Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 6
6 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
UTANRÍKISMÁL „Það er ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að leggja Varnarmálastofnun niður
í núverandi mynd og gert er ráð fyrir því að
sú ákvörðun komi til fullnustu á næsta ári,“
segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra. Árni Þór Sigurðsson, formaður utan-
ríkismálanefndar, sagði í Fréttablaðinu í
gær að stofnunin ætti að hætta um áramót og
hann vildi leggja loftrýmisgæsluna niður.
Össur segist engar athugasemdir gera við
skoðanir Árna Þórs og hann hafi fullt frelsi
til að viðra þær. „Varðandi
skoðanir hans á loftrým-
isgæslu þá hefur engin
ákvörðun verið tekin um
það í ríkisstjórn að hætta
við hana. Menn hafa eink-
um haft horn í síðu hennar
vegna kostnaðar, en okkur
hefur tekist að ná honum
niður.“
Ráðherra vísar í Stolten-
berg-skýrsluna, þar sem
lagðar eru fram hugmynd-
ir um að Norðurlöndin sjái
í sameiningu um loftrýmisgæsluna. Hann
sjái fyrir sér að gerð verði tilraun með það.
Þangað til það verði að veruleika hafi hann
verið fylgjandi því að verulegir þættir í
starfsemi Varnarmálastofnunar verði sam-
einaðir Landhelgisgæslunni. Össur segir
að ekki sé komin dagsetning á það hvenær
stofnunin verður lögð niður, en það verði á
næsta ári.
Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnar-
málastofnunar, sagði í viðtali við RÚV í gær-
morgun að hún teldi ekki koma til greina að
hætta loftrýmisgæslunni, hún tilheyrði því
að vera í Nató. Þá furðaði hún sig á ummæl-
um Árna Þórs um að leggja ætti stofnunina
niður. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ellisif
síðdegis sagði hún að hún tjáði sig ekki um
málið. Varnarmálastofnun heyrir undir utan-
ríkisráðuneytið.
Þegar ummæli Ellisifjar voru borin undir
Össur sagði hann: „Mér finnst það óviðeig-
andi að embættismenn lýsi furðu sinni á
skoðunum stjórnmálamanna, hvar í flokki
sem þeir standa.“
Spurður hvort hann hefði komið þeirri
skoðun sinni á framfæri við Ellisif sagði
hann: „No comment.“
Ríkisendurskoðun hefur tekið til rann-
sóknar kaup Varnarmálastofnunar á tæki
og búnaði fyrir um 40 milljónir, án útboðs.
Ellisif segist fagna því að málið sé til rann-
sóknar. Samkvæmt lögum séu þessi kaup
undanþegin útboðsskyldu. „Við erum mjög
ánægð með þessa úttekt og höfum unnið allt
eftir bókinni.“
Össur vildi ekki tjá sig um rannsóknina.
kolbeinn@frettabladid.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
KÍNA, AP Hu Jintao, forseti Kína,
tjáði sig í gær í fyrsta sinn opin-
berlega um átökin í Xinjiang-hér-
aði í Kína, þar sem Úígúrum lenti
saman við Han-Kínverja.
„Fólk af öllu þjóðerni á að
bera virðingu hvað fyrir öðru,“
sagði forsetinn á ferðalagi sínu
um Yunnan-hérað í gær. „Leyf-
um blómi þjóðerniseiningar að
blómstra skært og fagurlega.“
Ekki vék hann reyndar beint að
átökunum í Xinjiang með þess-
um skáldlegu orðum, en ekki fór á
milli mála hvað hann átti við.
Kínversk yfirvöld hafa viður-
kennt að nærri 200 manns hafi lát-
ist og meira en 1.700 slasast í átök-
unum, sem eru þau verstu í Kína
svo áratugum skiptir.
Stjórnvöld segja flesta hinna
látnu vera Han-Kínverja, en Úígúr-
ar segjast sannfærðir um að miklu
fleiri úr þeirra hópi hafi látið lífið
vegna harkalegra aðgerða hers og
lögreglu í framhaldi af átökun-
um.
Síðan átökin hófust fyrir meira
en þremur vikum hefur að mestu
verið síma- og netsambandslaust,
en takmarkað samband komst á
sums staðar í héraðinu nú í vik-
unni.
Úígúrar, íslömsk þjóð af tyrk-
neskum uppruna, hafa öldum
saman búið í héraðinu en síðan það
var innlimað í Kína árið 1949 hafa
Kínverjar streymt þangað og eru
nú álíka margir og Úígúrar. - gb
Forseti Kína tjáir sig í fyrsta sinn opinberlega um átökin í Xinjang-héraði:
Hvetur fólk til að vera til friðs
Á JARÐSKJÁLFTASLÓÐUM Hu Jintao,
forseti Kína, leggur áherslu á að gefa þá
ímynd af sér að hann láti sér annt um
þjóð sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Gæslan í loftrýmiseftirlitið
Utanríkisráðherra segir að Varnarmálastofnun verði lögð niður í núverandi mynd á næsta ári. Hann vill
sameina hluta hennar Landhelgisgæslunni. Ríkisendurskoðun rannsakar innkaup stofnunarinnar.
