Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 34

Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 34
22 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Handknattleikskappinn Einar Hólmgeirsson hjá Grosswallstadt í Þýskalandi hefur undanfarið verið frá vegna meiðsla á hné en hann fór fyrir skömmu í sína aðra aðgerð á tólf vikum og í þetta skiptið hjá öðrum lækni en þeim sem fyrr skar. Einar er vongóður um að fá nú loks bót meina sinna eftir að fyrri aðgerðin skilaði litlum bata. „Þetta gekk bara ágætlega núna, vona ég. Það eru tólf vikur síðan ég var skorinn upp síðast og endurhæfingin gekk erfiðlega eftir þá aðgerð og því var ég skorinn upp aftur núna. Ég var ekki ánægður með síðasta lækninn og fór því á annan spítala í þetta skiptið og þeir opnuðu hnéð á mér þar. Þetta leit víst ekkert alltof vel út og hnéð var illa bólgið og frekar djúpar brjóskskemmdir í því og allt bendir til þess að sá sem skar mig fyrst upp hafi gert tóma vitleysu bara. Hinir læknarnir hreinsuðu hins vegar vel til í hnéskelinni og lærleggnum og reyndu að ná bólgunum úr þessu. Ég var líka búinn að fá mikið af sprautum í hnéð og hafði spilað aðeins á þessu og það hefur eflaust ekki hjálpað til. Þeir gáfu mér annars vonir um góðan bata,“ segir Einar vongóður. Einar gat vegna hnémeiðslanna ekki gefið kost á sér í síðustu landsleiki Íslands í undankeppni EM og segir að sama skapi ómögulegt að sjá í spilunum hvort hann verði kominn aftur í sitt besta stand fyrir lokakeppn- ina í Austurríki í byrjun næsta árs. „Nú tekur við tólf vikna pása að nýju á meðan hnéð er að ná sér og síðan kemst ég vonandi á fullt í endurhæfingunni. Ef allt gengur að óskum þá ætti ég að geta byrjað að spila eftir fjórtán vikur. Ég verð hins vegar að vera rólegur og gefa hnénu tíma þar sem þetta var orðið svo illa farið. Það væri gott ef ég gæti byrjað að spila í nóv- ember og væri þá kominn á fulla ferð í desember eða janúar. Ég þarf annars að einbeita mér að því að spila vel með Grosswallstadt áður en ég spái í íslenska landsliðið og EM. Það er enn langur tími til stefnu og maður verður að vera jákvæður í þessu og duglegur í endurhæfingunni.“ EINAR HÓLMGEIRSSON: ER VONGÓÐUR EFTIR AÐ HAFA GENGIST UNDIR AÐRA HNÉAÐGERÐINA Á SKÖMMUM TÍMA Fyrri læknirinn hefur greinilega gert tóma vitleysu Ódýrar golfferðir til Spánar með Express ferðum Golfferðir Oliva Nova Lúxushótel 119.800 kr. 7 nætur Ótakmarkað golf Hotel Villaitana Lúxushótel 137.300 kr. 7 nætur með hálfu fæði 7 hringir Nánari upplýsingar á www.expressferdir.is, í símum 550 0692 og 664 0631 eða í tölvupósti, info@expressferdir.is Pepsi-deild kvenna KR-Afturelding/Fjölnir 3-0 1-0 Lilja Dögg Valþórsd.(9.), 2-0 Sonja Björk Jóhannsd. (35.), 3-0 Dagmar M. Gunnarsd. (88.) 1. deild karla ÍR-Þór 1-0 1-0 Árni Freyr Guðnason (25). KA-Leiknir R. 0-2 0-1 Helgi Pjetur Jóhannsson (41.), 0-2 Kristján Páll Jónsson (55.).. Haukar-Afturelding 3-0 Víkingur R.