Samvinnan - 01.12.1940, Qupperneq 9
10. HEFTI
SAMVINNAN
eldrar hans eru Björn Tryggvi Guðmundsson frá
Lækjamóti, er lengi bjó á Stóruborg, og kona hans,
GuSrún Magnúsdóttir ffá Þinganesi. Guðmundur
Tryggvason veitti forstöðu Pöntunarfélagi Verka-
mannafélagsins Hlíf í Hafnarfirði og hefir starfað
hjá Kron síðan, er félögin voru sameinuð í eitt félag.
Ætlunarverk þessa félagsmálastarfs er það, að gera
hvern félagsmann að lífrænum hluta af hinni stóru
heild, sem geti stöðuglega staðið í sem nánustu sam-
bandi við félag sitt, skilið starfsaðferðir þess og
stefnumið, komið á framfæri umkvörtunum sínum eða
þá bendingum um það, sem betur mætti fara í fé-
lagsstarfinu. Leitast félagið við að ná takmarki sínu
eftir fleiri leiðum en einni. Er þar fyrst að telja fé-
lagsblaðið, „Heimilið og Kron“, sem um þessar mund-
ir er gefið út í 4200 eintökum og kemur út mánaðar-
lega. Eru þar birtar skýrslur og ýmiskonar fróðleikur,
rædd félagsmál og hrundið árásum andstæðinga. —
Námshringar hafa verið stofnaðir, þar sem leitast er
við að fræða félagsmenn um samvinnumál og þá
einkum trúnaðarmenn félagsins, fulltrúa og deildar-
stjórnarmenn. — Stofnað hefir verið til félagssam-
taka kvenna, þar sem húsmæðrum hefir verið veittur
kostur á samvinnufræðslu, með fundum í Gamla Bíó,
sýningum samvinnukvikmynda frá Englandi og Norð-
urlöndum og á smærri fundum í húsakynnum félags-
ins sjálfs. Þessi grein félagsfræðslunnar er næsta mik-
ils verð eins og ljóst má verða, þegar á það er litið, að
húsfreyjumar munu ráða að minnsta kosti 8/io hlut-
um allra kaupa til heimilanna. — Einna mikilsverð-
astur þáttur þessa félagsmálastarfs er þó frœðslu- og
kynningarstarfsemi fulltrúa kaupfélagsins. Er henni
hagað á þá lund, sem hér greinir: Félagsdeildimar
eiga rétt á að kjósa einn fulltrúa fyrir hverja tuttugu
félagsmenn, eins og fyr var greint. Fulltrúamir hafa
síðan það hlutverk með höndum að stofna til persón-
legs kynningarsambands við hina einstöku félags-
menn, og hefir hver fulltrúi um 20 manna hóp til slíkr-
ar kynningar. í persónulegum viðtölum er rætt um
félagsmálefnin, ritaðar niður umkvartanir, athuga-
semdir og bendingar um starfræksluna, misskiln-
ingur leiðréttur, þar sem hans verður vart og al-
menningur fræddur um stefnumið og starfs-
aðferðir félagsins, eftir því sem kostur er á. Á
fulltrúafundum deildanna mæta fulltrúar frá fé-
lagsstjórninni, sem veita fundarmönnum fræðslu um
rekstur félagsins og hag. Þar bera fulltrúarnir fram
skriflega skýrslu um viðtöl sín við einstaka félags-
menn og umkvartanir þær og bendingar, sem fram
hafa komið. Þannig verða fulltrúar félagsdeildanna
og deildafundimir einskonar tengiliður milli stjórnar
og framkvæmdastjórnar félagsins á aðra hönd, en
|é.' - • - í«-? !
KRON-búð í Skerjafirði.
einstakra félagsmanna á hina, og starfið til þess fallið
að auka skilning á stamstarfinu og samúð og áhuga
innan félagsheildarinnar.
Guðmundur Tryggvason hefir unnið að þessum mál-
um með áhuga og ötulleik, og er starf hans ærið
mikilsvert. Árið 1939 sótti hann samtals um 200 fundi
í félaginu, og eru þá taldir stjómarfundir, almennir
fulltrúafundir, deildafundir og fundir deildastjórna.
Starfsdeildir. Stjórn og starfsdeildir félagsins grein-
ast eins og sýnt er á skipulagsuppdrátunum:
VERKA8KIFTNG STARFSMANNA I KRON
Hinar fyrgreindu 16 félagsdeildir kjósa fulltrúa á
157