Fréttablaðið - 11.07.2009, Side 24
● inni&úti
Aron Björn Arason skrúðgarð-
yrkjufræðingur er í óða önn að
ganga frá stétt og steinabeði í
vesturbæ Reykjavíkur. Hann
kveðst hafa byrjað í garðyrkju
fyrir fimmtán árum og segir tísk-
una hafa breyst talsvert síðan.
„Fólk aðhyllist æ meira viðhalds-
fría garða. Það vill stórar plöntur,
timburpalla og steinlagðar stéttar
þannig að garðurinn verði skjól-
sæll og hentugur til útivistar,“
lýsir hann.
Aron stofnaði Garðasmíði árið
2003 með Ólafi bróður sínum.
„Við gerum það sem fólk vill og
göngum frá garðinum frá A til
Ö. Sinnum aðallega uppbyggingu
á görðum en ekki viðhaldi. Þó
kemur fyrir að við fáum garða í
órækt og gerum þá eins og nýja,“
segir Aron og kveðst vinna ýmist
eftir teikningum arkitekta eða út
frá hugmyndum garðeigendanna.
„Verkefnin eru langmest í heima-
görðum enda er fjölbreyttasta og
skemmtilegasta vinnan þar.“
Mikið hefur verið talað um
áhuga almennings á matjurta-
rækt á þessu vori en Aron kann-
ast ekkert við hann. „Það hefur
enginn talað um matjurtir við
mig frá því að ég byrjaði í þessu
fagi nema Jói Fel,“ segir hann
og kveðst aðspurður aldrei hafa
potað niður kartöflum. „Flest-
ir vilja bara vera úti á palli og
slappa af. Aðrir eru viljugri,
rækta hin ólíkustu blóm og hafa
stórar flatir að slá,“ segir Aron
sem viðurkennir að dregið hafi
úr verkefnum frá því í fyrra og
hittiðfyrra. „Við höfum þurft að
fækka fólki en erum fjórir núna
og gengur vel.“ - gun
Flestir vilja vera úti á palli
● Mikil vinna felst í að móta nýja garða og koma upp þeim mannvirkjum sem henta.
„Það hefur enginn talað um matjurtarækt við mig frá því ég byrjaði í þessu fagi nema
Jói Fel,“ segir Aron Björn skrúðgarðyrkjufræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Harðviðarpallur og Óðals hleðslusteinar setja svip á þennan garð. Einir og kvistar
eru í beðunum í kring um pottinn. MYND/GARÐASMÍÐI
Hvít, norsk möl frá Malbikunarstöðinni prýðir beðin í þessum garði. Háu plönturnar í
þeim eru hengibaunatré. MYND/GARÐASMÍÐI
Hleðslusteinn hlaðinn í boga utan um grasflöt og runna. MYND/GARÐASMÍÐI
Ýmsir blómrunnar, á borð við sýrenur, eru um þessar
mundir að ljúka blómgun. Haf-
steinn Hafliðason, garðyrkju-
fræðingur í Garðyrkjufélagi
Íslands, segir þetta því tilvalinn
tíma til að snyrta og klippa
runnana. Þá vaxi nýir sprotar
seinnipart sumars sem nái að
þroska blómvísa fyrir haustið
og blómgist svo næsta ár.
Hafsteinn skrifar um klippingu runna á vef Garðyrkjufélagsins, www.
gardurinn.is: „Klipptu framan við sprota sem leita upp og út frá runnun-
um. Þá halda þeir nokkuð náttúrulegu formi.“
Þar segir Hafsteinn einnig að gott sé að grisja mjög þétta runna á
vorin eða veturna áður en þeir laufgist, þá sjáist form runnanna betur.
Sumir halda að ekki megi klippa tré á sumrin. Það er rangt. Sumar-
klipping trjáa er, að sögn Hafsteins, hið besta mál. „Þá er vöxturinn mest-
ur í gróðrinum og öll sár læknast og lokast fyrr og betur en þegar ein-
ungis vetrarklippingu er beitt,“ segir hann. - sg
Sýrena í blóma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Góður tími til að snyrta
11. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR4