Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1948, Qupperneq 4

Samvinnan - 01.04.1948, Qupperneq 4
liugsar hratt. Albin Johansson hefur betur en nokkur annar getað yfirbugað smásálar- skap okkar. Ræður lians á aðalfundum sænsku samvinnufélaganna eru óviðjafnan- legar. Hann flytur mál sitt á þann hátt sem enginn annar gerir, hann talar djarft og um ólíklegustu iiluti og lætur jafnan létta lund sína gefa ræðunni líf og fjör — og hinir hljóðu bekkjaraðir af traustum og staðföst- um fulltrúum samvinnufélaganna, bresta í hlátur og láta óspart hrifningu sína í ljósi. Hann er eftirlætisbarn, sem má gera það sem honum sýnist — allir vita að allt er í lagi með Albin. (Framkvæmdastjórar eða sendisveinar kalla hann aldrei öðru nafni. Venja er þó meðal Svía að ávarpa menn mcð eftirnafninu, nema innan fjölskyldu, eða nána kunningja á sama aldri. Þetta er því glöggt dæmi um hvílíkum vinsældum liann á að fagna.) SAGAN SEGIR að Albin hafi eitt sinn verið að gera stór innkaup í Ameríku, jafnvel á lians mælikvarða. Ef til vill voru það einhverskonar verksmiðjuvélar. Hann gat valið á. milli tveggja fyrirtækja og ákvað loks.i að undangenginni rannsókn, við hvort þeirra hann ætlaði að skipta. Hann gekk til skrifstofu fyrirtækisins og ætlaði að undir- rita saminga. við það. Ameríkumaðurinn spurði kurteislega., hve há laun Albin Jo- hansson hefði. Elann svaraði og nefndi hina lágu upphafð, sem sænsk samvinnufélög greiða starfsmönnum sínum. Ameríku- maðurinn spurð hvernig nokkuð svo hlægi- legt gæti átt jsér stað, Albin Johansson sagði, að liann gæti sennilega fengið svo há laun sem hann vildi, en að hann væri fullkom- lega ánægður með þau laun sem hann fengi... Ameríkumaðurinn gaf þá í skyn, að liann mundi treysta sér til þess að bæta ríflega við þessi laun, ef kaupin yrðu gerð hjá sér. An þessarar athugasemdar hefði Ameríku- maðurinn fengið pöntunina. Nú missti liann hana, Albin Johansson sagði fáein velvalin orð og gekk út. „En,“ segja menn að hann liafi sagt, „ég sendi konu þessa gamansama náúnga stærsta blómvönd, sem hægt var að fá í New York, svo að hann skyldi ekki lialda að við samvinnumenn værum neinar smá- sálir.“ Hvort sem sagan er sönn eða ekki er liún einkennandi fyrir Albin. Albin Jo- hansson ér maður sem gerir það sem hon- um dettur í hug. Hann skortir virðingu fyrir hæglátum veruleikanum, eins og liann stund- um af tilviljun er orðinn. Hann skapar nýj- ar og djarfar hugmyndir. Hann stundar margskonar frístundaföndur. Meðal annars er hann með margar „patent“-hugmyndir á prjónunum. Ein af þeim er rakvél, sem snýst af núningnum við kinnina, án raf- magnsstraums. Eftir hátíðlega miðdegisveizlu er hann vanur að koma með tilraunavél sína og reyna hana á kinn einhvers feitlagins forstjóra, sem er steinhissa á tiltækinu. Einu sinni var eg í heimsókn hjá honum og las hárri röddu hluta af texta sænskiar kvikmyndar, sem var í undirbúningi, um samvinnumál. Hann hlustaði með skarpri athygli — en síminn hringdi. Eg ætlaði þegar að ganga hljóðlaus burt, en fékk bendingu urn að sitja kyrr. Eftir nokkra stund komst eg ekki hjá að heyra að hann var að tala við Madame Kollontay (frá rússneska sendiráðinu), um það, hvernig hægt væri að koma á íriði í Finnlandsstyrjöldinni. Og ekki leið á löngu þar til Albin sat og beið eftir viðtali hjá hinum háu lierrum í Kreml. ÞESSI MAÐUR er dáður af öllum sænsk- um samvinnumönnum, en hataður af llestum kaupmönnum. Ef eftir margra ára bráttu, sem liefur sprengt hvern auðhring- inn á fætur öðrum — þar sem samvinnu- félögin hafa unnið livern sigurinn eftir anna, hefur Albin Johansson einnig orðið vinsæll af fyrri óvinum sínum. Hversvegna? Að einhverju leyti vegna óvenjulega heill- andi persónuleika. En framar