Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Page 23

Samvinnan - 01.09.1953, Page 23
Bréfaskóli SÍS kennir nú höfuðgreinar til landsprófs Bréfaskóli SÍS hefir nú starfað í 13 ár, en hann var stofnaður árið 1940. Fyrirmyndina um starfshætti skólans varð að sækja erlendis frá, því þessi kennsluaðferð var alger nýjung á Islandi. Stjórn StS, sem að stofnun skólans stóð, gerði sér ljóst, að hér á landi hlyti að vera grundvöllur fyrir slíkan skóla. Til- gangurinn var og er að veita góða og ódýra kennslu, hvar á landinu sem er. Því hefir ætíð verið lögð mik- il áherzla á að fá skólanum sem hæf- asta kennara í hverri grein. An þess að gera nokkrum órétt, má fullyrða að kennaralið skólans er mjög gott. Strjálbýli, samgönguerfiðleikar og fátækt fólksins voru um langt skeið aðalfyrirstaða þess, að íslenzkt æsku- fólk gæti hlotið skólagöngu. Bréfa- skóli hefði vissulega getað bætt mjög úr þessum erfiðleikum. Að sjálfsögðu er þó skorturinn á almennri skóla- kennslu ekkert svipaður og áður var, nema á fáum stöðum á landinu. Starfræksla Bréfaskóla SÍS hefur sýnt, að hægt er með bréfakennslu að bæta hér mikið úr. Það hefur sýnt sig, að bréfakennslan er ótrúlega ör- ugg og árangursrík kennsluaðferð. Það veltur fyrst og fremst á nemand- anum sjálfum, hvort árangur næst eða ekki. Hlutverk Bréfaskóla SÍS hefur einkum verið að veita kennslu fólki, sem ekki sækir aðra skóla, en stund- ar atvinnu sína jafnframt bréfanám- inu. Hundruð og aftur hundruð af slíku fólki hafa þannig öðlazt þekk- ingu í 5'msum greinum, sem hefur veitt því sterkari aðstöðu í þjóðfé- laginu. Fjöldi manna hefur fengið betri atvinnu en hann áður hafði, vegna þekkingar, sem fengin var í bréfaskólanum. Þá hefur Bréfaskólinn sniðið kennslu sína í nokkrum námsgreinum eftir hinu almenna skólakerfi lands- ins. Skólinn veitir kennslu í nokkrum þýðingarmiklum námsgreinum undir landspróf, þ. e. íslenzku, dönsku, ensku, stærðfræði og eðlisfræði. Með hjálp Bréfaskólans ættu greindir nemendur að geta búið sig undir landspróf án þess að sækja hina venjulegu skóla eða a. m. k. að geta stytt mikið skólagöngutímann undir landspróf. Auðséð er hvílíkt fjár- hagslegt hagræði það er fyrir þau heimili, sem geta stytt dvöl ungling- anna við skóla fjarri heimilum sín- um. Námsgreinum skólans fjölgar ár frá ári. Nú í haust bætast við íslenzk málfræði og íslenzk setningafræði. Kennari verður cand. mag. Bjarni Vilhjálmsson. Á síðasta ári innrituðust 735 nýir nemendur. Þá hafa innritast í skól- ann rúmlega 6000 nemendur frá fyrstu tíð. Ryðvarna- og hreinsunarefni Öldum saman hefur hinn nytsami málmur, járnið, ryðgað í sundur, tærzt, svo að segja gufað upp í höndum mannanna. Nú er lyfið gegn þessu mikla böli fundið. FERRO-BET getur verndað eigur yðar, hús, vélar, skip, áhöld og öll mannvirki gegn eyðileggingu ryðsins. Þér þurfið ekki framar að strita við að skrapa húsa- þök eða annað ryðgað járn. FERRO-BET vinnur verk- ið fyrir yAur á svipstundu með miklum yfirburðum. Fæst í öllum kaupfélögum landsins. SÖLUUMBOÐ: Samband ísl. samvinnufélaga 23

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.