Fréttablaðið - 29.07.2009, Qupperneq 8
8 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
PENINGAMÁL Líklegast er að fyr-
irgreiðsla frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum (AGS) frestist fram til
loka ágúst. Taka á málefni Íslands
fyrir hjá AGS næsta mánudag, 3.
ágúst. Stjórnarliðar segja ástæðu
frestunarinnar vera að ekki hafi
náðst að klára Icesave-málið, sem
ekki verður rætt fyrr en í fyrsta
lagi 4. ágúst. Aðrar heimildir
Fréttablaðsins herma að ástæð-
an sé líklega sú að ekki sé búið að
ljúka endurfjármögnun bankanna,
sem ljúka átti í febrúar. Eftir fund
AGS 3. ágúst fer sjóðurinn í hlé til
ágústloka.
En setur AGS það skilyrði að
Icesave-málinu verði lokið? „Það
liggur í loftinu að Icesave er aðal-
hindrunin í veginum og þá verða
menn bara að horfast í augu við
það,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra.
Samkomulag náðist milli
Íslands og AGS í nóvember um 2,1
milljarðs dollara lán til Íslands,
sem er um 265 milljarðar króna.
Fyrsti hluti lánsins var greidd-
ur út í nóvember og átti afgang-
urinn að greiðast í átta afborgun-
um á þriggja mánaða fresti. Engar
greiðslur hafa borist frá því í nóv-
ember en fyrirgreiðslur, sem og
endurskoðun áætlunar AGS og
Íslands, áttu að vera í febrúar og
maí en hefur verið frestað tvisv-
ar.
„Eins og stendur þá vonum við
enn að fyrirgreiðslan geti átt sér
stað. Eitt er hins vegar víst að allt
er klárt af hálfu íslenskra stjórn-
valda og það höfum við fengið
staðfest hjá AGS. Það er þá eitt-
hvað annað en það sem snertir
íslensk stjórnvöld sem kæmi í veg
fyrir málið,“ segir Steingrímur.
Drátturinn sem yrði ef ekki væri
hægt að ljúka þessu á mánudag er
bagalegur, að mati Steingríms því
AGS fari í frí til loka ágúst.
Guðbjartur Hannesson, for-
maður fjárlaganefndar, segir
nefndina vinna að Icesave-samn-
ingnum óháð samvinnu við AGS.
„Við gerðum okkur grein fyrir að
3. ágúst væri umsagnardagur en
ákváðum að taka okkur þann tíma
sem við þurfum í þetta,“ segir
Guðbjartur.
Tryggvi Þór Herbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og full-
trúi í efnahags- og skattanefnd,
segir það skipta litlu hvað peninga
varðar ef áætluninni seinkar. Þeir
peningar myndu ekki kippa öllu í
liðinn. „Þetta er hins vegar baga-
legt upp á orðspor og annað slíkt
að þetta dragist í sífellu,“ segir
Tryggvi.
Ekki náðist í Franek Rozwad-
owski, fulltrúa AGS á Íslandi, við
vinnslu fréttarinnar í gær.
vidir@frettabladid.is
SENDINEFND AGS Heildarlánveiting AGS til Íslands nemur 2,1 milljarðs dollara. Í nóv-
ember voru greiddar 827 milljónir dala og átti afgangurinn að greiðast í átta jöfnum
greiðslum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Hvaða tveir góðkunnir út-
varps- og sjónvarpsmenn hafa
ráðið sig til starfa hjá útvarps-
stöðinni Kaninn?
2. Eftir hvern er bókin Aftur til
kreppuhagfræði sem nýlega var
gefin út á íslensku?
3. Í hvaða landi Evrópusam-
bandsins er mest atvinnuleysi?
SVÖR ERU Á SÍÐU 26
ÍÞRÓTTIR „Ef ég á að segja alveg eins
og er þá bjuggumst við allt eins við
svona góðum árangri, því íslensku
keppendurnir eru mjög sterkir,“
segir Jón Þór Þorleifsson, stjórn-
armaður í Íþróttafélaginu Styrmi,
sem þessa dagana tekur þátt í Out-
games-leikunum í Kaupmannahöfn.
Fyrstu tveir keppnisdagar mótsins
hafa skilað félögum Styrmis fernum
gullverðlaunum og einum silfur-
verðlaunum í sundi, auk þess sem
knattspyrnulið félagsins er komið
upp úr riðli sínum í mótinu. Out-
games-leikarnir hafa verið nefnd-
ir Ólympíuleikar samkynhneigðs
íþróttafólks. Í ár taka yfir 5.500 full-
trúar frá 95 löndum þátt í mótinu.
