Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 10
10 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
FJÖLDI SKRÁÐRA AFBROTA HJÁ LÖGREGLU
HraðakstursbrotÁfengislagabrot
Fíkniefnabrot
Ölvun við akstur
Innbrot
Afbrot fyrstu sex mánuði hvers árs:
2009200820072006
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
2009200820072006
20.000
15.000
10.000
Eignaspjöll
Þjófnaðarbrot
-60%
-40%
-20%
0%
20%
40%
60%
80%
Þj
óf
na
ða
rb
ro
t
In
nb
ro
t
Ei
gn
as
pj
öl
l
H
ra
ða
ks
tu
rs
br
ot
Áf
en
gi
sl
ag
ab
ro
t
Ö
lv
un
v
ið
a
ks
tu
r
Fí
kn
ie
fn
ab
ro
t
+66,9%
+48,9%
+29,5%
-53,7%
-28,6% -29,8%
+13,4%
Þróun afbrota milli áranna 2006 til 2009:
LÖGREGLUMÁL Skortur á umferðar-
eftirliti lögreglu getur haft slæm
áhrif á íslenska umferðarmenn-
ingu, segir Helgi Gunnlaugsson
afbrotafræðingur. Hann segir
skiljanlegt að frumkvæðisvinna
lögreglu verði útundan í erfiðu
árferði, en sú breyting verði að
ganga til baka sem fyrst.
Umtalsverð aukning hefur verið
á afbrotum sem almenningur til-
kynnir til lögreglu á síðustu árum,
en á sama tíma fækkar brotum
sem uppgötvast með frumkvæðis-
vinnu lögreglu, til dæmis með
umferðareftirliti.
Þetta má lesa úr samantekt
Fréttablaðsins á upplýsingum um
afbrotatíðni frá Ríkislögreglu-
stjóra. Miðað er við samanlagðan
fjölda afbrota á fyrstu sex mán-
uðum hvers árs til að tölurnar séu
samanburðarhæfar við fyrstu sex
mánuði ársins í ár.
„Það getur verið áhyggjuefni ef
umferðarlagabrotin eru látin sitja
á hakanum, það skilar sér út í sam-
félagið þegar ökumenn átta sig á
að lögreglan er ekki jafn mikið á
vaktinni og hún hefur verið,“ segir
Helgi.
Slíkt tekur þó tíma, jafnvel
nokkur ár, og því segir Helgi að
vissu leyti skiljanlegt að lögregl-
an bregðist við þegar þröngt sé í
búi með því að draga úr eftirliti
með hraðakstri, ölvunarakstri og
öðrum umferðarlagabrotum.
Helgi segir fækkun á skráðum
ölvunarakstursbrotum ekki vís-
bendingu um að ökumenn aki síður
undir áhrifum. Þetta sé þvert á
móti skýrt dæmi um að lögregla
hafi ekki tíma og mannskap til að
sinna eftirlitinu jafn vel og áður.
„Þetta er dæmi um áherslu-
breytingu sem lögreglan verður að
gera í ljósi aðstæðna,“ segir Helgi.
Fækkun lögreglumanna og fjölgun
verkefna hafi augljóslega áhrif.
Þjófnuðum, innbrotum og eigna-
spjöllum hefur fjölgað á undan-
förnum árum. Það getur haft
nokkurs konar samlegðaráhrif
við fjárskortinn, og valdið því að
lögregla hefur enn minni tíma til
að sinna frumkvæðisvinnu, enda
áhersla á að forgangsraða málum
eftir mikilvægi.
Fíkniefnabrotum hefur fækk-
að nokkuð og segir Helgi líklegt
að ástæðan sé blanda af fjárskorti
og því að stærri mál sem upp hafi
komið taki tíma frá frumkvæðis-
vinnu.
Einnig geti verið um áherslu-
breytingu að ræða hjá lögreglu,
þannig að meiri áhersla sé lögð á
að stöðva innflutning og dreifingu
á fíkniefnum, en minni áhersla á
að handtaka fíkniefnaneytendur,
segir Helgi. brjann@frettabladid.is
Dregið úr frumkvæðisvinnu
Sífellt færri brot sem krefjast frumkvæðis eru skráð í bækur lögreglu. Minni áhersla er lögð á umferðar-
eftirlit og smærri fíkniefnamál í ljósi aðstæðna segir afbrotafræðingur. Má ekki verða viðvarandi ástand.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Öll helstu merkin í tjöldum: TNF, High Peak, Mountain Equipment og Fjallräven.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
85
2
07
/0
9
Tjaldaúrvalið er í Tjaldalandi
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2 ÁL
F
H
E
IM
A
R
Tjaldaland
Uppsett tjöld
til sýnis
alla virka daga
frá kl. 10-17.
LÆKKAÐ VERÐ LÆKKAÐ VERÐ
High Peak Ancona 5
Rúmgott 5 manna fjölskyldutjald.
Vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm.
Verð 52.990 kr.
LÆKKAÐ VERÐ:36.990 kr.
High Peak Como 4
Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli.
Stöðugt í vindi. Vatnsvörn 2.000 mm.
Yfirlímdir saumar. Hæð 190 cm.
Verð 29.990 kr.
LÆKKAÐ VERÐ:19.990 kr.
Einnig fáanlegt 6 manna, lækkað verð 27.990 kr.
High Peak Nevada
Sígilt 3 manna kúlutjald með fortjaldi.
Vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Hæð 120 cm.
Verð 16.990 kr.
LÆKKAÐ VERÐ:11.890 kr.
