Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 57
LAUGARDAGUR 11. júlí 2009 33
FÓTBOLTI Knattspyrnustjórinn lit-
ríki José Mourinho hjá Ítalíumeist-
urum Inter talar tæpitungulaust í
viðtali við Gazzetta dello Sport í
dag og viðurkennir að eins og stað-
an sé í dag muni Inter ekki vinna
Meistaradeildina á næstu leiktíð.
Hann kvartar jafnframt yfir því
að hafa of stóran leikmannahóp
þegar undirbúningstímabilið sé
að byrja.
„Það er alls ekki jákvætt að
vera með þrjátíu leikmenn í aðal-
liðinu. Hugmyndin var að fá fjóra
nýja leikmenn inn í sumar og
að við myndum losa okkur við
átta leikmenn í staðinn en
það hefur ekki gengið
upp hingað til. Okkur
vantar enn miðvörð
og sóknarmiðjumann.
Fjórir leikmenn hafa
farið frá okkur, þar af
þrír með lausan samn-
ing og einn á láni, og
við erum því ekki
að fá neina peninga í
kassann. Ég er ekki að
gagnrýna forráðamenn
félagsins því ég veit að
þetta eru erfiðir tímar,
efnahagslega séð. Það
er því áfram ákveðinn
getumunur á okkur og
bestu liðum Evrópu en
þetta verður að duga
eins og er. Við getum
unnið áfram með
þennan leikmanna-
hóp en ég er enginn
kraftaverkamaður. Ég er hvorki
Merlin né Harry Potter,“ segir
Mourinho í samtali við Gazzetta
dello Sport.
Mourinho getur þó glaðst yfir
því að framherjinn Zlatan Ibra-
himovic svaraði spurningum blaða-
manna í gær á kynningarfundi
fyrir komandi tímabil, sem hald-
inn var á æfingasvæði félagsins
í Appiano í útjaðri Mílanóborg-
ar, en kappinn kvaðst
þar vera ánægður hjá
félaginu.
„Ég er bara mjög
ánægður með að vera
hérna í Appiano. Ég
hef vissulega fylgst
með dagblöðunum síð-
ustu vikur en hef ekki
séð neitt áhugavert
eða neitt sem vit er
í. Það sem gerist
gerist bara en ég
er ánægður með
að vera hérna. Ég
er jafn ánægður
núna hjá Inter og
daginn sem ég skrif-
aði undir samning
við félagið,“ segir
Ibrahimovic. - óþ
Mourinho er hóflega bjartsýnn fyrir næsta tímabil:
Er ekki Harry Potter
MOURINHO Er spar
á fullyrðingarnar fyrir
komandi tímabil. NORDIC
PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Markvörðurinn Manuel
Almunia skýtur föstum skotum
að forráðamönnum Arsenal
þegar hann gagnrýnir kaupstefnu
félagsins um að fá bara unga og
efnilega leikmenn í stað reyndari
leikmanna og segir það ástæðu
þess að félagið vinni ekki titla.
„Það er vissulega gott og bless-
að að vera með ungt og efni-
legt lið en titlar eru ekki unnir
þannig. Til þess að taka skrefið
lengra þurfa menn að vera til-
búnir í stóru leikjunum og við
þurfum meiri reynslu til þess að
vera samkeppnishæfir við önnur
félög,“ er haft eftir Almunia í
breska götublaðinu The Sun. - óþ
Manuel Almunia, Arsenal:
Vinnum ekki
með krökkum
HLÚÐ AÐ ÆSKUNNI Wenger hefur sett
saman efnilegt lið hjá Arsenal.
NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Stórstjarnan Dwyane
Wade hjá Miami Heat vísar á bug
sögusögnum um að honum og
Pat Riley, forseta félagsins, komi
ekki saman.
Wade sendi stjórn félagsins
skýr skilaboð í fjölmiðlum þegar
hann sagði að styrkja þyrfti leik-
mannahópinn til muna við fyrsta
tækifæri og fleiri stór nöfn vant-
aði til félagsins. En Riley svaraði
honum með því að segja að Wade
þyrfti fyrst að framlengja samn-
ing sinn við Miami, sem rennur
út eftir komandi tímabil, áður en
hægt væri að raða stjörnuleik-
mönnum í kringum hann.
„Við Riley erum í sama liði og
viljum sömu hlutina. Við erum
bara í ólíkum stöðum hjá félaginu
og það er allt og sumt. Þetta er
enginn ágreiningur,“ segir Wade
í samtali við Miami Herald. - óþ
Dwyane Wade, Miami Heat:
Riley vill sömu
hluti og ég
50%
Ódýrt úr nammibarnum á
LAUGARDÖGUM
Tilboðið
gildir aðeins
á laugardögum
Tilboðið gildir aðeins
á laugardögum
FÓTBOLTI Sævar Þór Gíslason hefur
verið óstöðvandi í síðustu leikjum
með Selfyssingum í 1. deildinni.
Hann hefur meðal annars skorað
átta mörk í síðustu þremur leikj-
um, sem hafa skilað Selfyssingum
sjö stigum og séð til þess að liðið
er enn í efsta sæti deildarinnar.
Sævar Þór var jafnvel að hugsa
um að hætta fyrir tímabilið en
ákvað að halda áfram. Það gekk
hins vegar lítið að skora í maí.
„Hinir strákarnir byrjuðu að
skora í fyrstu leikjunum og svo
fóru þeir eitthvað að skjóta á mig
og þá fór ég að setja hann,“ sagði
Sævar Þór í léttum tón. Sævar Þór
lék ekki fyrsta leik mótsins og náði
síðan ekki að skora í næstu þrem-
ur leikjum.
„Maður fékk aðeins að heyra
það hvort maður væri hættur og
hvort ég væri búinn að týna marka-
nefinu,“ segir Sævar, sem hefur
síðan skorað 11 mörk í 6 leikjum.
„Mörkin hafa oft dreifst meira á
leikina hjá mér en þetta er mjög
skemmtilegt. Á meðan við erum að
hala inn stig er maður ánægður,“
segir Sævar.
Vinnan gengur fyrir
Mörgum þótti það skrýtin ákvörð-
un þegar Sævar Þór ákvað að
hætta að spila í úrvalsdeildinni
og skipti yfir í þá 2. deildarlið Sel-
foss.
„Ég fékk heldur betur að heyra
það þegar ég fór. Ég álít hins vegar
að vinnan gangi fyrir, en ég fékk
vinnu í mínum heimabæ. Ég fór
í aðgerð þetta ár sem ég ákvað
að fara yfir til Selfoss. Svo voru
Fylkismenn byrjaðir að æfa en ég
mátti ekki æfa vegna meiðslanna.
Ég heyrði ekkert í þjálfaranum og
það virtist enginn áhugi á að semja
við mig þannig að ég fór bara að
spila með Selfossi,“ segir Sævar
og hver veit nema hann eigi eftir
að spila aftur í efstu deild – með
Selfossi.
„Það væri algjör draumur að
spila með Selfossi í efstu deild en
við erum með fæturna á jörðinni.
Þetta er ný staða hjá okkur því
við höfum aldrei verið
á toppnum. ÍBV var á
toppnum allt síðasta
sumar þannig að þetta
er nýtt fyrir okkur og
bara gaman,“ segir
Sævar.
Sævar þakkar félög-
um sínum í Selfosslið-
inu fyrir hjálpina og
þá sérstaklega Arilíusi
Marteinssyni sem leikur
við hlið hans í fram-
línunni.
„Við misstum Viðar til
ÍBV en það kom annar
strákur inn, Arilíus.
Hann var frammi með
mér 2007 þegar Viðar
var bara á bekknum
en það skiptist síðan
árið eftir. Hann þekk-
ir þetta allt og er búinn
að eiga stóran þátt í þess-
um mörkum. Ég veit ekki
hvað hann hefur
gefið margar
stoðsend-
ingar á
mig
og
hann
er að
hjálpa mér
mjög mikið.
M aðu r er
oftast með
tvo varnar-
menn á sér og
þá losnar um
hann. Hann er
mjög skapandi
spilari,“ segir
Sævar.
Sævar Þ ór
hefur nú skorað
11 síðustu deild-
armörk Selfoss-
liðsins og hefur
enginn annar leik-
maður skorað fyrir liðið síðustu
514 mínútur. Síðastur til að skora
á undan Sævari var Agnar Bragi
Magnússon, sem kom liðinu í 1-0
á móti Víkingi úr Ólafsvík 5. júní
síðastliðinn.
„Það var einhver að segja mér
að þetta gæti verið Íslandsmet,“
segir Sævar. Það hefur ekki feng-
ist staðfest en er líklegt.
Klaufaskapur að fara ekki upp
Selfyssingar voru á leiðinni upp í
úrvalsdeildina síðasta sumar en
misstu Stjörnumenn upp fyrir sig
á lokasprettinum.
„Við gáfum eftir í blálokin í
fyrra. Það var leiðinda klaufa-
skapur að komast ekki upp. Þetta
var eins og margir þjálfarar segja,
að það hafi verið ákveðið reynslu-
leysi í hópnum, og menn læra af
reynslunni. Það er vonandi að við
höfum lært af þessu í fyrra,“ segir
Sævar, sem er ekkert að missa sig
yfir góðri stöðu liðsins í dag.
„Við erum ekkert farnir að tala
um það ennþá að komast upp í
Pepsi-deildina enda mótið rétt að
verða hálfnað. Það er frábær upp-
gangur á Selfossi og við ætluðum
okkur að ná stöðugleika í deild-
inni. Það er alltaf talað um að
annað árið sé svo erfitt. Við erum
með ákveðin markmið, að ná viss-
um stigafjölda, og þegar við náum
því setjum við okkur ný markmið,“
segir Sævar Þór.
Gulli er mjög heppinn
Gunnlaugur Jónsson tók við þjálf-
un Selfoss fyrir þetta tímabil en
Zoran Miljkovic var með liðið í
fyrra. „Zoran gerði heilmikið og
Gulli tekur við góðu búi. Hann
hefur viðhaldið því og bætt við og
það var mjög jákvætt að fá hann
til Selfoss,“ segir Sævar og bætir
við:
„Gulli er mjög heppinn að hafa
komið inn í svona umhverfi. Hann
er ofan af Skaga þar sem lífið er
fótbolti og eigum við ekki að segja
að það fari að vera þannig á Sel-
fossi,“ segir Sævar. ooj@frettabladid.is
SPURÐUR AÐ ÞVÍ HVORT ÉG VÆRI
BÚINN AÐ TÝNA MARKANEFINU
Sævar Þór hefur skorað ellefu síðustu mörk Selfoss í 1. deildinni og séð til þess öðrum fremur að liðið situr
í toppsætinu. Einhverjir voru þó farnir að stríða honum þegar hann skoraði ekki í fyrstu umferðunum.
MARKAHÆSTUR Sævar Þór Gíslason er
markahæsti leikmaður 1. deildar karla í
sumar en hann hefur skorað 48 mörk í
46 deildarleikjum með Selfossi undan-
farin þrjú sumur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR