð Gíslason Útgáfufélag: 365 miðlar
ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar:
Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir
solveig@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Stein-
grímsson s. 512 5439 og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
s. 512 5462 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
SUMAR
SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR
● inni&úti
S
umarið hefur misjafna þýðingu í hugum fólks. Fyrir sumum er
sumarið göngutúr í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir sumum er sum-
arið sólarlandaferð til Tenerife þar sem flatmagað er á strönd-
inni.
Fyrir mörgum er sumarið hins vegar tími tjaldferðalaga. Langflest-
ir eiga minningar af fjölskylduferðum í íslenskri náttúru þar sem kvak
lóunnar og brestir hrossagauksins vagga börnum sem fullorðnum í
svefn. Þar liggur öll fjölskyldan þétt í einu fleti og hrotur pabba gamla
halda vöku fyrir unglingnum sem nauðugur viljugur var teymdur með
í ferðina. Við slíka upprifjun vakna minningar
um gott nesti og kakó á brúsa, jafnvel af flatkök-
um og kókómjólk í íslenskum móa.
En rómantísk minning um fuglasöng og fersk-
an gróðurilm nær þó ekki að breiða yfir það hve
langt maðurinn er í raun kominn frá náttúr-
unni. Því til staðfestingar má benda á bakeymsli
þeirra sem sofa á þunnri dýnu á harðri jörðinni,
svefnleysi vegna tákulda og hálsríg vegna þess
að lopapeysan var notuð í stað kodda.
Því er kannski ekki að furða að tjaldferða-
menningin hafi breyst mjög mikið á síðustu árum. Það taldist nokkuð
eðlilegt á níunda áratugnum að fimm manna fjölskylda hefðist við í
litlu kúlutjaldi en það þykir ekki bjóðandi í dag.
Nú virðist útilegubúnaður þróast samhliða aldri. Unglingar og ung-
menni gera sér hefðbundnu tjöldin að góðu enda eru þau handhægust
á útihátíðum. Velja þau jafnvel ódýrustu tjöldin svo ekki hljótist mikið
fjárhagslegt tjón ef þau fjúka burt eða brenna.
Fjölskyldufólk kýs heldur að leggja aðeins meiri kostnað í tjöldin
enda hægt að fá tjöld í öllum stærðum og gerðum, jafnvel risastór tjöld
með nokkrum herbergjum og jafnvel álmum.
Næsta stig í þróuninni er tjaldvagninn. Hann er hentugur fyrir
unga foreldra sem nenna ekki lengur að liggja á jörðinni og þykir
óþægilegt að geta ekki staðið uppréttir í tjaldinu.
Svo eru það fellihýsin sem bjóða enn
meiri þægindi, en efsta stig útilegu-
menningarinnar finnst í hjólhýsum
og húsbílum. Þar er maðurinn sann-
arlega kominn eins langt frá upp-
runa sínum og kostur er en
getur samt sem áður sagst
vera í útilegu.
Undir tjaldhimni
Það taldist nokkuð
eðlilegt að fimm
manna fjölskylda
hæfist við í litlu
kúlutjaldi á níunda
áratugnum en það
þykir ekki bjóðandi
í dag.
„Ég fór í fyrsta skipti í nokkurra
tíma svifvængjaflug í Póllandi á
síðasta ári en byrjaði fyrir alvöru
í mars,“ segir svifvængja flugmað-
urinn Szczepan Pawluszek, sem Ís-
lendingar kalla Stebba. „Með vor-
inu hef ég flogið meira þó að þetta
sé aðallega stundað á sumrin.“
Stebbi segir að svifvængjaflug
hafi verið draumur síðan hann var
ungur. „Þegar ég var lítill langaði
mig að prófa því oft var flogið yfir
bænum mínum. Ég fór upp á lítið
fjall nálægt bænum og fylgdist
með og fannst það spennandi.“
Stebbi sló Íslandsmetið í lengsta
svifvængjaflugi fyrir stuttu. Flaug
hann 75 kílómetra frá Herdísarvík
til Geysis en fyrra metið var rúm-
lega 50 kílómetrar. „Ég vissi ekki
að ég hefði slegið metið og varð
hissa,“ segir Stebbi hlæjandi en
flugið tók um fjóra tíma.
Stebbi er beðinn um að lýsa leið
sinni sem hófst í Herdísarvík. „Ég
fór yfir veginn sem liggur að Þor-
lákshöfn og ég sá að bílar stopp-
uðu og fylgdust með mér. Svo fór
ég að Hengli en þar vonaðist ég til
að fá hitauppstreymi og var hepp-
inn,“ útskýrir Stebbi og segir að
hann hafi vitað eftir gönguferð um
Hengil að þar væri jarðhiti og gufa
sem hann gæti nýtt á ferðinni.
Næst lá leið Stebba að Þingvalla-
vatni. „Ég var að hugsa um að fara
beint yfir vatnið en var hræddur
við það og fór því hægra megin við
miðju. Það var skemmtileg reynsla
og blátt vatnið lítur allt öðruvísi út
úr lofti,“ segir hann.
„Ég var hræddastur við að
lenda í hrauni,“ upplýsir Stebbi
sem fór frá Þingvallavatni í átt-
ina að Geysi. „Ég lenti að lokum
hjá sumarhúsi þar sem krakkar
sátu í heitum potti. Þau hoppuðu
úr vatninu, komu til mín og spurðu
hvaðan ég kæmi og ég svaraði að
ég kæmi af himnum ofan,“ segir
Stebbi sem komst til baka í Her-
dísarvík á puttanum.
Hvernig er tilfinningin að svífa
um loftin blá? „Maður er frjáls
eins og fuglinn. Mér finnst þetta
snúast um ánægjuna við að fljúga
og sjá fallega, íslenska landslagið
frá öðru sjónarhorni.“ - mmf
Frjáls eins og fuglinn
● Pólverjinn Szczepan Pawluszek, sem býr á Íslandi, hefur einungis stundað svifvængja-
flug í nokkra mánuði en hefur nú þegar slegið Íslandsmetið í lengsta svifvængjaflugi.
Stebbi segir að svifvængjaflug sé aðallega stundað á sumrin á Íslandi en þó fari hann
og þeir allra hörðustu á veturna líka. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
● ÞÆGILEGT OG FLOTT Fyrirtækið G.H. Design sérhæfir sig í alls kyns
lausnum fyrir garða. Áherslan er oft á einfalda og skemmtilega hluti eins og
þessi bekkur er til vitnis um. Hann er hannaður af Nancy Favier og upphaflega
hugsaður fyrir nútímalegt sundlaugarsvæði í Kaliforníu. Hins vegar þykir sýnt að
bekkurinn henti í nánast hvaða garð sem er, jafnvel í stofuna ef því er að skipta.
inni&úti
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2009 Sumarblað Fréttablaðsins
● LIST
HLEGIÐ AÐ KREPPUNNI
● HEIMILI
STÉTTAR OG STEINABEÐ
● SZCZEPAN PAWLUSZEK
METHAFI Í SVIFVÆNGJAFLUGI
GAMAN Í GARÐINUM
Fyrirtækið Jiande Chenyi Leisure
Products hannar skondnar rólur.
SÍÐA 5
TÍMABÆRT AÐ SNYRTA
Sumarið er tilvalinn tími til að
snyrta og klippa runna.
SÍÐA 4
11. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR2