Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 11.07.2009, Síða 42
● inni&úti „Auðvitað er mjög óvenjulegt að listasafn standi fyrir uppákomu sem þessari. En við lifum líka á óvenjulegum tímum þar sem ör- vænting ræður ríkjum og því er nauðsynlegt að vega upp á móti ástandinu með því að sjá skoplegu hliðarnar á tilverunni,“ segir Berg- ur Ebbi Benediktsson, sem ætlar ásamt Dóra DNA, Jóhanni Alfreð Kristinssyni, Árna Vilhjálmssyni og Ara Eldjárn að vera með uppi- stand í Ketilhúsinu í kvöld klukk- an 21. Listasafnið á Akureyri stend- ur fyrir viðburðinum, sem nefnist Hláturkvöld. „Við ætlum bara að skemmta okkur og öðrum í leiðinni,“ segir Bergur Ebbi glettinn og bætir við að meðal annars standi til að gera óspart grín að kreppunni. „Við ætlum að taka stöðu gegn ástand- inu, fattarðu,“ segir hann og hlær. „Fá útrás fyrir útrásina, meðal ann- ars með því að ræða alls kyns hluti sem hafa verið að pirra okkur. Jó- hann ætlar til dæmis að taka fyrir viðskiptafréttir frá góðærinu, þar sem líf einhverja bisnesskarla var gert að algjörri glansmynd. Meðan þessar greinar birtust var hinn venjulegi maður í hálfgerðu fang- elsi, en nú er hann laus úr prísund- inni.“ Bergur Ebbi segir mikið tilhlökk- unarefni að koma fram við þessar heldur óvenjulegu aðstæður, þar sem félagarnir hafi aðeins reynslu af uppistandi á skemmtistöðum þar sem stemningin er allt önnur. Þeir hafi því ekki staðist mátið þegar Hannes Sigurðsson, sýningarstjóri á Listasafninu á Akureyri, leitaði til þeirra eftir að hafa hrifist af uppistandi hjá þeim. „Mér fannst bara tilvalið að fá þessa stráka til liðs við mig, þar sem uppistandið kallast, jú, á við sýninguna sem verður opnuð á safninu í dag klukkan 15. Þarna mætast nútíð og fortíð,“ útskýrir Hannes og á þar við sýninguna Kreppu málarana, þar sem verk eftir Þorvald Skúlason, Jón Engil- berts, Gunnlaug Scheving og Snorra Arinbjarnar verða til sýnis. Um sýninguna segir hann: „Hún er liður í viðleitni okkar til að veita ákveðna sýn á samfélagið. Til marks um það vorum við með sýningu, Stríðsmenn hjartans – Hund rað milljónir í reiðufé, árið 2005 þar sem peningahrúgum var stillt upp og svo kvöddum við það tímabil í fyrra með sýningunni Bæ bæ Ísland – Uppgjör við gamalt konsept, reyndar löngu fyrir banka- hrun. Á þeirri fyrri var komið fyrir á stöplum svellþykkum og flóðlýst- um búntum eins og um stórmerki- leg listaverk væri að ræða. Í bak- grunni blöstu við heljarinnar por- trettmyndir af fólki í móki á öllum helstu vímuefnum sem til eru: LSD, kókaíni, hassi og svo framvegis. Nú kemur þessi sýning sem varpar ljósi á hvernig fólk lifði í kreppunni, en auk málverkanna ætlum við að sýna gamla matarskammtamiða, bréf yfir ómaga á framfæri, kola- bing og eftirmynd af alþýðuheim- ili frá fjórða áratugnum. Svo gáfum við út sérstakt fréttarit með frétt- um frá þessum tíma, sem minna okkur á að við höfum staðið í þess- um sporum áður.“ - rve Veita útrás fyrir útrásina ● Nokkrir af nafntoguðustu mönnum í íslensku skemmtanalífi troða upp í Ketilhúsinu í kvöld í boði Listasafnsins á Akureyi. Kreppugrín og landsbyggðarbrandarar verða á dagskrá. Verða með uppistand á Akureyri í kvöld. Frá vinstri: Jóhann, Ari, Arni, Bergur Ebbi og Dóri DNA. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þorvaldur Skúlason: Frá Reykjavíkur- höfn. Frá árinu 1931. Olía á striga, 80 sinnum 95 sentimetrar. Í eigu Listasafns Íslands. Jón Engilberts: Kröfuganga, frá árinu 1934. Kol á pappír, 140 sinnum 193 sentimetrar. Í eigu ASÍ. N ýtt gallerí á Laugavegi, ART67, var formlega opnað á fimmtu- daginn en þrettán listakonur reka það. „Við gengum niður Laugaveginn, fannst hann vera heldur dapur og vildum glæða hann lífi,“ segir Birna Smith listakona. „Það er náttúrlega ömurlegt að fólk þurfi að horfa upp á Reykjavík í þessu ástandi þannig að við tókum okkur saman og björguð- um einmana húsi á Laugaveginum.“ Aðspurð segist Birna hafa fengið hugmyndina ásamt listakonunni Ragnheiði Guðjónsdóttur. „Við tókum húsið á leigu og hringdum í alla sem okkur datt í hug sem eru að selja myndlist, leir og gler. Þetta er 250 fer- metra gallerí í fallegu, gömlu húsi og við höfum fengið rosalegar góðar við- tökur.“ Í kjallaranum á galleríinu eru lista- konurnar með vinnustofu sem hægt er að kíkja inn í. „Þar erum við að vinna á daginn til skiptis.“ ART67 er á Lauga- vegi 67 og er opið á milli 11 og 18. - mmf Björguðu einmana húsi ART67 er nýtt gallerí sem var opnað formlega á Laugaveginum á fimmtudag- inn. MYND/BIRNA SMITH ÚTSALAN ER HAFIN 20–50 % AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM Hjálpaðu umhverfinu með Blaðberanum Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... 11. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR6

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.