Samvinnan - 01.12.1940, Blaðsíða 10
SAMVINNAN
10. HEFTI
aðalfund, og er tala fulltrúanna hátt á annað hundr-
að. Aðalfundur kýs níu manna félagsstjóm. Félags-
stjórnin kýs þriggja manna framkvæmdastjóm, og er
forstjórinn þar talinn með. Síðan greinist reksturinn
í fjórar meginstarfsdeildir með fulltrúa fyrir hverri
deild undir daglegri stjórn forstjórans, Jens Figved.
Þykir hlýða að gera hér nokkm nánari grein fyrir
starfsdeildunum og forstöðumönnum þeirra.
Jens Figved forstjóri er fæddur á Eskifirði 11. maí
1907, sonur Andresar Figved kaupmanns þar og konu
hans, Marie Figved. Foreldrar hans eru bæði norsk.
Figved er því að foreldri og uppruna óblandaður Norð-
maður. Hann er eigi að síður ósvikinn íslendingur
og mun vissulega verða skipað í flokk þeirra lands-
manna, sem fremstir hafa reynst um dugnað og
mannkosti. Hann hefir til að bera miklar skipulags-
gáfur, manna vinsælastur, skapdeildarmaður mikill,
en einarður og óhvikull um stefnumið og mjög til for-
ystu fallinri. — Þess hefir verið getið hér að framan,
hversu Figved gerðist forvígismaður P. V. R. og bjó
sig undir starf sitt sem forstjóri Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis.
Vöruflokkunin. Söluvömr félagsins eru greindar í
flokka, sem eru auðkenndir með bókstöfum, eins og
hér segir:
A-flokkur: Matvörur og nýlenduvörur.
B-flokkur: Álnavömr, skófatnaður, búsáhöld o.fl.
C-flokkur: Kjöt og aðrar sláturafurðir.
í kaflanum „Félagsdeildir“ hér að framan er gerð
Húseign KRON á Hverfisgötu 52. Geymsla, búð og
efnagerð.
grein fyrir fulltrúastarfi Guðmundar Tryggvasonar,
sem hefir einkum með höndum þann þátt starfsins,
sem horfir til aukinnar félagshyggju og fræðslu meðal
almennings í félaginu. — Umsjá með vörusölu I fram-
angreindum vöruflokkum er falin tveimur fulltrúum,
þeim Jóni Einarssyni og Hermanni Á. Hermanns-
syni.
Jón Einarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 27. júll
1912; sonur Einars M. Einarssonar skipherra og Magn-
úsínu Eyjólfsdóttur. Hann gerðist starfsmaður hjá
P. V. R. frá byrjun. Stundaði hann nám í Samvinnu-
skólanum og sótti auk þess námskeið í starfsmanna-
skóla sænsku samvinnufélaganna í Stokkhólmi. Jón
Einarsson hefir umsjá með A- og C-flokks vörum fé-
lagsins (Sjá skipulagsuppdrátt: Neyzluvörur). Hann
annast inn innkaup allra þessara vara og hefur um-
sjón og eftirlit með þeim 11 sölubúðum, sem selja mat-
vörur og kjötvörur. Hann sér og um allt það, er lýtur
að smekkvíslegum og hagfelldum rekstri sölubúðanna.
Hermann Á. Hermannsson er fæddur að Kjama-
stöðum í Dýrafirði 25. ágúst 1902, sonur Hermanns
Kristjánssonar sjómanns og konu hans, Jónínu Haf-
liðadóttur. Hann stundaði nám í Verzlunarskólanum
í Reykjavík, rak sjálfur verzlun í 10 ár og vann verzl-
unar- og skrifstofustörf á nokkrum öðrum stöðum,
áður en hann í júlí 1936 gerðist starfsmaður hjá P.
V. R. — Hermann Hermannsson hefir umsjá með B,-
flokksvörum félagsins (Sjá skipulagsuppdrátt: Sér-
deildir). Hann hefir með höndum samskonar störf og
ábyrgð gagnvart rekstri þeirra þriggja búða, sem eru
undir hans umsjá og talin eru hér að framan í kafl-
anum um Jón Einarsson.
Auk 14 sölubúða rekur félagið iðnað i þremur grein-
um: Efnagerð, pylsugerð og saumastofu, og skiptast
þær rekstursgreinir samkvæmt tegundum fram-
leiðsluvaranna til umsjár áðurgreindra tveggja sölu-
fulltrúa.
Samkvæmt framansögðu rekur félagið alls 14 sölu-
búðir, — 10 í Reykjavík, tvær í Hafnarfirði, eina 1
Keflavík og eina í Sandgerði. Fyrir hverri búð stend-
ur ábyrgur sölustjóri, og verður síðar nánar greint frá
viðhorfi þessara söludeilda og reikningsskilum til
skrifstofu félagsins.
Ólafur Þorsteinsson er hinn fjórði fulltrúi félagsins
og hefir með höndum skrifstofustjórn og gjaldkera-
störf. Hann er fæddur að Holti í Mjóafirði 25. okt.
1906, sonur Þorsteins Sigurðssonar sjómanns og konu
hans, Ragnhildar Hansdóttur. Hann réðist til Kron
stuttu eftir stofnun félagsins, en hafði áður unnið
verzlunarstörf víðar en á einum stað. Hann hefir með
höndum umsjá reikningshaldsins, vörueftirlitsins og
158