-Selfoss 1-2 0-1 Jón Guðbrandsson (54.), 1-1 Daníel Hjaltason (79.), 1-2 Agnar Bragi Magnússon (86.). ÍA-Fjarðabyggð 3-1 STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI Selfoss 14 10 2 2 27-15 32 Haukar 14 7 4 3 27-17 25 HK 14 7 2 5 25-20 23 Fjarðabyggð 14 7 2 5 25-22 23 Víkingur 14 6 3 5 26-21 21 KA 14 5 5 4 18-14 20 ÍR 14 6 1 7 26-32 19 ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Haraldur Freyr Guð- mundsson mun leika með Kefla- vík út tímabilið en hann skrifaði undir samning við félagið í gær. Hann er enn einn Keflvíkingur- inn sem snýr heim. Hólmar Örn Rúnarsson, Hörður Sveinsson og Jóhann Birnir Guðmundsson komu aftur í fyrra og þeir Hauk- ur Ingi Guðnason og Guðmundur Steinarsson á þessu tímabili. Haraldur hefur æft með Kefla- vík síðan samningi hans við Apollon Limassol á Kýpur var rift. Haraldur lék síðast með Keflavík 2004 en hélt síðan til Noregs í atvinnumennsku áður en hann hélt til Kýpur. Það er klásúla í samningi Har- aldar við Keflavík þess efnis að finni hann ekki erlent lið eftir sumarið muni hann leika áfram með félaginu á næsta ári. - egm Haraldur Freyr til Keflavíkur: Heima er best AFTUR Í KEFLAVÍK Haraldur í leik með Keflavík 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR > Komast strákarnir í úrslitaleikinn? Íslenska 19 ára landsliðið í handbolta stendur sig frábærlega á HM í Túnis en liðið er komið alla leið í undanúrslitin þar sem liðið mætir heimamönnum í dag. „Þetta er búið að vera flott mót og við erum búnir að bæta okkur í hverjum leik,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfara 19 ára landsliðsins. „Liðið hefur fína breidd og þetta er rosalega þéttur og samstilltur hópur,“ segir Einar en leikurinn á móti Túnis hefst klukkan 19.00 á morgun að íslenskum tíma. „Þetta er bara jafn og spennandi leikur sem getur farið hvernig sem er. Við þurfum á öllu okkar að halda til þess að klára það,“ sagði Einar. FÓTBOLTI Gunnar Oddsson stýrði æfingu hjá Þrótti í gær en það gæti svo farið að það hafi verið hans síð- asta æfing með liðið. „Það er óbreytt ástand,” sagði Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, þegar Vísir náði í hann í gær. „Næsta skref hjá mér er bara æfing. Það er hefðbundin æfing daginn eftir leik,” sagði Gunn- ar sem sagði að tíminn þyrfti að leiða í ljós hvort staða mála myndi breytast. Þróttur er á botni Pepsi-deildar- innar og hefur tapað síðustu tveim- ur leikjum sínum með markatöl- unni 1-5. Gunnar sagðist vera að íhuga sína framtíð hjá félaginu eftir tapleikinn á móti KR. Stjórn Þróttar fundaði um fram- tíð Gunnars í gær en Gunnar sjálf- ur tók ekki þátt í þeim fundi. Ekki náðist í forráðamenn Þróttar í gær til þess að fá að vita niðurstöðu fundarins. Næsti leikur Þróttar er mið- vikudaginn 5. ágúst gegn Fjölni en næstu tveir leikir liðsins eru ein- mitt á móti liðunum sem eru næst þeim í töflunni, Fjölni og Grinda- vík. Þróttur er fjórum stigum á eftir þessum liðum. - óój / egm Enn óvissa í kringum þjálfaramálin hjá Þrótturum: Síðasta æfingin í gær? ÆFÐU Á VALBJARNARVELLINUM Gunnar Oddsson stýrði æfingu hjá Þrótti en líkur eru á því að þetta hafi hugsanlega verið síðasta æfingin hans með liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SJÖ STIGA FORSKOT Guðmundur Þór- arinsson og félagar eru í góðri stöðu á toppi 1. deild karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið- ið er á leiðinni á EM í Finnlandi í næsta mánuði og allar bestu