öllu öðru vegna þess að hann hefur staðið á móti of Frú Linnea Johansson mikilli ílilutun af hálfu ríkisins. Sósíalism- inn og samvinnufélagsskapurinn hafa oft átt samleið, og margir menn úr borgarastétt líta svo á, að hér sé raunar um eitt og sama að ræða. Ekkert getur þó verið fjær sanni. Ríkissósíalisminn og samvinnufélagsskapur- inn, sem byggir á frjálsu þjóðskipulagi, verð- ur aldrei það sama. Albin Johansson er vin- ur jafnaðarmannaflokksins og stjórnarinnar. En hann hefur ekki eitt andartak hikað við að vara við of mikilli íhlutun af ríkisvaldinu. Við og við koma frá honum, þeim mannin- um, sem flesta einokunar- og auðlrringa hef- ur sprengt, hvassyrt mótmæli, þegar honum þykja stjórnarvöldin ganga of langt í að tak- ntarka athafnafrelsið. Og á meðan á öllu þessu gengur eru kaupsýslumenn, sem ann- ars eru keppinautar Albins, farnir að láta sér skiljast að vart muni nokkur snjallari talsmaður fyrir hið frjálsa viðskiptalíí, en hnn gamli erkióvinur þeirra, Albin. Afburðamaðurinn er alltaf ungur. Albin Johansson verður alltaf ungur í anda, hversu gamall, sem hann kann að verða að árum. Það er óhugsandi að hann staðni, eða endur- taki sjálfan sig. Eg sat eitt sinn fyrir framan hann í járn- brautarlest á leið um Vermaland, hann hafði þá nýlega athugað grundvöll fyrir nýjá verksmiðju, sem samvinnufélögin ætluðu að að byggja skammt fyrir vestan Karlsstad. Hann spjallaði um Operuna en hann er formaður stjórnar hennar. — Hann var í þann veginn að prófa’ rakvélina á kinn minni, en hætti við það og sagði: „Nú hefur okkur loks tekist að vinna bug á lielztu þjóðfélagsmeinunum, a. m. k. í viðskiptalif- inu.... hugsaðu þér, ef okkur tækist einnig að vinna bug á helztu meinsemdum manns- andans.....“ HVER SÁ, sem hefur kynnt sér það, sem hefur skrifað á seinni árum sannfærist brátt um það af hvílíkum áhuga liugsun hans öll fæst við þessi verkefni. Hugur hans leitast við að finna leiðir til að bæta mann- inn, og hvernig hægt sé að komast hjá styrjöldum. Albin álitur að það sé því að- eins hugsanlegt að breyting verði á sjálfum mannsandanum, (manneðlinu). En hann hef- ur einnig í ræðu og riti, við ýmiss tækifæri, og nú seinast á alþjóða ráðstefnu samvinnu- félaganna, lagt fram grundvallartillögur um árangursríkt friðarsamstarf. Skoðun lians á þessum málum er í stuttu máli: Styrjaldir stafa af öfund og fjárgræðgi, sent á djúpar rætur í skiftingu auðæfa náttúrunnar. Gæði og auðæfi náttúrunnar eru bundin við full- veldi ríkjanna, ríkin „eiga“ hvert sín nátt- úruauðæfa, og verja þau samkvæmt þeirri kenningu. Á meðan þetta samband milli rík- isins annarsvegar og hinna eftirsóttu auðæfa náttúrunnar hinsvegar, er látið viðhaldast, munu styrjaldir endurtaka sig. Samvinnufélagsskapurinn er leið út úr þessu öngþveiti. Samvinnusamtök neytenda eiga nú þegar þýðingarmiklar auðlindir í mörgum löndum. Ef hægt vær að halda enn lengra í sömu átt, þannig að kolanámur Englands, járnnámur Svíþjóðar og olía Rúss- lands væru ekki lengur eign þessara ríkja, heldur væri eign allra neytenda jarðarinnar sameiginlega, væri tvímælalaust ein veiga- mesta orsök styrjalda úr sögunni. Hugsunin er djörf. En þeir, sem hafa fylgst með liinum geysilega árangri, sem samvinnufélögin hafa þegar náð, munu ekki álíta hna fráleita. EGAR við erum fæddir forgöngumenn, hvers vegna eigum við þá að deyja sporgöngumenn?" sagði frægur Englending- ur einu sinni. í Svíþjóð verðum við gamlir um aldur fram. Við stöðnum, verðum form- legir, og hugsun okkar og störf verða „eins og hinna“. Ef við viljum finna undantekningar frá þessari leiðinlegu reglu, verðum við að fara niður til strandabúans eða afdalamannsins — (Framhald á bls. 29.) 4

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.