Fréttablaðið - 29.07.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
29. júlí 2009 — 178. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
GB FERÐIR bjóða upp á ótakmarkað golf á Celtic Manor
Resort á Bretlandi, þar sem Ryder Cup-keppnin verður
haldin á svæðinu á næsta ári. Nánari upplýsingar á www.
gbferdir.is.
„Það heitir sjöþraut sem ég keppi yfirleitt í en í Finnlandi tók ég bara þátt í langstökki og kúlu-varpi,“ segir hin 17 ára Svein-björg aðspurð. Hún er nýkomin heim til Hornafjarðar eftir góða ferð til Finnlands þar sem hún
upplifði meðal annars að afhjúpa ólympíuhring. „Ég gerði það fyrir Íslands hönd,“ segir hún. „Það var mikill heiður fyrir mig en ég átt-aði mig kannski ekki á því fyrr en eftir á. Þarna voru samt margir tignir gesti “ S
sá af Finnlandi var flatlendi og mikill skógur, ólíkt Íslandi.“ Sveinbjörg var nýkomin frá Ítalíu þegar hún hélt til Finnlands. „Ég rétt komst heim til að setja í þvotta-vél áður en ég fór af stað aftur,“ segir hún og lýsir tildrögum Ítalíu-ferðarinnar. „Ég lenti í þriðja sæti í sjöþraut á Norðurlandameistara-mótinu sem var haldið í Kópavogi í sumar og ávann mér þar meðrétt til að keppa á heió
vorum í Brassanone, það er álíka stór bær og Akureyri og er í Ölp-unum, rétt við svissnesku landa-mærin. Ég hef ferðast svolítið um Ítalíu áður en þetta var fallegasti staður sem ég hef komið á þar, með miklum gróðri og þægilegu veður-fari,“ lýsir Sveinbjörg. „Hitinn fór í 25 gráður á daginn og niður í 15 á kvöldin. Mér fannst þægil tkeppa í þ
Afhjúpaði ólympíuhring
Sveinbjörg Zophoníasdóttir er engin kyrrsetukona. Hún æfir frjálsar íþróttir með góðum árangri og var
ekki fyrr komin af heimsmeistaramóti á Ítalíu en hún hélt á ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Finnlandi.
„Ég hef ferðast svolítið um Ítalíu áður en þetta er fallegasti staður sem ég hef komið á þar,“ segir Sveinbjörg um Brassanone á
Ítalíu.
MYND/GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR
,
MISTY
Gó jónusta - fagleg rá gjöfLaugavegi 178, 105 Rsími 551-3366 - www.misty.is
Teg. 10253 - mjúkur og yndislegur, svaka ottur í BCD skálar á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-”
Teg. 42026 - vel fylltur og stækkar þig um númer í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-”
Opið mán-fös kl. 10-18Lokað á laugardögum í sumar
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEÐRIÐ Í DAG
Álfyrirtækin gera skulda-
stöðu þjóðarbúsins verri
Móðurfélög álfyrirtækjanna hafa fært gríðarlegar skuldir á dótturfélög sín á Íslandi. Það skaðar mjög
skuldastöðu landsins og veldur verra mati AGS. Dótturfélög skulda móðurfélögunum 284 milljarða króna.
NÝ SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS UM STUÐNING VIÐ RÍKISSTJÓRNINA
Styðja ríkisstjórnina
43%
57%
Styðja ekki ríkisstjórnina
Gerir loksins sólóplötu
Jóhann G. lætur
drauminn loksins
rætast og gefur
út sólóplötu í
haust.
FÓLK 20
verslunarmannahelgin
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Nr.1 - Sjávarútvegur
„Yfirráð yfir fiskinum snýst því
með beinum hætti um yfirráð
yfir eigin örlögum“, skrifar Eiríkur
Bergmann.
Í DAG 14
RIGNING EYSTRA Í dag verða yfir-
leitt norðaustan 3-10 m/s, stífastur
austan Vatnajökuls. Rigning austan
til einkum eftir hádegi, stöku skúrir
suðvestan til og á Ströndum, ann-
ars yfirleitt þurrt. Hiti 10-16 stig.
VEÐUR 4
13
10
13
12
14
www.europris.is
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
COCA COLA - 33 CL
69
SVEINBJÖRG ZOPHONÍASDÓTTIR
Nýkomin af ólympíu-
hátíð í Finnlandi
• ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Heilbrigð skemmtun
Kotmót
hvítasunnumanna
er haldið í
sextugasta skipti að
Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð.
TÍMAMÓT 17
FÓLK Skráðir keppendur á ungl-
ingalandsmótinu á Sauðárkróki
sem haldið verður um helgina
eru um 1.500
talsins. Það er
langmesti fjöldi
sem stefnir á
slíkt mót frá
upphafi að sögn
Ómars Braga
Stefánssonar,
starfsmanns
UMFÍ.
„Ég hef ekki
séð aðrar eins
tölur áður. Í
fyrra voru
keppendur um eitt þúsund og það
þótti gott,“ segir hann. Varlega
áætlað verða um 10.000 manns
á svæðinu en Ómar segir nóg
pláss á tjaldstæðum. Þarna er
leiktækjagarður fyrir börnin og
skipulagðar gönguferðir fyrir
foreldra, allt ókeypis nema þátt-
takan í mótinu sjálfu.
