Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Qupperneq 16

Samvinnan - 01.09.1953, Qupperneq 16
Áhrif sönglistarinnar á húsdýrin 1. Ahrif sönglistarinnar. Eftir því hef ég oft tekið, hver áhrif sönglistin hefur á húsdýr þau, sem ég hef haft undir höndum, eða kynnzt á einhvern hátt. Því til sönnunar langar mig að skýra frá nokkrum atvikum, þar sem það hef- ur komið ljósast fram. Laust eftir 1880 keypti ég rauðan hest, sjö vetra gamlan, hinn mesta listaklár, sem ég hef þekkt. Svo fjör- hár var hann, að heita mátti, að aldrei fengist hann til þess að stíga hægt spor. Þótt ég ræki á honum klyfjahesta, þá tiplaði hann á dans- andi hýruspori. Svo vel kom hann við og var svo ásetugóður, að líkast var því, sem setið væri á fjöðrum. Engan hest vissi ég af honum bera að skjótleik. Og svo léttfær var hann, að kæmi hann að girðingu, þar sem spýta var lögð yfir hliðið á veginum, þá lyfti hann sér yfir spýt- una án þess að hægja ferðina. Rauður — svo var hann jafnan nefndur — var kynjaður innan úr Eyjafirði, og gaf ég fyrir hann 180 krónur. Það var svo að segja óþekkt verð á þeim árum. Hann var í meðal- lagi hár, skrokklítill, en vel limaður, léttilegur og fagur, hvar sem á hann var litið. Þó báru augun af, svo voru þau tindrandi og fögur. Aldrei man ég eftir, að honum yrði fótaskortur, á hvað sem hann fór. Vitsmunahest- ur var hann mikill. Kom það fram í mörgu og meðal annars því, hve hann varð fyrir miklum áhrifum af söng- listinni. Þann ókost hafði Rauður, að til vandræða horfði í hvert sinn, sem hann var járnaður. Fyrsta eða ann- an veturinn, sem ég átti Rauð, tók ég hann og teymdi heim í bæjardyr til að járna hann. Bæjarhúsum var þann veg skipað, að bæjardyr voru víðar og á hvora hlið þeirra stofur. Þá stóð svo á, að Sigurgeir bróðir minn, síðar söngkennari á Akureyri, var að leika á hljóðfæri, þegar við byrjuðum að járna. Nú bregður svo við, að Rauður stendur grafkyrr, og við þessa músik járnuðum við hann til fulls, án þess að hann hreyfði sig hið minnsta. Upp frá því var vand- ræðalaust að járna Rauð, ef leikið var á hljóðfæri eða sungið á meðan. En helzt þurfti söngurinn að vera margraddaður. — Á þessum árum var það alltítt, að um helgar á sumrin væri riðið út, sem kallað var, til nær- sveita eða eitthvað annað. Var þá oft glatt á hjalla og sprett úr spori, og átti Bakkus nokkurn þátt í því, enda var hann venjulega með í slíkum ferðum. Þá varð Rauður allæstur og krafðist þess að fá að vera á undan hópnum. Á annan veg varð ekki við hann ráðið. En færi flokkurinn að syngja, varð hann svo spakur, að hann sætti sig við að vera samsíða hinum hestunum og tók þá ekki í taum. 011 athygli hans dróst að söngnum og olli þeirri hrifningu, að fjörið sefaðist, því að söngsins vildi hann njóta. Á fleiri sviðum komu fram andlegir hæfileikar hans. Ef lítt sjálfbjarga unglingur var á baki hans, var hann hægur. Kæmi það fyrir, að ég væri þann veg á mig kominn, að ég gæti ekki haft vald á honum, þá passaði hann mig og gætti þess vandlega, að ég tylldi í söðlinum. Og ef það vildi til, að ég félli af honum, þá stóð hann kyrr í sömu sporum, þar til ég var kominn á bak. Margt fleira væri hægt að nefna til sönnunar því, að dýrin eru ekki skynlausar skepnur, en auðvitað eru þessir andlegu hæfileikar á mjög mis- jafnlega háu stigi eða áberandi. Hjá hestunum er að ræða um sálarlíf, já, ódauðlega. sál, sem við dauðann flyzt inn í annað æðra líf, og þá verður hann óháður meðferð manns- ins, sem á stundum er öðruvísi en hún ætti að vera, — og allt of oft meira að segja. A sextánda árinu bilaði Rauður í fæti, og átti ég hann í þrjú missiri notkunarlausan án þess að honum batnaði, en varð þá að farga honum. Glámur. I ungdæmi mínu var hundur á heimilinu, sem Glámur hét, fjárhund- ur góður. Þá voru húslestrar lesnir á hverju kvöldi og sálrnar sungnir, all- an veturinn. Glámur sótti mjög eftir að vera aðnjótandi söngsins og helzt þátttakandi, en varð þá nokkuð hjá- róma. Hann söng með sínu nefi. Stóruvallabærinn forni var með Síðar á þessu hausti munu koma út hjá Norðra endurminn- ingar Páls Hermanns Jónssonar, bónda á Stóruvöllum í Bárð- ardal. Hefur hann frá mörgu að segja, sem fyrir liann hefur borið á viðburðaríkri œvi, og eru minningar hans einnig mynd af þeim stökkbreytingum, sem orðið hafa í búnaðarháttum og raunar lifnaðarháttum þjóðarinnar allrar um daga þessa merka bcendahöfðingja. Jón Sigurðsson í Yztafelli hefur skráð minn- ingar Páls Hermanns. Páll er mikill dýravinur og eru í bókinni nokkrar af dýrasögum hans. Hér birtast nokkrar af dýrasögun- um. 16

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.