Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1940, Page 7

Samvinnan - 01.02.1940, Page 7
2. HEFTI SAMVINNAN JÓNAS JAKOBSSON, hinn ungi myndhöggvari, sem gert hefur forsíðumynd Samvinnunnar. NAFN GUSTAVS MANNERHEIMS, yfirforingja finnska hersins, mun lengi í minnum haft og svo lengi, sem saga finnsku þjóðarinnar geymist. Hin frækilega vöm finnska hersins í vetur við hið mikla ofurefli hefur vakið undrun og að- dáun alls hins menntaða heims, og mun þess- arar varnar jafnan verða minnst, sem einnar af frækilegustu hetjudáðum veraldarsögunnar. Mannerheim foringi finnska hersins er enginn viðvaningur í herstjórn. Á yngri árum var hann herforingi í rússneska keisarahernum og var herforingi í rússnesk-japanska stríðinu og í heimsstyrjöldinni og gat sér þá mikla frægð. Þegar bolsjevika uppreisnin brauzt út var Mannerheim leystur frá störfum og fór þá heim til Finnlands og gerðist þá foringi í her finnsku frelsishreyfingarinnar. Tókst honum að sigrast á Rauða hernum og frelsa Finnland undan veldi Rússa. Síðan hafa Finnar litið á Mannerheim sem frelsishetju sína. — Mannerheim er af sænskri aðalsætt, sem settist að í Finnlandi á síðari hluta 18. aldar. Nú er hann 72 ára. BJÖRN BORG heimsmeistari í sundi og einn frægasti íþróttamaður Svía hefur farið, sem sjálfboðaliði til Finnlands. Sama hafa fjöl- margir frægir íþróttamenn gert. Þeir hafa keppt við Finnana á íþróttavöllum víðsvegar um heim, þar sem Finnarnir hafa jafnan reynst erfiðir en heiðarlegir keppinautar. Nú sýna íþróttamenn fjölda landa keppinautum sínum frá íþróttavöllunum þá virðingu og vin- áttu að standa við hlið þeirra í eldlínunni til verndar frelsi og fjöri finnsku þjóðarinnar og vestrænnar menningar. 23

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.