Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 18
29. JÚLÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● verslunarmannahelgin
Margir leggja land undir fót
um helgina. Haft var sam-
band við skipuleggjendur
nokkurra hátíða og kannað
hversu mörgum búist væri við,
hvernig gæslu verður háttað
og umferðareftirliti á landinu.
„Umferðareftirlitið verður með
hefðbundnum hætti nema reynt
verður að auka það frá embætt-
inu okkar,“ segir Jónína Sigurðar-
dóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá Ríkislögreglustjóra. „Sérstök
áhersla er lögð á Suðurlandsveg-
inn og Vesturlandsveginn. Svo fer
það eftir því hvert straumurinn
liggur.“
Birgi Guðjónssyni, formanni
Þjóðhátíðarnefndar, sýnist hátíð-
in ætla að stefna í eina stærstu
Þjóðhátíð sem haldin hefur verið
í Eyjum og ástæðuna rekur hann
til þess að hátíðin er að festa sig í
sessi í hugum fólks. „Margir koma
ár eftir ár. Ég held við séum á réttri
leið með hátíðina sjálfa og við Vest-
mannaeyingar erum tilbúnir til að
taka á móti fullt af fólki.“
Aðspurður segir Birgir að
gæslan verði betri en í fyrra. „Við
fjölgum í gæslunni. Fólk verður
öruggara og þá fer betur um það.
Við erum alltaf að reyna að bæta
hátíðina,“ útskýrir hann.
„Helsti kosturinn við hátíðina
okkar er að við rukkum ekki inn á
svæðið sjálft. Við höfum því ekki
beina tölu á hátíðargestum,“ segir
Höskuldur Sæmundsson, einn af
skipuleggjendum Neistaflugs í
Neskaupstað, spurður um fjölda
áætlaðra gesta á hátíðinni.
Höskuldur segir að erfitt sé að
segja til um það hvort fjöldi gesta
aukist í ár. „Við höfum fundið
fyrir því á Austfjörðum að meiri
ferðamannastraumur er í ár en
við höfum fengið fyrirspurnir alls
staðar af landinu. Við erum bjart-
sýn og jákvæð.“ Spurður út í gæslu
yfir hátíðardagana segir Höskuld-
ur: „Björgunarsveit staðarins og
íþróttafélögin koma að þessu að
einhverju leyti. Hér verður líka
sjúkragæsla og næturvöktun.“
Margrét Blöndal, verkefnastjóri
Einnar með öllu á Akureyri, segir
erfitt að áætla fjölda gesta á há-
tíðinni. „Við höfum eiginlega bara
ekki hugmynd um það. Við ætlum
að gera eins og í fyrra að telja
bros en ekki fólk. Við leggjum upp
með að allir sem hér eru og hing-
að koma njóti þess,“ segir Margrét
sem á von á brottfluttum Akureyr-
ingum á Eina með öllu.
Margrét segir að gæsla hátíðar-
innar sé mjög hefðbundin. „Marg-
ar helgar er alveg óskaplega margt
fólk hér. Við erum orðin flink í
að taka á móti tíu til tólf þúsund
manns án þess að allt fari á hvolf.
Við verðum með sjúkraflutninga-
menn sem fara um og eiga magn-
yl í vasanum og plástur á bágtið.
Allir sem að þessu koma dansa í
takt.“ - mmf
Telja brosin á Akureyri
Birgir Guðjónsson segir að fjölgað verði í gæslunni í Vestmannaeyjum svo fólki finnist það öruggara.
HVERJIR VERÐA HVAR?
HRAFNA IDOLSTJARNA: „Ég ætla að vera á Neistaflugi í Neskaupstað með
hljómsveitinni sem heitir enn sem komið er bara Hrafna og hljómsveit. Í henni
eru strákar frá Neskaupstað og það hefur verið nóg að gera hjá okkur að
undanförnu við æfingar. Ég bý á Teigarhorni við Djúpavog og keyri á milli. Er
svona tvo tíma hvora leið og syng í bílnum og æfi mig.“
MAGNI ÁSGEIRSSON: „Við í hljóm-
sveitinni Á móti sól ætlum að vera á
Flúðum á fimmtudags- og föstudags-
kvöld og skella okkur svo að Kirkju-
bæjarklaustri á laugardag þannig
að við verðum eitthvað að rúnta um
Suðurlandið. Síðustu átta ár höfum
við verið í Eyjum um þessa helgi og
nú ætlum við að kanna hvort þetta sé
verslunarmannahelgi eða Þjóðhátíð.“
INGÓLFUR ÞÓRARINSSON: „Ég verð
með Veðurguðunum að spila í Eyjum
á föstudagskvöldið. Svo fara nokkrir
úr grúppunni í ferðalag en ég verð
eftir í Eyjum og held áfram að vera
hress þar og skemmta mér.“
BJÖRGVIN FRANS: „Ég verð á
þremur stöðum um helgina. Eyjum
á laugardag, Sólheimum í Grímsnesi
á sunnudag og á sunnudagskvöldið
í Vatnaskógi. Við Jói G. úr Stundinni
okkar verðum með atriði sem við
prufukeyrðum í vor og gafst vel.“
EYÞÓR INGI: „Ég verð svolítið
á flakki. Verð á Kaffi Akureyri á
fimmtudeginum með trúbastemn-
ingu ásamt Andra Ívarssyni gítarleik-
ara. Svo verð ég ásamt hljómsveit-
inni Appoló frá Ísafirði á Neistaflugi
í Neskaupstað á föstudagskvöldið.
Á laugardeginum verð ég á torginu
á Akureyri og á sunnudeginum
með Stuðmönnum í Fjölskyldu-og
húsdýragarðinum og líka með Deep
Purple coverbandi á Jack Live-hátíð-
inni við Dillon.“
Ekki er rukkað inn á svæðið hjá Neistaflugi í Neskaupstað. MYND/ÚR EINKASAFNI
Á síðasta ári var níunda áratugs stemn-
ing á Akureyri en nú verður það ABBA.
MYND/ÞÓRHALLUR PEDROMYNDIR
Ekki er nauðsynlegt að æða um
langan veg til að gera sér dagamun
um verslunarmannahelgina. Sveinn
Sigurbergsson, kaupmaður í Fjarð-
arkaupum í Hafnarfirði, gerir sér
grein fyrir því. „Hugmyndin er að
vera heima við en fara í styttri ferð-
ir,“ segir hann og upplýsir að mik-
ill golfáhugi sé í fjölskyldunni. „Við
erum fjögur sem spilum og stefnum
að því að skreppa á Öndverðarnes-
völlinn í Grímsnesi,“ segir hann.
Verslunin Fjarðarkaup er lokuð
um verslunarmannahelgina, ein af
fáum stórmörkuðum. „Við gefum
starfsfólkinu að sjálfsögðu frí á
löglegum frídegi verslunarmanna,“
segir Sveinn. „Undanfarin ár höfum
við líka gefið frí á laugardeginum.
Það hefur mælst vel fyrir og við-
skiptavinir okkar skilja það vel.“
- gun Sveinn ætlar að njóta verslunarfrísins með fjölskyldunni á golfvellinum.
Fríhelgin fer í fjölskyldusport
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I