ELLISIF TINNA
VÍÐISDÓTTIR
FRANSKIR HERMENN Í KEFLAVÍK Utanríkisráðherra segir að stefna ríkisstjórnarinnar sé að Varnarmálastofnun verði
lögð niður í núverandi mynd á næsta ári. Hvort loftrýmisgæslu verði sinnt áfram sé ekki búið að ákveða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
UMHVERFISMÁL „Við áttum ekki von
á öðru en að þessi skýrsla yrði
neikvæð,“ segir Júlíus Jónsson,
forstjóri HS Orku, um skýrslu
Skipulagsstofnunar vegna fyrir-
hugaðrar stækkunar Reykjanes-
virkjunar, sem er í eigu HS Orku,
sem Fréttablaðið greindi frá á
mánudag.
Í skýrslunni er sagt að samlegð-
aráhrif þeirrar virkjunar sem er
fyrir og fyrirhugaðrar stækk-
unar gætu haft neikvæð áhrif á
gróður, landslag og hraun. Júlíus
segir HS Orku ætla að vinna úr
þessu. Enn sé á áætlun að hefja
framkvæmdir í haust.
Skipulagsstofnun leggur til í
skýrslunni, að ef leyfi fáist frá
Orkustofnun um stækkun virkj-
unarinnar, þurfi að setja skil-
yrði um að séð verði um vöktun
á áhrifum á kríu, gróður og líf-
ríki sjávar.
„Við komum til með að vinna
með leyfis -
veitendum og
v ið mu nu m
hefja viðræð-
ur við Orku-
stofnun á næst-
unni ,“ segir
Júlíus spurður
um hvort fylgt
verði fyrir-
m ælu m u m
vöktun.
Reykjanesvirkjun hefur haft
neikvæð áhrif á ferðaþjónust-
una á Suðurnesjum, samkvæmt
skýrslunni, til dæmis vegna lok-
unar hverasvæða. Hægt væri að
laga þetta með því að opna hvera-
svæðin aftur. En kemur til greina
að HS Orka geri það?
„Það þarf að gera nýjan veg til
að hægt sé að opna en það má ekk-
ert gera nema fá leyfi frá skipu-
lagsyfirvöldum,“ segir Júlíus.
- vsp
Forstjóri HS Orku ætlar að vinna með leyfisveitendum:
Framkvæmdir enn
á dagskrá í haust
JÚLÍUS JÓNSSON
Mér finnst það
óviðeigandi að
embættismenn lýsi furðu
sinni á skoðunum stjórn-
málamanna, hvar í flokki
sem þeir standa.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
BRETLAND Ný kvikmynd sem ein-
ungis kostaði 70 dali, eða um átta
þúsund krónur, í framleiðslu er á
leið í kvikmyndahús í Bretlandi.
Kvikmyndin, sem ber heitið
Colin, fjallar um uppvakninga.
Leikstjóri myndarinnar, hinn
þrítugi Marc Price, segir að
kostnaðurinn hafi verið fólginn
í kaupum á kaffi, tei og nokkr-
um spólum. Price notfærði sér
samskiptasíðuna Facebook til að
auglýsa eftir leikurum í myndina
sem voru tilbúnir að gefa vinnu
sína. Alls tók gerð myndarinnar
átján mánuði og starfaði Price á
tímanum sem leigubílstjóri. - bþa
Er á leið í kvikmyndahús:
Kvikmyndin
kostaði 70 dali
í framleiðslu
UPPVAKNINGUR Í EFTIRFÖR Eflaust
hefur gerð uppvakningsins á þessari
mynd kostað meira en sú fjárhæð sem
var notuð til gerðar á kvikmyndinni
Colin sem nú er sýnd í breskum kvik-
myndahúsum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
EFNAHAGSMÁL Vinnuhópur á
vegum rannsóknarnefndar sem
fjallar um siðferðismál í aðdrag-
anda hrunsins hefur boðað rit-
stjóra íslensku dagblaðanna á
sinn fund til að ræða umfjöllun
fjölmiðla í aðdraganda hrunsins.
„Við erum að skoða aðdrag-
anda hrunsins í stærra samhengi
og velta fyrir okkur hlutverki
fjölmiðla í lýðræðissamfélagi,“
segir Vilhjálmur Árnason, for-
maður hópsins.
Þegar hefur verið rætt við ein-
hverja ritstjóra, en aðrir eru enn
eftir, segir Vilhjálmur. Að auki
hefur hópurinn rætt við frétta-
stjóra Ríkissjónvarpsins. - bj
Siðfræðingar tala við ritstjóra:
Skoða hlutverk
fjölmiðlanna
STJÓRNMÁL „Það kemur mér ekk-
ert á óvart að það sé sjónarmið
hans að það sé ekki brýnt mál að
fara í þessar viðræður,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður VG
eftir ríkisstjórnarfund í gær, um
ummæli Jóns Bjarnasonar, sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, um að fresta skuli aðildar-
viðræðum að ESB.
„Jón hefur sagt það skýrt að
hann mun sem ráðherra vinna af
fagmennsku og gæta hagsmuna
sinna málaflokka,“ segir Stein-
grímur og segir þessi ummæli
engu breyta, Jón muni rækja
sínar embættisskyldur af sam-
viskusemi. - vsp
Steingrímur J. Sigfússon:
Orð Jóns koma
ekki á óvart
Grunaðir um hryðjuverk
Sjö Bandaríkjamenn hafa verið hand-
teknir í Norður-Karólínuríki grunaðir
um undirbúning að hryðjuverkum.
Þeir hafa verið ákærðir fyrir samsæri
um ýmiss konar árásir erlendis og
stuðning við hryðjuverkamenn.
BANDARÍKIN
Hefur þú keyrt undir áhrifum
áfengis?
Já 53%
Nei 47%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú í ferðalag um verslun-
armannahelgina?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN