Fréttablaðið - 11.07.2009, Side 32
11. júlí 2009 LAUGARDAGUR6
Hárklippistofa Jörgens óskar eftir
starfsmanni á næstunni. Góð laun fyrir
aðila vanan herraklippingu.
Upplýsingar í s. 866 2215 og 554 1414.
Síðumúli 23 | 108 Reykjavík | 580 7000 | securitas.is
Vilt þú vinna í fjölbreyttu, skemmtilegu og hreinlegu umhverfi?
Vegna vaxandi verkefna þarf Securitas að ráða fleiri rafvirkja og
rafeindavirkja til starfa. Verkefnasviðið er afar fjölbreytt og spannar
allt frá hefðbundinni rafvirkjavinnu til flókinnar hátæknivinnu.
Hæfniskröfur
Góð reynsla í raflögnum eða rafeindavirkjun
Almenn tölvukunnátta
Enskukunnátta
Þjónustulund og ánægja af samvinnu
Geta til að vinna sjálfstætt
Áhugi á aukinni þekkingu í starfi
RAFVIRKJAR / RAFEINDAVIRKJAR
Nánari upplýsingar veitir Heimir Snær Gylfason í síma 693 9979.
Umsækjendur fylli út umsóknir á heimasíðu fyrirtækisins
www.securitas.is eða sendi fyrirspurn á netfangið hsg@securitas.is
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2009.
Í boði eru samkeppnishæf laun og krefjandi störf hjá traustu og
framsæknu fyrirtæki með samhentan hóp starfsmanna. Lögð er
áhersla á góð starfsskilyrði og möguleika starfsmanna til að vaxa
og dafna með fyrirtækinu.
SECURITAS ÓSKAR
EFTIR STARFSFÓLKI
Á AUSTURLANDI
Áhættustýring Íslandsbanka leitar að öflugum liðsmanni í eigna- og skuldastýringu.
Helstu verkefni:
Áhættugreining eigna og skulda bankans
Eftirlit með lausafjáráhættu og þróun áhættumælikvarða
Þróun álagsprófa skv. annarri stoð Basel II reglnanna
Menntunar- og hæfniskröfur:
Framhaldsmenntun í verkfræði, hagfræði eða tengdum greinum
Reynsla af sambærilegu starfi innan fjármálageirans skilyrði
Góð greiningarhæfni og þekking á forritun og gagnagrunnum
Hæfni til að koma frá sér upplýsingum í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa undir álagi
Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Áhættustýring hefur eftirlit með áhættu í tengslum við starfsemi bankans og gefur skýrslur um
áhættu bankans til innri og ytri aðila. Áhættustýring er einnig til ráðgjafar um áhættu og
áhættumat í bankanum. Áhættustýring þróar, viðheldur og prófar áhættumatslíkön og veitir
aðra þjónustu á sérsviði sínu innan bankans. Áhættustýring tekur þátt í störfum lána- og
áhættunefnda, kemur að gerð áætlana og metur eiginfjárþörf bankans.
Ef þú uppfyllir ofangreindar hæfniskröfur og hefur áhuga á að gerast hluti af öflugu teymi
metnaðarfullra og jákvæðra einstaklinga sem hafa gaman af því að takast á við krefjandi
verkefni sendu okkur þá umsókn með ítarlegri ferilskrá á www.islandsbanki.is fyrir 17. júlí nk.
Tengiliður á mannauðssviði er Sigrún Ólafsdóttir, sími 440-4172,
netfang: sigrun.olafs@islandsbanki.is