knattspyrnukonur landsins hafa lagt mikið á sig við að undirbúa sig sem best fyrir fyrsta stórmót hjá A-landsliði Íslands í fótbolta. Ein af þeim var Harpa Þorsteins- dóttir hjá Breiðabliki en EM- draumurinn hennar dó snögglega á sunnudaginn þegar hún varð fyrir því að fótbrotna í undanúr- slitaleik VISA-bikars kvenna á móti Fylki. „Ég veit ekki hvort ég grét meira út af sársauka eða tíma- setningu. Ég var búin að stefna á þetta mót lengi. Ég held að ég hafi sjaldan verið í betra formi þannig að þetta er mjög svekkj- andi,“ segir Harpa. „Ég er á undan í boltann og hún tekur fótinn. Þetta var algjört slys að sjálfsögðu því það ætlar sér enginn að fótbrjóta neinn. Þetta er bara boltinn,“ sagði Harpa en Fylkisstelpan sem varð fyrir því að fótbrjóta hana hefur þó ekki haft samband við hana eftir atvik- ið. „Ég er búin að tala við lands- liðsþjálfarann og einhverja aðila hjá KSÍ. Margar af stelpunum hafa líka talað við mig þannig að ég er búin að fá flottan stuðning,“ segir Harpa sem meiddist strax á 4. mínútu leiksins og var í kjölfar- ið flutt á sjúkrahús. „Ég fór upp á slysadeild og þar kom í ljós að minni súlan í leggnum var brotin. Ökklinn var líka gliðn- aður þannig að ég þurfti að fara í aðgerð. Ég fór í aðgerðina um leið og ég gat og það gekk allt mjög vel fyrir sig. Næsta skref er að vera með löppina upp í loft næstu sex vikurnar. Ég á að fara aftur í rönt- gen og endurmat í september,“ segir Harpa og bætir við: „Ég veit voðalega lítið en ég fékk upplýsingar frá Reyni Björnssyni landsliðslækni um að það væru að minnsta kosti fjórir til sex mánuð- ir þangað til ég get farið að beita fætinum eitthvað aftur,“ segir Harpa. Harpa játar að hún hafi sjald- an verið jafnörugg með sæti sitt í landsliðshópnum og nú enda hefur hún spilað mjög vel með Blikum í sumar. „Þetta eru eiginlega fyrstu meiðslin sem ég lendi í. Tímasetn- ingin er líka enn grátlegri í því ljósi. Maður verður bara að hugsa þannig að það komi annað stór- mót eftir þetta. Ég fer bara á HM í staðinn,“ segir Harpa með sann- færingarkrafti og vonandi rætist draumur hennar eitthvert annað ár. Erna Björk Sigurðardóttir, fyr- irliði Breiðabliks, og félagar henn- ar og Hörpu úr Breiðabliksliðinu heimsóttu hana í gærkvöldi. „Þetta er fyrst og fremst ömurlegt fyrir hana sjálfa að missa af endinum á tímabilinu með Breiðabliki og svo að missa af EM með landsliðinu. Þetta er líka mjög leiðinlegt fyrir Breiðablik því við erum ekki með það breiðan hóp. Þetta er mikill missir fyrir okkur,“ segir Erna og hún segir að Harpa hafi lagt mikið á sig við að undirbúa sig sem best fyrir EM. Harpa er viss um að Blikastelp- urnar spjari sig án hennar. „Ég mun sýna þeim andlegan stuðning og ég hef engar áhyggjur því ég veit að þær klára þetta fyrir mig,“ segir Harpa að lokum. ooj@frettabladid.is Ætlar bara að fara á HM í staðinn „Ég veit ekki hvort ég grét meira út af sársauka eða tímasetningu,“ sagði Blikinn Harpa Þorsteinsdóttir sem missir af EM í Finnlandi eftir að hún fótbrotnaði í bikarleik á móti Fylki á sunnudaginn. GÓÐ HEIMSÓKN Félagar Hörpu í Breiðabliki heimsóttu hana í gær og veittu henni stuðning. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.