Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Side 15

Samvinnan - 01.12.1955, Side 15
í réttarskjölum og kvittunum, sem geymst hafa. Hann eignaðist son, en enginn veit, hvort móðirin var konan hans, eða hvort hann giftist nokkurntíma. Hann fór í mál við skattayfirvöldin. E1 Greco áleit, að list ætti ekki að skatt- leggjast. Endalokin urðu þau, að hann vann málið. Nú á dögum hefði hann víst verið kallaður „business-maður“. I fyrstu málaði hann aðallega fyrir kirkjur. Filippus 2. fékk mynd hjá honum, en var óánægður með hana og verzlaði ekki meira við E1 Greco. Samt sem áður var alltaf nóg að gera á verkstæði Grecos. Hann geymir frumdrætti að verkum sínum og mál- ar aftur og aftur myndir, sem seljast. I Toledo rekur hann verzlun, sölu- menn fara um landið þvert og endi- langt, og í Sevilla er sagt, að hann hafi haft fasta útsölu á verkum sínum. Augljóst er, að E1 Greco hefur haft hóp aðstoðarmanna og fjölda nem- enda til að anna pöntunum. Það er sennileg skýring á því, að mörg verk með hans nafni eru misjöfn að gæð- um. Fáar sögur eru enn til um E1 Greco. Ein sagan segir, að nemandi hans gerði mynd fyrir klaustur nokkurt. Munk- arnir vildu ekki borga tvö hundruð dúkata, eins og nemandinn krafðist, og sendu boð eftir E1 Greco. Meistar- inn kom, og þegar málið var skýrt fyr- ir honum, réðist hann á nemanda sinn og vildi lúskra honum með stafnum. Munkamir gengu á milli þeirra og sögðu, að drengurinn þekkti ekki gildi peninga. E1 Greco svaraði: „Nei, en það, sem verra er, að drengurinn þekkir ekki gildi myndarinnar. Þorsk- hausinn ætti að vita, að svona góð mynd á að kosta minnst fimm hundr- uð dúkata. Og ef hann fær ekki strax sína peninga, þá getur hann komið með myndina til mín.“ E1 Greco hélt sig ríkmannlega; þar var nú „ekkert knífirí með harða brauðið.“ Hann hafði hús á leigu með hvorki meira né minna en tuttugu og fjórum herbergjum, og hann hélt tón- listarmenn til að spila sér til yndis og ánægju við máltíðir. Samt sem áður eru það engin ósköp, sem hann lætur eftir sig, þegar hann deyr 1614. Þar eru talin upp húsgögn, sem í mesta lagi fylla tvö herbergi, enn fremur eldhúsáhöld, sængurföt og fatnaður af sama tagi og aðalsmenn gengu í. Bókelskur hefur meistarinn verið, því að í dánarbúi hans eru nítj- án bækur um byggingarlist, tuttugu og sjö grískar bækur og tuttugu og sex latneskar, ítalskar og spænskar bækur. Meðal annars eru þar rit Hom- ers, Euripidesar, Demosþenesar og Esóps. Eitthvað lét E1 Greco eftir sig af leir-, vax- og gipsmyndum, sem talið hefur verið, að hann hafi málað eftir. Fullvíst er þó talið, að hann hafi eitt- hvað fengizt við höggmyndalist. Það, sem einkennir mest verk E1 Grecos, er meðferð hans á ljósinu. Það er ekki nein venjuleg birta, heldur einhvers konar glampi eins og af sterk- um ljóskastara eða sprengingu. Þessi undrabirta skírir ekki lögun hlutanna, heldur breytir þeim. Samtíðarmaður E1 Grecos segir svo frá: „I gær heimsótti ég Greco og stakk upp á smáferðalagi um borgina. Vor- sólin, sem alla hlýtur að gleðja, skein í heiði. Ég varð undrandi, þegar ég gekk inn til Grecos. Gluggatjöldin voru dregin svo þétt fyrir, að varla sást skíma. Greco sat þar á stól. Hann var ekki að vinna og hann svaf heldur ekki. Ekki vildi hann ganga út með (Framh. d bls. 31) Kristur i GetsemanegarOinum. Málverk eftir El Greco. JÓLAKVEÐJA til húsfreyjunnar í bænum Hvað skal þér hátíð, er á ofþung störf þér annir ber. Þar hefur vetur náð í nýja þörf og níðst á þér. Hver tyllidagur æpir ótt á átök þín, að hreinsa, fága, hlúa að unz húsið skín. Hvert bitakorn, hver sopi sá, er seður mann, er til þín sóttur. Það ert þú, sem þar að vann. Er aðrir bíða Ijóss og lits og leggja starf á hilluna, þú eljar enn við allt sem þarf. Þá velur klæði og veizlukost þín veitul mund og tendrar ljós og hlýjar hús og helgar stund. Þótt lítt eg kunni að þakka það, sem þigg eg hér, þá get eg skrifað, skráð á blað hver skuld mín er. Sigurður frá Brún. 15

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.