Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1948, Qupperneq 8

Samvinnan - 01.04.1948, Qupperneq 8
hann hélt aftur til Kristjánssands og réðst til náms hjá Fladmoe. Fladmoe var dugandi myndskeri, vel að sér í dráttlist og dálítið fékkst hann við að móta mannamyndir. Svo vel féll honum vinna Gustavs, að hann greiddi honum tvær krónur á viku í laun, en svo hafði verið um samið, að hann ynni aðeins fyrir fæði sínu og húsnæði. Þótti Gustav þetta mikið fé; — heima í Mandal hafði hann merkt ferðakistur sjómanna, og hlaut tvo aura fyrir nafnið málað skrautletri. Fladmoe veiktist og varð að leggjast á sjúkrahús, er Vigeland hafði stundað nám hjá honum í hálft annað ár. Réð- ist Vigeland þá til náms hjá sænskum myndskera í Osló. Þeir, sem um ævi Vigelands hafa rit- að, telja að um þetta leyti hafi- hann verið í siglingum um skeið, og að hann hafi komizt alla leið til Java. Þetta er nokkrum vafa bundið. Nafn hans finnst ekki í farráðningaskrám, hvorki í Mandal né Osló. Sjálfur lét hann svo um mælt við konu sína og vini, að hann hefði aldrei í siglingar farið. Engu að síður fullyrðir sænski mynd- skerinn, sem fyrr er um getið, að Vige- land hafi tvívegis ráðist í siglingar, þann tíma, sem hann vann hjá honum, verið tvo til þrjá mánuði að heiman í hvort skipti, og meira að segja orðið skipreika í báðum ferðum. Nú tók föður hans að elna sjúkdóm- urinn, og andaðist hann heima að Vigeland árið 1886. Gustav hvarf þá heim frá námi, og bjó með móður sinni og bræðrum næstu tvö árin. Ekki sleit hann samt tryggð við listina, heldur skar í tré, teiknaði og las í öll- um tómstundum sínum. Hann vann og að mótun mannamynda, en sá liængur var á, að hann varð að eyði- leggja hverja mynd, sem hann hafði lokið við, til þess að geta byrjað á nýrri, því að leir átti hann ekki meiri en það, að vart nægði í eina andlits- mynd, og var leirinn skilnaðargjöf frá Fladmoe. Haustið 1888 hélt hann til Oslóar. Skorti liann þá sex mánuði í tvítugt. Meðferðis hafði hann margar teikn- aðar myndir og frumdrætti, er hann hafði dregið heima, og hugðist bera þær undir dóm Bergslien eða Skei- broks, en þeir voru þá taldir fremstir norskra myndhöggvara og báðir starf- andi í Osló. Þegar til borgarinnar kom, brast hann kjark til að leita á fund þeirra. Réðist hánn til mynd- skera eins fyrir lítið kaup, varð at- vinnulaus um jólaleytið, svalt og átti engan samastað, en svaf í kjallaragöng- um og hvar sem afdrep var að finna. Á VAR ÞAÐ, að hann tók í sig kjark, fór á fund Bergslien gamla og sýndi honum myndirnar. Snorramynd Vigelands. „Hafið þér sjálfur dregið þessar myndir?“ varð hinum aldna meistara að orði, er hann hafði skoðað þær um stund. „Betri myndir minnist ég vart að hafa séð. Svei mér þá. Myndhöggv- ari verðið þér að gerast. Eg skal tala máli yðar við mikilsmegandi menn, já, við konunginn sjálfan.“ Og Bergslien gamli lét ekki sitja við orðin tóm. Hann hóf fjársöfnun með- al málsmetandi manna, Vigeland til námskostnaðar. Sjálfur veitti hann honum tilsögn í sinni eigin vinnu- stofu og reyndist honum vel í hví- vetna. Vigeland vann af kappi, en sam- skotastyrkurinn nægði honum ekki einu sinni til brýnustu nauðsynja og oft varð hann að þola kulda og skort. Margan daginn svalt hann heilu hungri. Efnamaður nokkur bauðst til að taka hann að sér í sonar stað og kosta hann til náms, en hann afþakk- aði boðið. Er hann hafði stundað nám hjá Bergslien nokkra hríð, réðst hann til náms hjá Skeibrok, og var það að ráði Bergslien. Skeibrok mátti sín mikils, og álitið var, að hann hefði hönd í bagga hvað styrkveitingar til ungra listamanna snerti. Margar rnyndir mótaði Vigeland á þessum árum, vöktu sumar þeirra nokkra athygli og eina þeirra keypti Listfélagið, lét brenna hana í leir og efndi til happ- drættis um liana. Árið 1891 hlaut Vigeland í fyrsta skiptið styrk til utanfarar og lagði liann leið sína til Kaupmannahafnar. Þar kynntist hann ýmsum velmetnum myndhöggvurum og vann að sínum eigin myndum á vinnustofum þeirra. Þar lauk hann og við fyrstu myndina, er vakti athygli almennings á list hans og hæfileikum. Nefndi hann myndina „Útskúfun" og sýnir hún mann og konu, er lialda í útlegð með börn sín tvö. Eldri drengurinn hleypur við hlið föður síns, glaður, djarfur og áhyggjulaus; konan, sem ber yngra barnið á handleggiium, er sviphrein og upplitsdjörf, en maðurinn er nið- urlútur og ber öll merki samvizkubits og örvinglunar á andliti sínu. Hund- ur fylgir þeim, og sýnir hann, að Vige- land lét ekki síður að móta dýr en mann, eins og oft sannaðist síðar. — Mynd þessi var sýnd á listasýningu í Kaupmannahöfn, og vaki mikla aðdá- (Framhald á bls. 27) Gustaf Vigeland. Teikning. 8

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.