Fréttablaðið - 11.07.2009, Page 62

Fréttablaðið - 11.07.2009, Page 62
38 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. mælieining á spennu rafstraums, 6. frá, 8. ílát, 9. óvild, 11. golfáhald, 12. lítið barn, 14. rithöfundur, 16. kusk, 17. spil, 18. munda, 20. tveir eins, 21. högg. LÓÐRÉTT 1. innsigli, 3. kúgun, 4. nennuleysi, 5. þrí, 7. pest, 10. áþekk, 13. hamingja, 15. ryk, 16. umrót, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. volt, 6. af, 8. ker, 9. kal, 11. tí, 12. kríli, 14. skáld, 16. ló, 17. níu, 18. ota, 20. ff, 21. stuð. LÓÐRÉTT: 1. lakk, 3. ok, 4. letilíf, 5. trí, 7. farsótt, 10. lík, 13. lán, 15. duft, 16. los, 19. au. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 News of the World. 2 Heimur hafsins. 3 Vigdísi Grímsdóttur. Þóra Jónsdóttir tölvunar- fræðingur Aldur: 54 Starf: Tölvunarfræðingur er mitt aðalstarf en þess utan sé ég um rafræna viðhaldsbók fyrir húseigendur. Fjölskylda: Ég á mann og þrjú uppkomin börn. Búseta: Reykjavík. Stjörnumerki: Ég er steingeit. Gleðigjafinn og götulistamaðurinn Jójó gerði sér lítið fyrir og dröslaði píanóinu sínu niður í Austurstræti en þar er hann jafnan með gítarinn sinn og spilar fyrir vegfarendur. „Já, ég spila líka á píanó. Roland- rafmagnspíanó,“ segir Jójó og dásamar tíðina. Segir sumarið hafa verið dásam- legt. Hann verður þess ekki var að fólk hengi haus þó efnahagsástandið sé eins og það er. „Alls ekki,“ segir Jójó telur ekk- ert vinnast nema með brosi á vör. Hann grínast og syngur fyrir þá sem eiga leið um Austurstrætið. Þar hefur hann verið árum saman og er með puttann á púls- inum. Sennilega meira að marka Jójó en allar tölur frá Hagstofunni eða Leifsstöð samanlagt. Aldrei hafa verið fleiri túr- istar í Reykjavík en nú að sögn Jójós sem hefur árum saman haft viðurværi sitt af því að skemmta vegfarendum. Gítar- taskan er opin og hatturinn. Þar klingja nú einkum evrur. „Já, mikið af því. Ein- hverjir dollarar. Danir eru gjafmildir og Norsarar. Lítið um Svía en Litháar koma hérna, mikið er um Ítali, Þjóðverja og Hollendinga. Og Kanadamenn auk þess sem Japanir og Kínverjar eru alltaf inni á milli með myndavélarnar. Þeim finnst ég vera voðalega myndarlegur.“ Jójó merkir breytingu á túristum þannig að ekki er eins mikið af partýljónum sem mæta til landsins og venjulega. Þetta er venjulegt fólk sem kemur til að skoða. Venjulega er borgin dauð frá fjög- ur en nú er miðbærinn fullur af fólki frá fjögur til tíu á kvöldin – sem spásserar um og borðar á veitingastöðunum. Þetta eru túristar. - jbg Evrur klingja einkum í hatti Jójós ALDREI FLEIRI TÚRISTAR Í REYKJAVÍK Jójó er með puttann á púlsinum og hann segir aldrei hafa fleiri túristar verið í Reykjavík og nú. Og ætti að vita það. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég var þarna fyrir tveimur vikum, drakk í mig umhverfið og stemn- inguna, svona þrjátíu til fjörutíu árum seinna,“ segir Jón Ólafsson, tónlistarmaður með meiru. Hann var nýverið í smáríkinu Lúxem- borg, á slóðum Vilhjálms Vil- hjálmssonar, einhvers ástsælasta söngvara íslensku þjóðarinnar. Fréttablaðið greindi frá því fyrir margt löngu að Jón hefði verið fenginn til að skrifa ævisögu Vil- hjálms og síðan í febrúar hefur hann eiginlega verið á útopnu að viða að sér heimildum. Hann er nú loks byrjaður að skrifa enda er stefnt að því að gefa bókina út fyrir jól. „Ég held að ég hafi örugglega talað við vel yfir hundrað manns. Sennilega gæti ég talað við fólk sem kannaðist við Vilhjálm til æviloka en þá kæmi þessi bók aldrei út.“ Jón segir Vilhjálm hafi kynnst gríðarlegum fjölda fólks, hann hafi víða sáð fræj- um og haft mikil áhrif á fólk. „Og auðvitað hefur sitthvað komið upp úr dúrnum sem ég vissi ekki. Vil- hjálmur var auð- vitað bara mann- eskja, breysk eins og við hin og það skiptust svo sannarlega á skin og skúrir í hans lífi,“ segir Jón, sem bjóst ekki við því að heimildar- vinnan yrði jafn viðamik- il og raun ber vitni. „Nei, það er alveg á hreinu. Bara að ná í skottið á öllum þess- um flugmönnum sem þekktu Vilhjálm getur verið þrautin þyngri. Mennirnir eru auðvitað minnst heima hjá sér. Ég verð að sæta færis þegar þeir eru í landi því fyrr en varir eru þeir horfn- ir til Hong Kong eða þaðan af lengra.“ Jón segir að bókin eigi eftir að koma á óvart, margt hafi aldrei komið upp á yfirborð- ið og þá prýði bókina myndir sem aldrei hafi áður birst á prenti. Jón Ólafs á slóðum Villa í Lúxemborg VINAMARGUR Jón segir Vilhjálm hafa haft ótrúlega mikil áhrif á fólk í kring- um sig en hann hefur rætt við yfir hundrað manns í tengslum við ævisögu söngvarans. „Þetta er Macbook Pro. Öll tón- listin mín er í henni og hún nýt- ist engum öðrum en mér. Svo er hún líka læst þannig að þeir kom- ast ekkert inn í hana,“ segir Jón Atli Jónsson, plötusnúður og tón- listarmaður. Jón Atli er kominn í hóp lánlausra Íslendinga sem hafa orðið fyrir barðinu á tölvuþjófum en tölvunni hans var stolið úr bíl hans, af gerðinni Volkswagen Golf, sem stóð mannlaus í Nauthólsvík. „Þeir brutu rúðuna og hirtu hana. Þetta er öll tónlistin sem ég nota sem plötusnúðurinn Sexy laser, en hann er ekki mikið „sexy“ núna, án tónlistarinnar.“ Jón Atli hefur kært þjófnaðinn til lögreglunnar og var búinn að hringja í trygg- ingarfélagið sitt. „Ég er hins vegar alveg reiðu búinn að greiða fundarlaun ef tölvan skyldi verða á vegi einhvers sem vildi koma henni í hendurnar á réttmætum eiganda.“ Mikið hefur verið skrif- að og fjallað um innbrotafarald- ur á höfuðborgarsvæðinu síðan bankakreppan reið yfir. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri í Reykja- vík, sagðist ekki hafa tölurnar á hreinu en viðurkenndi að auðg- unarbrotum væri alltaf að fjölga. „Þetta kemur alveg skýrt fram í mánaðarlegri tölfræði frá okkur. Við viljum bara brýna fyrir fólki, enn og aftur, að skilja ekki verð- mæti eftir í bílum því sá staður er sá einfaldasti fyrir þjófa að brjótast inn í, þar er bara ein rúða sem skilur á milli,“ segir Stefán og bætir því við að honum þyki það undarlegt hversu auðvelt það er fyrir þjófana að koma góssinu í verð. „Þetta er auðvitað nokk- uð sem þarf að skoða; það virð- ist vera þýfismarkaður þar sem menn geta keypt illa fengna hluti á ótrúlega lágu verði.“ Undir þetta tekur Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rann- sóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fólk eigi að sýna meiri aðgæslu þegar það yfirgefi bílana sína, það eigi alls ekki að skilja eftir verðmæti sem auðvelt sé að koma í verð eins og síma, tölvur og tónhlöður. „Inn- brotum og þjófnuðum hefur fjölg- að töluvert frá því um seinnipart síðasta árs og það hefur haldist nokkur stöðugleiki í þeim fjölda. Hins vegar hefur dregið aðeins úr þessu nú í sumar. En það er tals- vert meira um innbrot núna en á sama tíma fyrir ári.“ Friðrik segir lögregluna alltaf vera að leggja hald á góss, það finnist stund- um á víðavangi eða í húsleitum í tengslum við önnur mál. Fórnar- lömb þjófa skyldu þó ekki hafa of miklar væntingar. freyrgigja@frettabladid.is JÓN ATLI: TÖLVUNNI STOLIÐ Í NAUTHÓLSVÍK Bíllinn besti staðurinn fyrir þjófa að mati lögreglu GÖGNIN VEL LÆST Á tölvu Jóns Atla eru mikilvæg gögn fyrir hann sem plötusnúð en þau eru læst og gagnast öðrum því ekki. Hann er tilbúinn til þess að greiða fundarlaun finni tölvuna einhver sem vill koma henni til réttmæts eiganda. Eiríkur Örn Norðdahl gæti talist kynlegur kvistur því samhliða því að vera einhver helstur upp- reisnarseggur innan bókmenntageirans og vilja rugga bátum er hann jafnframt nokkuð viðurkenndur sem rithöfundur, þýðandi og ljóðskáld. Sem skýrist kannski af því að það er nánast lært atferli innan lista og viðurkennt að vera uppreisnargjarn. En það hlýtur að teljast viðurkenning í því fólgin fyrir Eirík Örn að hann kemur nú fram á The Scream Literary Festival annað árið í röð. Hátíðin fer fram í Toronto í Kanada, dagana 2. til 13. júlí, og les Eiríkur síðasta daginn á viðburði sem nefnist Scream in High Park. Meðal annarra þátt- takenda á hátíðinni eru Oana Avasilichioaei, Wakefield Brewster, Margaret Christakos og Peter Cullen svo einhverjir séu nefndir. Hjálmtýr Heiðdal er formaður félags kvik- myndagerðarmanna og hann las sér til ánægju mola í blaðinu í gær þess efnis að Þór- hallur Gunnarsson dagskrárstjóri á RÚV ætli að leggja meg- ináherslu á íslenskar heimildarmyndir í vetrardagskránni. En jafnframt nokkurrar furðu því reynsla hans og annarra kollega er að sögn fremur sú að þeir hafi farið bónleiðir til búðar eftir að hafa reynt að selja Þórhalli svo sem eins og eina heimildarmynd. Fréttablaðið greindi í gær frá því að Helgi Björnsson rokkhundur ætlaði að halda tónleika í gær- kveldi samhliða því að halda upp á afmæli sitt í Valhöll. Þau áform tóku hins vegar óvænta stefnu síðdegis í gær en þá spurðist að Valhöll, þessi fornfrægi staður, væri í björtu báli. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvernig Helgi hélt upp á afmæli sitt en Helgi er þekktur stemmningsmaður og ekki í vandræðum með að hrista fram úr erminni gigg með skömmum fyrirvara. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r 250 ÓKEYPIS KROSSGÁTUR NÝ GÁTA Í HVERRI VIKU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.