- gun / sjá Verslunarmannahelgin
Metfjöldi á landsmóti UMFÍ:
Aldrei séð aðrar
eins tölur áður
VERSLUNARMANNAHELGIN
Fjölbreytt dagskrá
um gjörvallt landið
Sérblað um verslunarmannahelgina
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
EFNAHAGSMÁL Móðurfélög álfyrirtækjanna hafa
lánað dótturfélögum sínum hér á landi hundruð
milljarða. Það hefur gert skuldastöðu þjóðarinn-
ar mun lakari.
Í umsögn Seðlabankans vegna Icesave-samn-
inganna kemur fram að í lok mars nemi eigið fé
erlendra aðila í fyrirtækjum hér á landi, eða lán
móðurfélaga til dótturfyrirtækja, tæplega 600
milljörðum. Álfyrirtækin eru langstærstu fyrir-
tækin og eiga stærstan hluta þessarar upphæðar.
Hrein lán frá móðurfélögum til dótturfyr-
irtækja nema um 284 milljörðum króna. Hinn
helmingurinn, um 310 milljarðar, er eigið fé sem
móðurfélögin eiga inni hjá dótturfélögunum.
Þessi lánastarfsemi eykur heildarskuldir
þjóðarbúsins, en hvatinn að henni er skattalegt
umhverfi áliðnaðarins hér, sem er óvenju hag-
stætt. Skuldir álfélaganna er það sem skilur á
milli mats Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins (AGS) á skuldastöðu þjóðarbúsins.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er mat
AGS að heildarskuldir Íslands nemi um 240 pró-
sentum af vergri landsframleiðslu (VLF) 2009, en
samkvæmt mati sjóðsins frá því í nóvember væri
slík skuldastaða ósjálfbær. Seðlabankinn metur
þær um 205 prósent. Það sem skilur á milli eru
þessar skuldir dótturfélaganna, en þær eru um
40 prósent af VLF. Svein Øygard seðlabankastjóri
hefur sagt að bankinn liti svo á að móðurfélögin
stæðu á bak við skuldir dótturfélaga álfyrirtækj-
anna.
Lánin til dótturfélaganna geta borið 8 til 17
prósent vexti. Þar með fer ákveðinn hluti hagn-
aðar álfyrirtækjanna í vaxtagreiðslur af lánum,
sem þýðir að skattstofninn minnkar, þar sem
vaxtakostnaður er ekki skattskyldur.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
segir það vekja athygli hve skuldsett dótturfélög-
in séu gagnvart móðurfélögunum. „Þetta þarf að
skoða nánar, enda er þetta stórt dæmi ef á að telj-
ast með heildarskuldunum. Það hefur bæði áhrif
á afkomu fyrirtækjanna og skattgreiðslur.“ - kóp
ÓMAR BRAGI
STEFÁNSSON
Fer bara á HM
í staðinn
Harpa fótbrotnaði
og missir af
EM í
Finnlandi.
ÍÞRÓTTIR 22
KÖNNUN Um 43 prósent þeirra
sem afstöðu tóku í skoðanakönn-
un Fréttablaðsins, sem gerð var
í gærkvöldi, sögðust styðja sitj-
andi ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna. Alls sögðust 57
prósent ekki styðja stjórnina.
Yfirgnæfandi meirihluti
stuðningsmanna stjórnarand-
stöðuflokkanna styður ekki rík-
isstjórnina. Aðeins sex prósent
kjósenda Sjálfstæðisflokksins
styðja ríkisstjórnina, tíundi hver
kjósandi Framsóknarflokksins,
og tæplega fjórðungur þeirra sem
styðja Borgarahreyfinguna.
Stuðningur við ríkisstjórn-
ina var hins vegar afgerandi hjá
stuðningsmönnum Samfylkingar
og Vinstri grænna. Aðeins fimm
prósent stuðningsmanna Vinstri
grænna sögðust ekki styðja rík-
isstjórnina og átta prósent þeirra
sem styðja Samfylkinguna.
Lítill munur var á afstöðu kynj-
anna, en konur virðast heldur
sáttari við stjórnina. Alls sögð-
ust 45 prósent kvenna styðja rík-
isstjórnina en 41 prósent karla.
Kjósendur á landsbyggðinni
eru heldur neikvæðari í garð rík-
isstjórnarinnar en borgarbúar.
Tæplega 40 prósent landsbyggð-
arfólks sögðust styðja stjórnina,
en tæp 46 prósent íbúa höfuð-
borgarsvæðisins.
Hringt var í 800 manns í gær-
kvöldi. Spurt var; Styður þú
núverandi ríkisstjórn? Alls tóku
rúmlega 87 prósent afstöðu til
spurningarinnar.
Stuðningur við Sjálfstæðis-
flokkinn fer vaxandi, samkvæmt
könnun Fréttablaðsins. Fylgi við
Vinstri græn dalar heldur, en
fylgi annarra flokka breytist lítið
frá kosningum í lok apríl.
- bj / sjá síðu 4
Minnihluti styður ríkisstjórn