HENDUR Í HÆTTU Baráttufólk fyrir rétt-
indum barna lýstu megnri óánægju
sinni á því sem þarna fer fram, þótt
skólayfirvöld og foreldrar í bænum
Villupuram á Indlandi hafi skipulagt
þessa „sýningu hugrekkis“, þar sem
ekið er á mótorhjóli yfir hendur barna.
NORDICPHOTOS/AFP
NÝJA-SJÁLAND, AP Dómstóll á Nýja-
Sjálandi taldi ekki ástæðu til að
taka mark á málsvörn konu, sem
var handtekin fyrir ölvun við
akstur nýverið.
Hún sagðist hafa verið að ná
sér af svínaflensu þegar lögregl-
an hafði afskipti af akstri hennar.
Hún viðurkenndi að hafa drukk-
ið þrjú glös af víni, en sagði þau
hafa haft meiri áhrif á sig vegna
svínaflensunnar en efni stæðu
annars til.
Dómarinn tók ekki mark á
þessu og dæmdi henni 360 dala
sekt og hálfs árs sviptingu öku-
leyfis. - gb
Ölvaður ökumaður:
Kenndi svína-
flensunni um
SVEITARSTJÓRNARMÁL Málin hafa
orðið enn snúnari á Álftanesi
eftir að Margrét Jónsdóttir, bæj-
arstjóri Á-lista, sagði sig úr Á-
listanum í gær þar sem hún taldi
forsendur fyrir áframhaldandi
samstarfi brostnar. Hafi hún
lengi deilt á vinnubrögð Sigurðar
Magnússonar, bæjarstjóra fyrir
Á-lista.
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að viðræður væru milli þriggja
bæjarfulltrúa D-lista og jafn-
margra frá Á-lista um myndun
nýs meirihluta. Það myndi skilja
einn mann, Kristján Sveinbjörns-
son, sem var bæjarfulltrúi fyrir
Á-lista, eftir í minnihluta. Nú er
svo komið á daginn að Á-listinn
er þrískiptur. D-listinn hefur því
í hendi sér að mynda meirihluta-
samstarf þar sem Á-listinn þver-
tekur fyrir samstarf við Kristján
og Margrét gerir slíkt hið sama.
„Við erum að reyna að þreifa
fyrir okkur í þessum málum.
Þessi staða er auðvitað óviðun-
andi þar sem bæjarstjórinn er
umboðslaus. Íbúanna vegna má
þetta ekki vera í einhverju limb-
ói,“ segir Guðmundur G. Gunn-
arsson, oddviti D-lista í bæjar-
stjórn Álftaness.
Hann segir D-lista hafa rætt
við Margréti um hugsanlegt sam-
starf en það muni allt ráðast á
næstu dögum. Gunnar vill halda
bæjarstjórnarfund í dag til að
koma umboðslausum bæjarstjór-
anum frá. - vsp
Á-listinn á Álftanesi er orðinn þrískiptur og erfitt er að mynda meirihluta:
Bæjarstjórinn er umboðslaus
GUÐMUNDUR G. GUNNARSSON
Bæjarstjórinn segir að staða mála sé
óviðunandi.
MATVÆLI Ora ákvað í gær að inn-
kalla kjötbollur í brúnni sósu í
850 gramma dósum í varúðar-
skyni vegna hugsanlegs fram-
leiðslugalla. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Í tilkynningunni eru þeir sem
hafa í fórum sínum stærri dós-
ina af Ora-kjötbollum í brúnni
sósu beðnir um að skila henni til
næstu verslunar við fyrsta tæki-
færi. - kg
Hugsanlegur framleiðslugalli:
Ora-kjötbollur
innkallaðar
SAMFÉLAGSMÁL Alls var 4,1
milljarður greiddur til lífeyris-
þega umfram rétt viðkomandi til
greiðslna árið 2008. Þeir sem
fengu ofgreitt verða krafðir um
endurgreiðslu. Þetta kemur fram
á vef Tryggingastofnunar.
Um 700 milljónir króna voru
vangreiddar og eiga um 9.000
lífeyrisþegar inneign hjá
Tryggingastofnun, sem greidd
verður út á næstu dögum.
Heildarfjöldi lífeyrisþega er
tæplega 46 þúsund, þar af eru um
16 þúsund örorku- og endurhæf-
ingarlífeyrisþegar og 30 þúsund
ellilífeyrisþegar.
- bþa
Greiðslur til lífeyrisþega:
Ofgreiddu
4,1 milljarð
ÍTALÍA Sænskt par sem hugðist
verja rómantískum kvöldstund-
um á eynni Capri við strendur
Ítalíu endaði í iðnaðarhverfinu
Carpi vegna einfaldrar stafsetn-
ingarvillu.
Parið notaði GPS staðsetning-
artæki til að rata um Ítalíu og
þegar til stóð að halda til eyj-
arinnar Capri sló parið fyrir
mistök inn Carpi sem er iðnað-
arhverfi í um 650 kílómetra fjar-
lægð frá eyjunni. Upp komst um
stafsetningarvillu parsins þegar
þau spurðu á upplýsingamiðstöð
ferðamanna í Carpi hvar hinn
fræga Blue Grotto-helli væri að
finna sem er við eyjuna Capri.
Parið mun heldur ekki hafa
áttað sig á því að þau þyrftu að
taka bát eða fara yfir brú til að
komast til eyjarinnar. - bþa
Stafsetning skiptir máli:
Enduðu í Carpi
í stað Capri
FAGURT ÚTSÝNI Engum sögum fer af
fegurð iðnaðarhverfisins Carpi en ljóst
er að fegurð eyjarinnar Capri er óum-
deild.