Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1948, Page 2

Samvinnan - 01.04.1948, Page 2
Ný úrræði við nýjum vandamálum ESS SJÁST NÚ ÝMS MERKI að hugsandi mönnum hrjósi hugur við jicirri þróun, sem orðin er í búsetu landsmanna, og geri sór ljósa nauðsyn þess að spyrna við fótum. Á tveimur árum nemur mannfjölgunin í höí uðborginni nær sex þúsundum manna ,eða allt að því jafnmiklum mannjölda og byggir næst stærsta bæ landsins. Mikill meiritiluti þessa fólks hefur komið úr sveitum og sjiv- arþorpum. Það segir sig sjálft, að aðstaða þessara sveita og þorpa til þess að halda uppi fjölbreyttu framleiðslu- og menningarlíti, fer versnandi ár frá ári vegna þessara flutninga. Dugandi bændur og útvegsmenn hverhi á brott. Með þeim flytzt ekki aðeins vinnuall, úrræði og samtakamáttur, heldur líka Ij.it- magn. Byggðin stendur fátækari eftir. Þótt tölurnar um mannflutningana séu ískyggi- legar, segja þær þó ekki allan sannleikanu. A- stæðurnar eru raunverulega verri en þær gefa til kynna. Það fer ekki fram lijá þeim, sem kunnugir eru málefnum bænda, eða ferðast um sveitir, að það er einkum unga fólkið, sem leitað hefur burt. Skýrslur um meðal- aldur þess fólks, sem nú stundar landbún- að hér, eru ekki fyrir hendi. Þær væru að sjálfsögðu mjög fróðlegar, en þær eru þó ekki nauðsynlegar til þess að benda á þau augljósu sannindi, að það er lítið af ungu fólki 1 sveitum landsins. Margt bendir til þess, að það sé allt of lítið. Ekki þarf að fara í grafgötur um það, hverjar afleiðingar það hlýtur að liafa fyrir hlutföllin I milli at- vinnustéttanna og framtíð sveitanna innan nokkurra ára, ef ekki verður gagngerð breyt- ing á þróuninni í þessum málum. Fari svo fram, sem nú horfir, hlýtur sú tíð að renna upp, að mannfækkunin í sveitunum verði ennþá gífurlegri en nú, er eldri kynslóðin hverfur á skömmu árabili, án þess að nægi- lega margt ungt fólk komi í staðinn. í þessu er falin liætta fyrir þjóðfélagið í heild, sem vert er að gefa gaum í tíma. ALLMIIÍLAR umræður eru nú uppi með jijóðinni um jiað, hver sé hin raunveru- lega ástæða til jressaiar þróunar. Ekki er unnt að gera þeim málum skil hér, en þó má vera augljóst, að það er ófrjótt starf að eyða tímanum til ásakana fyrir orðinn hlut á með- an elfur fólksflutninganna rennur hindrun- arlaust fram með vaxandi [uinga ár frá ári og skolar með sér möguleikum byggðanna til uppbyggingar og menningarlífs. Þegar menn hafa gert sér grein lyrir meginorsökunum, er að hefjast handa um úrbæturnar. Það er aug- ljóst hverjum þeim, sem um þessi mál hugsar, að lífið í fjölmennustu bæjunum hefur virtzt ákjósanlegra og eftirsóknarverðara í augum mikils fjölda landsmanna, en störfin við fram- leiðsluna úti um sveitirnar. Fjölbreytni bæj- arlífsins, þægindi þess og fjáraflamöguleikar, hafa dregið fólkið til sín eins og stór segull. Þess er nú að vænta, að það verði talið hið mesta keppikefli hins unga lýðveldis á næstu árum, að jafna þessi met, gera framleiðslu- störfin sem víðast í byggðum landsins aftur eftirsóknarverð, efla lífsþægindi þar og af- komumöguleika, veita fjármagni þangað og lífskrafti starfandi handa. En jrá vaknar sú spurning, hvort slíkt verði afrekað rheð laga- setningum og opinberum valdboðum einum saman. Verður ekki einnig nauðsynlegt, að íbúar hvers héraðs lcggi fram sinn skerf, taki til úrlausnar verkefni, sem að þessu marki leiða, og hægt er að leysa með ábyrgu sam- starfi? Á síðasta aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga nú fyrir skemmstu, var félagsstjórninni falið að beita sér fyrir stofnun félagsskapar, er tæki að sér byggingaframkvæmdir fyrir félags- menn. Þessi samþykkt miðar að úrlausn eins slíks verkefnis .Hún hefur það takmark, að bæta lífskjörin í sveitunum á félagssvæðinu og ráða bót á erfiðieikum, sem hafa stuðlað að fólksflutningum frá framleiðslunni. Hún er því þess virði, að samvinnumenn og aðrir landsmenn veiti henni nokkra eftirtekt. AÐ ER KUNNUGT, að mjög mikið skort- ir á að lmsnæðismál sveitanna séu komin í það lag, sem nauðsynlegt má teljast. Það eru vissulega mikil húsnæðisvandræði í sveit- unum, en þeirra heyrist sjaldan getið. Þegar rætt er um húsnæöisvandræði eiga menn oft- ast við ástandið í hinurn stærri bæjum, sem tekið hafa við þúsundum innflytjenda á stuttu árabili. En húsnæðisvandamál sveit- anna eru einnig mikil og mjög aðkallandi að leysa þau á sómasamlegan hátt. Skýrslur sýna, að jafnvel í blómlegustu héruðum er mjög mikið af húsnæði bænda ófullkomið og óvið- unandi. Það er eftirtektarverð staðreynd, að á sama tíma og fjármagn jjjóðarinnar hefur í stríðum straumum gengið til þess að stækka kaupstaðina og þá einkum höfuðstaðinn, heí- ur ekki orðið gagngerð breyting á bygginga- málum sveitanna. Veldur hvort tveggja, L'jár magnsskortur og vinnuaflsskortur. Eitt frum- skilyrði þess að æska sveitanna uni við nyt- söm störf heima á feðraslóðum er að henni séu Jroðin mannsæmandi liúsakynni. Þrátt fyrir stórfelldar umbætur víða, skortir mjóg mikið á lausn þessa máls yfirleitt. Það heíur, með öðru, ýtt undir burtflutningana. Fjár- magnsþörf landbúnaðarins er mikil nú, bxöi til húsabygginga og ræktunarframkvæmda. Hana verður þjóðfélagið í heild að leysa. Vinnuaflsþörfin er einnig mikil. Hún cr að sjálfsögðu málefni alls þjóðfélagsins, en á þeim vettvangi er vafalaust hægt að beita samtökum til úrbóta. Hugmyndin með hinni fyrirhuguðu félagsstofnun fyrir forgöngu Kaupfélags Eyfirðinga, er sú, að kaupfélagið sjálft og verkamenn og byggingamenn í fjöl- menninu, stofni til félags um byggingafram- kvæmdir úti um sveitir á félagssvæðinu. Þessu félagi er ætlað að skipuleggja það vinnuafl, sent til er, til þess að sinna aðkallandi bygg- ingaframkvæmdum bænda og búnaðarsam- taka.hafa til taks vélakost til framkvæmdanna og stuðla að því að hvort tveggja verði full- nýtt, vélarnar, sem tiltækar eru og vinnuafl- ið, sem fáanlegt er á hverjum tíma til þessara framkvæmda. Reynslan ein fær úr því skor- ið, hvort þessi tilraun tekst eðá ekki. En víst er um það, að hún er viðleitni til þess að bæta úr miklum erfiðleikum þeirra bænda, sem vilja bæta húsakost jarða sinna. Takist lnin, mun mega vænta þess ,að hún verði einn lið- ur í fjölmörgum framkvæmdum, sem gera þarf, til þess að bæta lífskjör þeirra, er fram- leiðslustörf stunda I sveitum og gera lífsbar- áttu þeirra auðveldari og árangursríkari en hún nú er. ÞEIM, SEM HELZT hugsa sér samvinnu- félagsskapinn sem vöruafhendingu að- eins, kemur það e.t.v. undarlega fyrir sjónir, að kaupfélag eyfirskra samv.manna skuli tiafa forgöngu um slík málefni. En til þess liggja ofureðlileg rök. Erfiðleikar framleiðslunnar og fólksfækkunin í sveitunum, eru vissulega málefni, sem varða samvinnufélagsskapinn í landinu. Öflugur samvinnufélagsskapur bygg- ir á félagsþroska ábyrgra manna og heil- brigðu athafnalífi. í rauninni leggur hvert heilbrigt og þroskað samvinnufélag lið hverju }>ví málefni, sem horfir til heilla fyrir félags- menn þess. Slíkt félag fer ekki eingöngu troðnar brautir, heldur leitar nýrra úrræða við nýjum vandamálum. Hin síðasta ákvörð- un aðalfundar KEA, um úrræði til þess að létta undir byggingastörf í sveitunum, er þvi merkileg ,og sönnun þess, að þar sem sam- vinnufélagsskapurinn er orðinn [>roskaður, leita félagsmennirnir sameiginlega leiða til uppbyggingar. Ef Jrjóðfélagið í heild snýst nú af alefli að því verkefni, að skipa fram- leiðslumálum byggðanna nýjan sess, er vafa- laust, að þetta framtak eyfirzkra samvinnu- manna verður verulegt liðsinni á j>eirra fé- lagssvæði. En það er Jrnngt að synda á móti straumnum. Þessi framkvæmd ein mun hvergi nærri nægja til þess að snúa taílinu við. Landsmenn yfirleitt þurfa að standa saman um margháttaðar endurbætur, til þess að ná því marki. StMVINNiN Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufclaga. Ritstjóri: Haukur Snorrason Afgreiðsla: Hafnarslræti 87, Akureyri. Sítni ÍGG. Prentverk Odds Bjömssonar Kemur út einu sinni í mánuði Argangurinn kostar kr. 15.00 42. áig. 4. hefti Apríl 1948 2

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.