Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 11. júlí 2009 23
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Guðmundur Karl Jónsson
fyrrverandi forstjóri,
sem lést fimmtudaginn 2. júlí, verður jarðsunginn
frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 13. júlí
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningargjafasjóð Landspítalans.
Rannveig Björnsdóttir
Jón Örn Guðmundsson
Björn Þór Guðmundsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Flosi Bjarnason
lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi þriðjudaginn
7. júlí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju þriðju-
daginn 14. júlí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi.
Erla Flosadóttir
Sigríður Flosadóttir
Þórður Flosason
tengdabörn, afa- og langafabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragnhildur Sigurjónsdóttir
frá Vestmannaeyjum, Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
lést á Lungnadeild Landspítalans í Fossvogi laugardag-
inn 4. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 13. júlí kl. 13.00.
Blóm vinsamlega afbeðin, þeim sem vildu minnast
hennar er bent á líknarstofnanir.
Eyjólfur Sigurðsson Sjöfn Ólafsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Gísli R. Sigurðsson
Guðrún Sigurðardóttir Hlöðver Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
Guðborg Hera
Guðjónsdóttir
Hraunvangi 3, Hafnarfirði.
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 14. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda,
Helgi S. Guðmundsson
Elfar Helgason
Helga Helgadóttir
Okkar ástkæri og yndislegi eiginmaður,
faðir, sonur, tengdasonur, bróðir,
mágur og vinur,
Hafþór Hafsteinsson
flugmaður,
Skrúðási 9, Garðabæ,
lést af slysförum fimmtudaginn 2. júlí. Útförin
fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 13. júlí,
athöfnin hefst kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.
Hjördís Líney Pétursdóttir
Andri Pétur Hafþórsson
Arnar Hugi Hafþórsson
Elsa Smith
Hafsteinn Sigurðsson
Sigrún Jónatansdóttir Pétur Jóhannsson
Íris Mjöll Hafsteinsdóttir Ríkarður Sigmundsson
Hjördís Baldursdóttir Þorleifur Björnsson
og aðrir aðstandendur.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegs bróður
okkar, mágs og frænda,
Guðmundar Halldórs
Atlasonar
flugumsjónarmanns,
Boðagranda 7, Reykjavík,
sem jarðsunginn var frá Háteigskirkju í Reykjavík
mánudaginn 29. júní sl. Sérstakar þakkir viljum við
færa starfsfólki Gjörgæslu Landspítala í Fossvogi,
Reykjalundar, og Hjúkrunarheimilisins Skógarbæ.
Lárus Atlason Nanna Guðrún Zoëga
Atli Helgi Atlason Ingibjörg Gréta Gísladóttir
Dóra Elín Atladóttir Johnsen Birgir Bárðarson
og frændsystkini.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Valgerðar Þorsteinsdóttur
Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík.
Þorsteinn A. Jónsson Martha Á. Hjálmarsdóttir
Helgi Jónsson Jónína Sturludóttir
Þórður Jónsson
Jytte Fogtmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Hálfdánardóttir
Skúlagötu 20, Reykjavík,
lést á öldrunarlækningadeild Landspítala, Landakoti,
fimmtudaginn 9. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingvar Hauksson Sigríður Axelsdóttir
Elín Hauksdóttir Svavar Helgason
Guðmundur Vignir Hauksson Lilja Guðmundsdóttir
Sigurdís Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Kristín Sigurðardóttir
Borgarbraut 65a, Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn
14. júlí kl. 11.00.
Jarðsett verður í Hólmavíkurkirkjugarði sama dag.
Þeim sem vilja minnast hennar láti líknarstofnanir
njóta þess.
Sæunn Andrésdóttir Guðrún Andrésdóttir
Konráð Andrésson Margrét Björnsdóttir
Guðleif Andrésdóttir Ottó Jónsson
Anna María Andrésdóttir Arnheiður Andrésdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ævisaga Sigurðar prests Stefánssonar í Vigur er nýkomin
út. Hún nefnist Vigurklerkurinn. Höfundur er Sigurður
sjálfur en hann lést fyrir 85 árum, árið 1924. Áður hafði
hann lokið skráningu æviminninga sinna og hafa afkomend-
ur hans lengi haft áform um að gefa þær út. Það er þó fyrst
núna sem af því hefur orðið og það er fyrir tilstuðlan Sögu-
félags Ísfirðinga sem jafnframt er útgefandi bókarinnar.
Séra Sigurður Stefánsson var þjóðkunnur maður á sinni
tíð, þingskörungur og áhrifamikill kennimaður og stjórn-
málamaður. Hann var sóknarprestur í Ögurþingum í Ísa-
fjarðardjúpi í 43 ár, frá 1881 til dauðadags árið 1924. Árið
1886 var hann síðan kjörinn alþingismaður og varð þingsaga
hans bæði löng og viðburðarík.
Fyrsta eintak bókarinnar var formlega afhent núverandi
eigendum Vigur, þeim Salvari og Birni Baldurssonum, en
séra Sigurður var langafi þeirra.
Vigurklerkurinn kominn út
Í VIGUR Stjórn Sögufélags Ísfirðinga og bræðurnir í Vigur. Salvar Baldursson, Valdimar Gíslason, Magni Guðmundsson, Guðfinna M. Hreiðars-
dóttir, Geir Guðmundsson, Sigurður Pétursson og Björn Baldursson. MYND/ÚR EINKASAFNI
Rithöfundurinn Ævar Örn
Jósepsson hlaut Blóðdrop-
ann, glæpasagnaverðlaun
Hins íslenska glæpafélags,
þegar þau voru veitt við há-
tíðlega athöfn á Borgarbóka-
safninu í Tryggvagötu í gær.
Verðlaunin hlaut Ævar fyrir
bókina Land tækifæranna,
sem verður einnig framlag
Íslands til norrænu glæpa-
sagnaverðlaunanna Glerlyk-
ilsins árið 2010.
Að þessu sinni voru níu
bækur tilnefndar en það
var samdóma álit dóm-
nefndar að veita Ævari
verðlaunin. Í áliti sem hún
skilaði af sér segir meðal
annars að sagan sé hvort
tveggja í senn spennandi
morðsaga og íslenskur sam-
félagsspegill, þar sem sagan
hefst strax eftir bankahrun
í október 2008. Hvergi sé
að finna finna hnökra í lýs-
ingum á nýliðnum viðburð-
um. Jafnframt hafi hún til
að bera eitt helsta einkenni
vandaðra glæpsagna, góða
persónusköpun, þar sem
persónur ræða kreppu og
bankahrun og eru oft ósam-
mála. Katrín Jakobsdótt-
ir, menntamálaráðherra og
meðlimur í dómnefnd, af-
henti Ævari verðlaunin.
Spennandi og sannfærandi samtímalýsing
HANDHAFI BLÓÐDROPANS Ævar Örn Jósepsson hlaut verðlaun fyrir
bók sín Land tækifæranna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI