Samvinnan - 01.10.1953, Síða 16
Fljótið Menam...
(Framh. af bls. 7).
muni allþungur undirstraumur. Nú
er komið út fyrir takmiirk borgarinn-
ar, en byggð þó allþétt. Húsin standa
flest á staurum, sem reknir hafa verið
niður í grynningarnar í námunda við
árbakkana, nokkur í brekkum við ána,
örfá sjást ofar í rjóðrum. Virðist, eftir
útliti húsanna að dæma, auðsætt, að
þeir, sem vel eru settir efnalega, búi
fjær ánni, en öll alþýða í Jiinum, sem
við hana eru eða yfir henni byggð.
Gróður er geysimikill, og ber mest á
bananatrjám, bambusviði og ýmsum
pálmategundum, auk blómjurta og
trjátegunda hitabeltisins, sem ég kann
engin heiti á.
Víða eru bryggjur við liúsin eða
stigar, sem liggja frá þeim niður að
pöllum á ánni. Alls staðar eru svalir
eða sólhlífar við húsin, þar sem strá-
þök liggja yfir til skjóls þeim, sem
þar eru að vinnu. Hér virðast flestir
fullorðnir hafa eitthvað fyrir stafni,
konur gæta barna eða þvo lín, karlar
starfa að handverki ýmis konar, að-
dytting báta eða húsa, netabæting,
flutning ávaxta eða annars varnings
til eða frá ánni.
Flestir eru léttklæddir, næstum allir
Ijerfættir, konur í treyjum og pilsum,
karlmenn í stuttbuxum, sumir í skyrt-
um. Allmargir klæðast svörtum fötum,
sams konar og þeim, sem algengust
eru í Kína, margir hafa stráhatta, er
svipar til þeirra, sem einkum eru not-
aðir af kínverskum kúlíum.
Eftir því sem við höldum lengra
fjiilgar farartækjunum et halda í sömu
átt og við, og einnig hinum, er \ irðast
komin í áfangastað, en það eru bæði
verzlunarbátar og fiskiskip. Munu
hinir fyrrnefndu telja vænlegi’a að
taka sér vígstöðu spölkorn þaðan, sem
gera má ráð fyrir að bardaginn um
viðskiptin verði harðastur, en veiði-
mennirnir hafa dreift flota sínum alls
staðar um ána, en hún mun fiskisæl
mjög, og eru flestir með net en aðrir
dorga. Sýnist mér að hlutur þeirra
muni rýr, enn sem komið er, að
minnsta kosti.
Wot Pra !<('() musteriö.
Næstum allir bátanna eru áraskip,
og er flestum róið af einum, er situr
eða stendur í skut, og er árin ein.
Tveir eru þó í sumum bátanna, trú-
lega hjón, og ef annað hvort rær, þá
er það oftast nær konan, en liér í Siam
og Suður-Kína þykir eðlilegt að konur
^rfiði engu síður en karlar, og er al-
gengt að sjá þær við ýmis störf, sem
okkur Evrópumönnum þykja engin
kvennaverk.
Allir eru verzlunarbátarnir hlaðnir
einhvers konar varningi, handiðnar-
vörum, ávöxtum, afurðum húsdýra,
álnavöru eða angandi veitingum ým-
islegum, svo sem rjúkandi kaffi með
nýbökuðum kökum og réttum, er
kryddaðir hafa verið hinum ágætustu
ilmjurtum.
Sá, sem læs væri á lífsins bók, myndi
eflaust geta séð marga sögu skráða í
svip og fari þeirra, er stefna nú bátum
sínum fram til fljótandi markaðs á
Menam, því að tegund og gerð vör-
unnar greinir livert lilutverk eigandi
hennar hefir kosið sér, en útlit lians
og farkostur gefa oft vísbending um,
hversu lionum hefir tekizt að skila
Því.
Þungbrýnn leirkerasmiður hefur
tekið sér stöðu rétt úti við árbakkann
í skugga tveggja kókospálma. Hann
virðist naumast taka eftir okkur, enda
hefur hvítur ferðalangur eflaust aldrei
keypt af honurn ker. Við þurfum held-
ur ekki annað en að líta þær rúnir, er
lífið hefur rist, til þess að verða vissir
um að þarfleysa tóm sé að tefja för
þar sem þessi gamli handverksmaður
hfmir. Leirkerin hans eru áreiðanlega
léleg.
Við höfum staðnæmst til þess að
horfa á flota af tekkviðartrjám, sem
tveir unglingar fleyttu niður ána
Stúlka, sem reri litlum, hátimbruðum
báti, leit til okkar. Hún virtist allt í
einu sannfærast um, að við biðum
kaupskapar, og þá lagðist iiún þungt
á árina, bakborðsmegin, vatt henni
svo fimlega yfir á stjórnborða, þar sem
Iiún andæfði, og þverbeygði þannig,
svo að bátarnir urðu samsíða, fleygði
árinni í skutrúm, greip með annarri
hendinni körfu úr varningshlaðanum
og lyfti í áttina til okkar, en tók hinni
í borðstokkinn á vélbátnum. Allt gerð-
ist þetta með svo mikilli skyndingu,
að það var næstum eins og að þessarri
brosandi, ungu stúlku hefði fyrirvara-
laust skotið þarna upp úr ánni. Og
einhvern veginn virtist hún sjálf svo
sannfærð um að ég myndi kaupa, að
mél' fannst það næstum greiði, er hún
lilífði mér við körfunni, en lét sér
nægja að selja ilskó. Svo greip hún ár-
ina aftur, stjakaði, tók nokkur áratog,
og innan stundar var báturinn horf-
inn. En er ég var orðinn einn eftir
með skóna, þá varð mér allt í einu
ráðgáta hvers vegna ég hafði keypt þá.
Hvað átti ég að gera með þessa skó?
En svo minntist ég liennar, sem brosti
við mér úr skugga stráhattsins, og vissi
að þeir myndu löngu síðai vekja mér
endurminning þess, og þá fannst mér
aftur, að hún hefði gert mér greiða
með því að selja þessa skó.
Flest börn og ungmenni Austur-
landa brosa ekki að fyrra bragði við
hvítum manni. Þau virða hann stilli-
lega fyrir sér, oft í þögulli spurn, gera
hlé á leik meðan hann fer hjá, stinga
svo sarnan nefjum og taka aftur þar
til sem fyrr var frá horfið.
Ég hef veitt því athygli, að börnin
í Bangkok r irðast engan beyg liafa af
okkur hvítum mönnuni. og nú, þegar
komið er hér út á ána, er auðsætt að
þeirn þykir skemmtileg tilbreyting að
sjá hvítan mann í báti, því að það er
brosað og veifað litlum, sóllirenndum
16