Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 52
28 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Keppnismyndir Nordisk Panor-
ama hafa verið tilnefndar. Fyrir
hönd Íslands keppir Draumalandið
í flokknum besta heimildarmynd-
in. Um bestu stuttmyndina keppa
Epik feil eftir Ragnar Agnarsson,
Álagablettir eftir Unu Lorenzen
og Sugarcube eftir Söru Gunn-
arsdóttur. Þá keppir lokaverkefni
Rúnars Rúnarssonar, Anna, fyrir
hönd Danmerkur.
Tilnefnd fyrir hönd landsins
sem Ný norræn rödd er mynd-
in Hnappurinn eftir Sigurbjörn
Búa Baldvinsson. Á fjármögn-
unarmessunni svokölluðu verða
Adequate Beings, sem Poppoli
Pictures framleiða, og Reynir
the Strong, í framleiðslu Zeta
Productions ehf., kynntar.
Nordisk Panorama fagnar nú tut-
tugu ára afmæli en hún er haldin í
Reykjavík 25. til 30. september.
Keppa fyrir hönd Íslands
Í KLÓM DANA Stuttmynd Rúnars, Anna, keppir fyrir hönd Dana.
Hreyfiþróunarsamsteypan vinn-
ur nú að nýju dansverki fyrir
Reykjavík Dansfestival í Djass-
ballettskóla Báru. Seinasta verk
þeirra, DJ Hamingja, var tilnefnt
til Grímunnar. Nýja verkið heit-
ir Shake Me, eða Hristu mig og
hlaut styrk frá Prologos-leikrit-
unarsjóðnum. Víkingur Krist jáns-
son og Hannes Óli Ágústsson
aðstoða þær við verkið.
„Við erum að vinna með sum af
verkum Shakespeares og skoða
dramatískar dauðasenur þar sem
aðalpersónur falla fyrir eigin
hendi, eru myrtar eða deyja í bar-
daga. Þessu er svo blandað saman
við „power-ballöður“. Við erum
því að vinna út frá tveimur ofsa-
lega dramatískum viðfangsefn-
um, ást og dauða,“ segir Katrín
Gunnarsdóttir, ein úr hópnum.
Hún segir viðfangsefnið hafa
verið valið vegna þess hversu fjar-
lægur dauðinn er fólki. „Við erum
því að reyna að búa til drama og
upplifa einhverjar sterkar tilfinn-
ingar í gegnum Shakespeare eða
ástarlög, því við upplifum þær
ekki lengur í daglegu lífi.“
Þetta er í fyrsta skipti sem
Hreyfiþróunarsamsteypan vinn-
ur út frá leiktexta. Hún segir
þær nálgast verkin fyrst og
fremst sem dansarar. „Hvernig
ætlum við að koma Shakespeare
til skila í einhverju dansformi, er
það yfirhöfuð hægt? Það verður
bara að koma í ljós.“ En dramað
tekur sinn toll. „Þegar maður
deyr tuttugu sinnum á dag skil-
ur það eftir sig ákveðin líkam-
leg ummerki. Títus er svolítið
ofbeldisfullur.“ - kbs
Deyja margoft á dag
ÁST OG DAUÐI Melkorka S. Magnúsdóttir
og Katrín Gunnarsdóttir drepa og deyja í
nýju dansverki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bók sem inniheldur íslenskar lands-
lagsmyndir eftir japanska ljósmyndar-
ann Ariko er nú fáanleg í bókabúðum
hér á landi. Ariko, sem er mjög eftir-
sóttur ljósmyndari í heimalandi sínu
og hefur unnið fyrir tímarit á borð við
ID Magazine, er stödd hér á landi þess
dagana við tökur á japönsku tónlistar-
myndbandi.
Ariko hefur heimsótt Ísland reglu-
lega síðastliðin átta ár og eru mynd-
irnar sem prýða bókina allar teknar
á ferðum hennar um landið. „Ég bjó í
fjögur ár í New York-borg og var í ljós-
myndanámi við Parsons-háskólann.
Þar kynntist ég nokkrum Íslending-
um sem buðu mér með sér í heimsókn
til Íslands. Þetta var árið 2002 og upp
að því hafði ég alfarið einbeitt mér
að portrett-ljósmyndun. Það breyttist
þó þegar ég kom hingað og upplifði
náttúrufegurðina hér. Ég hef ferðast
mikið í gegnum árin vegna vinnunnar
og kynnst ólíkum menningarheimum
en þegar ég kom til Íslands þá fannst
mér eins og ég væri í fyrsta sinn hluti
af heiminum og jörðinni en ekki ein-
hverri ákveðinni menningu.“
Ariko segir margt við Ísland minna
sig á æskuslóðirnar í Kyoto og segir
hún japanska lystigarða vera eins og
smækkaða mynd af íslenskri nátt-
úru. Bókin, sem á íslensku heitir Sól,
kom út í Japan fyrir ári og hefur vakið
mikla athygli þar og nú hefur Ariko
ákveðið að deila Íslandssýn sinni með
landanum. Hægt er að nálgast bókina
í verslunum Pennans og í bókabúðinni
Útúrdúr við hliðina á Nýlistasafninu.
- sm
Japönsk sýn á íslenskt landslag
EINS OG Á ÆSKUSLÓÐUNUM Ariko segir að
Ísland minni hana mikið á æskuslóðirnar í
Kyoto. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta byrjaði á því að nokkrir
krakkar í MH nenntu ekki að vera
í leikfélaginu, vildu heldur stofna
sitt eigið, sem mér fannst ógeðs-
lega mikið brill. Þeir hringdu í mig
og báðu mig um að vera sér innan
handar,“ segir Tyrfingur Tyrfings-
son, nemandi við fræði og fram-
kvæmd, um leikhópinn Maddý.
Hópurinn hefur sett á svið tvær
sýningar, Jólahugvekju í gamla
Fáfnishúsinu ásamt krökkum úr
Fíladelfíu og Eru ekki allir í sundi?
í Sundhöll Reykjavíkur. „Þetta var
stuttu eftir hrunið og við vorum
mikið að spá hvað allt væri skrítið.
Við ákváðum að einbeita okkur að
einhverjum einum heimi og snúa
svolítið á það hvenær er hann rétt-
ur og hvenær er hann rangur. Af
hverju er skrítið að vera nakinn
ofan í sundi en það er í lagi í sturt-
unni? Það er bara einn metri sem
skilur þar að. Hvenær er nekt eðli-
leg og hvenær óeðlileg?“
Nýjasta verkefni hópsins er
unnið í samstarfi við artFart og
Gay Pride og kallast Margt að
ugga, öfugugga. Þar skoðar hóp-
urinn Gay Pride-fyrirbærið.
„Þetta er eins og „fiest of fools“,
fíflaveisla, dagar hommanna. Við
ákváðum að nota það bara, gera
almennilega veislu og sjá svo
hverjir fíflin eru.“ Sýningin er
margmiðla og verður sýnd 7. og
14. ágúst í Austurbæ. Þá verður
Eru ekki allir í sundi? tekin upp
að nýju á artFart.
Er markmiðið að ganga fram af
áhorfendum? „Markmiðið er ekki
að ganga fram af heldur afhjúpa
eitthvað sem við teljum satt, ein-
hverja birtingarmynd sannleikans,
eins skrítinn og ljótur og hann má
vera.“ - kbs
Fíflaveislan Gay Pride og nekt
ALLT GETUR GERST Leikhópurinn Maddý
hristir upp í fólki.
MYND/ODDUR
Tónlistarundrið Beck tók á dög-
unum viðtal við Tom Waits fyrir
vefsíðu sína. Bera þeir saman
uppvaxtarár sín í Los Angeles og
Waits lýsir pylsulöguðum bíl sem
keyrði um hverfið og konunni sem
notaði málverk eftir Van Gogh til
að skýla sér fyrir sólinni svo fátt
eitt sé nefnt.
Þá ræða þeir félagar um tónlist
og hvernig hún á það til að þýða
mismunandi hluti fyrir fólk, jafn-
vel eitthvað sem listamaðurinn sá
ekki fyrir.
Aðeins hefur verið birtur fyrri
hluti viðtalsins. Skulu aðdáendur
því hafa augun opin fyrir birtingu
seinni hlutans í næstu viku, enda
margt skemmtilegt sem gerist
þegar tveir furðufuglar mætast.
Waits í viðtal
> BROTNAR SAMAN
Glamúrgellan Katie Price sagði í viðtali við Piers
Morgan að skilnaður hennar við söngvar-
ann Peter Andre, væri alfarið honum að
kenna. Í viðtalinu talar hún opinskátt
um hjónabandið og skilnaðinn og á
einum tímapunkti brotnar hún niður
og fellir nokkur tár. Peter hefur aftur
á móti ákveðið að ræða ekki um
skilnaðinn við fjölmiðla.