Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.09.1953, Blaðsíða 17
Páll Hermann íi hestbaki. allra stærstu bæjum. Fram á hlaðið sneru sjö þil. Frá bæjardyrum lágu göng til baðstofu, 25 álna löng. Ut úr göngunum voru: eitt eldhús, tvö búr og skemma. I skemmunni voru geymd reiðtýgi og reiðingar, reipi og fleira. Þar var einnig aðsetursstað- ur hundanna. Ef þess var ekki gætt á kvöldin að láta skemmuhurðina aftur, kom Glámur ætíð inn að bað- stofuhurðinni, þegar farið var að syngja, og tók þá tóninn. Fór það oft illa við sálmasönginn, því að ekki dró seppi af hljóðunum, þó að „harm- oníurnar“ væru ekki hreinar. Varð þá söngfólkinu nóg boðið, svo að allir fóru að hlæja á stundum nema faðir minn. Hann hélt oft söngnum áfram einsamall. Glámur var þá sneyptur og rekinn fram í skemmu sína. Marg- ir álitu, að hundurinn hagaði sér svona, af því að honum félli illa söng- urinn, en það held ég fráleitt. Ef svo hefði verið, þá voru engar líkur til þess, að hann hefði sótt svo eftir því að heyra sönginn. Það var vegna hrifningar, sem hann varð fyrir, að bann vildi heyra hann, og að nokkru leyti ósjálfrátt, að hann fór að „syngja með“, því að seppi hafði hljóðin nóg til þess. Ahrif söngsins komu á þenn- an hátt fram hjá hundinum. Ég hef veitt því eftirtekt, að fleiri hundar hafa látið í ljós tilfinningar sínar gagnvart sönglistinni, þó að Glámur bæri af í því, hvað hann var „músíkalskur“. 2. Hestur leitar sér lcekninga. Fyrir allmörgum árum átti ég leir- ljósan hest, sem ég hafði alið upp og hét Sómi. Hann var hinn mesti grip- ur í sjón og raun. Hann var röskur til reiðar, en þótti nokkuð klúr og harðgengur. Dráttarhestur var hann ágætur, en féll fremur illa baggaburð- ur. Á engjaslætti var ég eitt sinn á- samt öllu fólkinu við heyvinnu um 3 til 4 kílómetra norður frá bænum, en hestarnir voru í bithaga sunnan við bæinn, sem afgirtur var með grjótgarði, og var þar á ofan einn vírstrengur. Sá ljósi hafði það til að lyfta sér yfir girðinguna, er hann rak nauður til, en svo var í þetta sinn. Þegar komið var fram um miðjan dag, sjáum við, hvar Sómi kemur röltandi í hægðum sínum sunnan grundirnar alla leið til okkar, fremur svipdauf- ur, leggst í slægjuna og tekur að velta sér í ákafa, stendur síðan á fætur, slær fótunum á víxl upp í kviðinn og veifar taglinu. Ég sé strax, hvað að er. Hann er með hrossasótt. Ég tek hestinn, beizla hann og ríð honum heim, læt hann fara smáspretti, ef sú hreyfing gæti haft þau áhrif, að kveisan batnaði, svo sem stundum getur átt sér stað, þótt það heppnaðist ekki í þetta sinn. Þegar heim kom, fór ég að reyna ým- islegt við hann, aðallega sterkt kaffi, og nuddaði hann svo fast, sem ég ork- aði. Að lokum fór Sómi að teðja, og batnaði þá kveisan. Nú á seinni árum hafa mér reynzt kransaugnadropar öruggasta læknis- Iyf við hrossasótt. Engan vafa tel ég á því, að hest- urinn var að leita sér hjálpar. Hann fer fram hjá túninu og bænum af því, að hann vissi, að fólkið var ekki heima. Og munað gat hann það, að ég hafði áður hjálpað honum, er líkt stóð á. Af fleiru mátti marka, að Sómi var mikill vitsmunahestur. 3. Hestur bíður eftir mannhjálp. Það var eitt sinn að vorlagi í gró- andanum, að atvik nokkurt kom fvr- ir, sem mig langar til að skýra frá. Ég átti hest, sem Moldi hét. Ég hafði alið hann upp. Að nokkru var hann fóstbróðir Sóma. Moldi var meðalhestur á vöxt, skrokkmikill, en fótalágur, og virtist frernur stirðlega vaxinn, enda talið óreitt. Dráttar- hestur var hann góður. Fyrir sláttu- vél unnu þeir saman fóstbræðurnir. Þótt ekki væru þeir líkir að eðlisfari, fór ætíð vel á með þeim. Þrátt fyrir vöxt sinn var Molda ekki aflfátt. Og fleira var honum til lista lagt. Hann stökk drjúgum meira en hæð sína í loft upp, tók í því af Gunnari á Hlíð- arenda. Yfir spilverk í húsum stökk bann, svo ótrúlegt þótti, og yfir girð- ingar, úr hvaða efni sem voru, henti bann sér, þegar honum bauð svo við að horfa. Á vorin, meðan smátt var um gróð7 ur í bithaga, en tún orðið gróið, var Moldi túnsækinn. Þó gætti hann þess, að vitja ekki túnsins, fyrr en allir heimamenn höfðu tekjð á sig náðir, og stunuum var hann kominn til hest- anna að morgni, þegar komið var á fætur. Eitt sinn brást honum þessi boga- listin. Að morgni til, þegar komið er á fætur, sést, að Moldi stendur við girðinguna hreyfingarlaus, svo við fórum að vita, hvað að væri. Eins og f}rrr getur var einn vírstrengur ofan á grjótgarði í girðingunni. Þegar við komum að Molda, sást, að hann hafði stokkið yfir grjótgarðinn, en aldrei þessu vant fatast, svo að vírinn hafði lent milli fótanna og Iá upp í nárann. Þetta fann hesturinn og þorði sig ekki að hreyfa, því þá stungu gaddarnir Framli. á bls. 21. 17

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.