Að sögn Jóns Þórs ríkir góð stemn-
ing meðal íslensku keppendanna.
„Opnunarhátíðin á laugardaginn,
þar sem allir keppendurnir gengu
eftir sýningarpalli, var rosaleg. Þá
kom sér vel að hafa fylgst með sjón-
varpsþáttunum „America‘s Next Top
Model,“ þar sem slík list er kennd í
þaula. Einnig kemur áhugi kepp-
endanna á þáttunum „How to Look
Good Naked“ sér vel, því við erum
svo fáklædd hérna í lauginni,“ segir
Jón Þór, sem keppir fyrir sundlið
Styrmis.
Leikarnir standa fram á laugar-
dag. „Þeim lýkur með því að hald-
ið verður upp á Gay Pride-daginn
í Danmörku. Þeir voru að monta
sig af því að það kæmu líklega
15.000 manns á hátíðina. Við hlóg-
um nú bara að því, enda vön því að
um 60.000 manns sæki hátíðina á
Íslandi,“ segir Jón Þór Þorleifsson.
- kg
Samkynhneigðir Íslendingar byrja vel á Outgames í Kaupmannahöfn:
Fjögur gull fyrstu tvo dagana
ÁRANGUR Þau Hafdís Erla Hafsteins-
dóttir, sem hlaut gullverðlaun í 200
metra bringu-, skrið- og fjórsundi, og
Jón Örvar Gestsson, sem vann til silfur-
verðlauna í 200 metra bringusundi, voru
ánægð með árangurinn.
MYND/JÓN ÞÓR ÞORLEIFSSON
PERSÓNUVERND Fiskistofa ætti
ekki að hvetja til þess á heima-
síðu stofnunarinnar að almenn-
ingur sendi nafnlausar ábend-
ingar um meint brot á reglum.
Þetta er niðurstaða Persónu-
verndar vegna fyrirspurnar
Fiskistofu.
Á vefsíðum Fjármálaeftirlits-
ins, Samkeppnisstofnunar og
skattrannsóknarstjóra ríkisins
er almenningur hvattur til að
senda ábendingar um meint
lögbrot, undir nafni eða nafn-
laust.
Fiskistofa íhugaði að fara
sömu leið, en Persónuvernd segir
að slíkt eigi að heyra til algerra
undantekninga. Stofnunin ætti
að notast við aðrar aðferðir. - bj
Ekki nafnlausar ábendingar:
Fiskistofa fari
aðrar leiðir
BANDARÍKIN Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, fundaði í
gær með Sepp Blatter, forseta
Alþjóðaknattspyrnusambandsins
(FIFA), í Hvíta húsinu í Washing-
ton. Á fund-
inum hvatti
Obama Blatt-
er til að beita
sér fyrir því að
heimsmeistara-
keppnin í knatt-
spyrnu (HM)
árið 2018 verði
haldin í Banda-
ríkjunum.
Blatter færði
Obama tvo fótbolta sem notað-
ir voru nýverið í Álfukeppninni
svokölluðu. Að fundinum loknum
sagði Obama að dætur hans yrðu
eflaust ánægðar með boltana,
en þær æfa báðar knattspyrnu.
Blatter sagði að Obama hefði
haldið öðrum boltanum þrisvar
sinnum á lofti og svo skallað
hann til sín.
Ellefu lönd hafa lýst yfir áhuga
á að halda HM 2018. - kg
Forseti FIFA í Hvíta húsinu:
Obama vill HM
vestur um haf
BARACK OBAMA
STJÓRNSÝSLA Gjalddagar nefskatts
Ríkisútvarpsins, sem er 17.200
krónur, verða nú þrír í stað eins.
Verða þeir 1. ágúst, 1. október og
1. nóvember. Gjalddagi lögaðila
verður aðeins einn, 1. nóvember.
Þetta var samþykkt sem lög frá
Alþingi á föstudag.
Upphaflegi gjalddaginn átti
að vera 1. ágúst næstkomandi.
