Samvinnan - 01.10.1953, Qupperneq 4
*
reisir minnismerki að Yztafelli
Sex metra há súla stendur á grunni gamla
bæjarhússins, þar sem SÍS var stofnað.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
lét á síðastliðnu sumri reisa minnis-
merki um stofnun samtakanna að
Yztafelli 1902. Er minnismerkið sex
metra há súla, hvít að lit, og sézt hún
víða að. Súlan stendur á grunni
gamla bæjarhússins, en í því var
stofnfundurinn haldinn, eins og kunn-
ugt er. Hefur verið ste}?pt plata yfir
grunninn, en hann að öðru leyti lát-
inn halda sér sem mest eins og hann
var.
Súlan í Yztafelli er þrístrend, og er
hugmyndin á bak við það sú, að þrjú
voru kaupfélögin, sem stóðu að stofn-
un Sambandsins. A hverri hlið sjálfrar
súlunnar er upphleypt keðjumynd og
er það tákn samvinnunnar, þar sem
hver einstaklingur gerist hlekkur í
sterkri keðju. Loks verður áletrun á
stalli minnismerkisins og mun standa
á einni hlið: „Hér var Samband ísl.
samvinnufélaga stofnað 20. febrúar
1902“, og á annari: „Minnismerki
þetta var reist í tilefni af 50 ára af-
mæli Sambandsins 20. febrúar 1952“,
og loks á binni þriðju nöfn þeirra
fulltrúa, sem sátu stofnfund Sam-
bandsins. Áletrumn verður með kop-
arstöfum og var hún ekki komin, er
meðfylgjandi myndir voru teknar af
súlunni.
Þeir bræður, Jón og Marteinn Sig-
urðssynir, hafa gefið Sambandinu
grunn hins gamla bæjarhúss, þar sem
minnismerkið nú stendur, ásamt
nokkrum skika umhverfis það, svo að
unnt verði að laga til næsta umhverf-
ið og gróðursetja þar nokkur tré til
viðbótar þeim, sem voru við suður-
gafl gamla hússins og enn standa.
Undirbúning að minnismerkinu á
Yztafelli önnuðust og hugmyndir að
gerð þess áttu þeir Erick Hoppe húsa-
meistari hjá teiknistofu SIS og Bene-
dikt Gröndal ritstjóri. Hinn fyrr-
nefndi gerði allar teikningar, en súlan
var steypt af Mosaik h.f.
Fyrri hluta septembermánaðar hélt
KaupfélagÞingeyinga almenn fræðslu-
og skemmtikvöld í öllum deildum fé-
lagsins, þar á meðal eitt að Yztafelli.
Fór sá fundur að mestu fram við hið
nýja minnismerki í einmuna fögru
haustveðri. Baldvin Þ. Kristjánsson,
erindreki SIS, hefur skýrt Samvinn-
unni svo frá fundi þessum:
4
YZTAFELLSFUNDURINN hófst
eftir hádegi sunnudaginn 13. sept. í