Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 32
 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR6 Hárklippistofa Jörgens óskar eftir starfsmanni á næstunni. Góð laun fyrir aðila vanan herraklippingu. Upplýsingar í s. 866 2215 og 554 1414. Síðumúli 23 | 108 Reykjavík | 580 7000 | securitas.is Vilt þú vinna í fjölbreyttu, skemmtilegu og hreinlegu umhverfi? Vegna vaxandi verkefna þarf Securitas að ráða fleiri rafvirkja og rafeindavirkja til starfa. Verkefnasviðið er afar fjölbreytt og spannar allt frá hefðbundinni rafvirkjavinnu til flókinnar hátæknivinnu. Hæfniskröfur Góð reynsla í raflögnum eða rafeindavirkjun Almenn tölvukunnátta Enskukunnátta Þjónustulund og ánægja af samvinnu Geta til að vinna sjálfstætt Áhugi á aukinni þekkingu í starfi RAFVIRKJAR / RAFEINDAVIRKJAR Nánari upplýsingar veitir Heimir Snær Gylfason í síma 693 9979. Umsækjendur fylli út umsóknir á heimasíðu fyrirtækisins www.securitas.is eða sendi fyrirspurn á netfangið hsg@securitas.is Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2009. Í boði eru samkeppnishæf laun og krefjandi störf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki með samhentan hóp starfsmanna. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og möguleika starfsmanna til að vaxa og dafna með fyrirtækinu. SECURITAS ÓSKAR EFTIR STARFSFÓLKI Á AUSTURLANDI Áhættustýring Íslandsbanka leitar að öflugum liðsmanni í eigna- og skuldastýringu. Helstu verkefni: Áhættugreining eigna og skulda bankans Eftirlit með lausafjáráhættu og þróun áhættumælikvarða Þróun álagsprófa skv. annarri stoð Basel II reglnanna Menntunar- og hæfniskröfur: Framhaldsmenntun í verkfræði, hagfræði eða tengdum greinum Reynsla af sambærilegu starfi innan fjármálageirans skilyrði Góð greiningarhæfni og þekking á forritun og gagnagrunnum Hæfni til að koma frá sér upplýsingum í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa undir álagi Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum Áhættustýring hefur eftirlit með áhættu í tengslum við starfsemi bankans og gefur skýrslur um áhættu bankans til innri og ytri aðila. Áhættustýring er einnig til ráðgjafar um áhættu og áhættumat í bankanum. Áhættustýring þróar, viðheldur og prófar áhættumatslíkön og veitir aðra þjónustu á sérsviði sínu innan bankans. Áhættustýring tekur þátt í störfum lána- og áhættunefnda, kemur að gerð áætlana og metur eiginfjárþörf bankans. Ef þú uppfyllir ofangreindar hæfniskröfur og hefur áhuga á að gerast hluti af öflugu teymi metnaðarfullra og jákvæðra einstaklinga sem hafa gaman af því að takast á við krefjandi verkefni sendu okkur þá umsókn með ítarlegri ferilskrá á www.islandsbanki.is fyrir 17. júlí nk. Tengiliður á mannauðssviði er Sigrún Ólafsdóttir, sími 440-4172, netfang: sigrun.olafs@islandsbanki.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.