Fjölgun gjalddaga var gert „í
ljósi breyttra efnahagsaðstæðna
og í þágu greiðenda gjaldsins“,
eins og segir í athugasemdum við
frumvarpið. Áætlað er að útgjöld
ríkissjóðs gætu aukist um níu
milljónir króna vegna aukins
kostnaðar við innheimtu. - vsp
Gjalddagar nefskatts þrír:
Um níu milljón-
um dýrara
EFNAHAGSMÁL Alls nemur álagning
tekjuskatts og útsvars 221,3 millj-
örðum króna árið 2008 og hækkar
um 3,6 prósent á milli ára. Heild-
arfjöldi framteljanda jókst um eitt
prósent sem er mun minni fjölg-
un en undanfarin ár. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu.
Álagður fjármagnstekjuskattur
dróst saman um tuttugu prósent
á milli ára þrátt fyrir að þeir sem
greiða fjármagnstekjuskatt séu
nær tvöfalt fleiri. Samkvæmt til-
kynningu ráðuneytisins segir að
helsta ástæða fjölgunarinnar sé
sú að fjármálastofnunum sé gert
skylt að senda upplýsingar óum-
beðið til skattyfirvalda.
Mikill samdráttur hefur orðið
í greiðslu fjármagnstekna vegna
sölu á hlutabréfum. Tekjur námu
58 prósent af öllum fjármagns-
tekjum árið 2007 en eru nú tólf
prósent. Mesta breytingin á fram-
töldum tekjum er af innstæðum
í bönkum en þær eru nú 39 pró-
sent af fjármagnstekjum en voru
tíu prósent. Útsvar til sveitarfé-
laga nam alls 108,7 milljörðum
króna og hækkar um 6,7 prósent
frá fyrra ári.
Í ár verður innheimt í fyrsta
skipti útvarpsgjald sem nemur
17.200 krónum á hvern einstakling.
Tekjur ríkisins af gjaldinu nema
3,2 milljörðum króna og er gjaldið
lagt á 187.000 einstaklinga á aldr-
inum 16 til 69 ára. - bþa
Álagður fjármagnstekjuskattur dróst saman þrátt fyrir fjölgun greiðenda:
Álagning tekjuskatts hækkar
SKATTTEKJUR RÍKISINS AUKAST Í ár
er í fyrsta skipti innheimt útvarpsgjald
að upphæð 17.200 krónum á hvern
framteljanda. Gjaldið skilar um 3,2
milljörðum í ríkiskassann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN, AP Dómsmálanefnd
öldungadeildar Bandaríkja-
þings samþykkti í gær tilnefn-
ingu Baracks Obama forseta á
Soniu Sotom-
ayor í Hæsta-
rétt Bandaríkj-
anna.
Þar með
fer málið til
afgreiðslu í
öldungadeild
þingsins, sem
þarf að stað-
festa tilnefn-
inguna áður en Sotomayor getur
tekið við embætti hæstaréttar-
dómara.
Dómsmálanefndin var klofin í
afstöðu sinni. Sex af sjö repúblik-
önum greiddu atkvæði gegn henni
á móti þrettán demókrötum.
Sotomayor verður fyrsta konan
af rómönskum uppruna sem tekur
sæti í æðsta dómstól Bandaríkj-
anna. - gb
Nefndin féllst á Sotomayor:
Málið fer nú til
öldungadeildar
LINDSEY GRAHAM
STJÓRNSÝSLA Álagningarseðl-
ar verða aðgengilegir á vefnum
skattur.is frá klukkan fjögur í
dag.
Álagningarseðlarnir verða svo
bornir út á morgun til þeirra sem
ekki afþökkuðu það. Með örfáum
undantekningum verða inneign-
ir lagðar inn á bankareikninga,
eða greiddar út með ávísunum, á
föstudag. Til að nálgast álagning-
arseðil þarf að hafa kennitölu og
veflykil. Óska má eftir veflykli á
skattur.is. - þeb
Ríkisskattstjóri:
Álagningarseðl-
ar birtir í dag
Lán frá AGS dregst
líklega til loka ágúst
Fjármálaráðherra segir Icesave aðalhindrunina fyrir því að fyrirgreiðsla fáist
frá AGS á mánudag. Ef ekki tekst að afgreiða mál Íslands þá frestast afgreiðslan
til loka ágúst. Þingmaður segir frestunina bagalega fyrir orðspor landsins.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
TRYGGVI ÞÓR HER-
BERTSSON
Mikil aðsókn í líkamsrækt
Yfir hundrað manns keyptu sér
árskort í líkamsrækt daginn sem
líkamsræktarstöð var opnuð á Hellu í
síðustu viku. Enn fleiri hafa svo keypt
kort síðan þá. Um 700 íbúar eru á
Hellu.
SUÐURLAND
VEISTU SVARIÐ?