Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Side 29

Samvinnan - 01.12.1955, Side 29
Þetta er ný mynd af Sambandshúsinu i Reykjavik. Á myndinni sést nýja dlman, sem byrjað var u 195}. í kjallara hússins hefur bókaútgáfan Norðri aðsetur. Á fyrstu hæð eru véladeild og skipa- deild. Á annari hœð eru Samvinnutryggingar. A priðju lucð skrifstofa forstjóra og á fjórðu hœð fræðsludeild. Þessi bygging er hin vandaðasta og öllu smekklega fyrir komið. fálka af kappi, en gefur ánum gætui um leið. A næstunni á hann að fara að heiman í fyrsta sinn. Hann er ráð- inn að Hafranesi við Reyðarfjörð til Níelsar móðurbróður síns. Það er f jöl- mennt rausnarheimili og búskapur rekinn af kappi til lands og sjávar. Þar yrði víst ekki mikill tími til að sinna listrænum verkefnum. Svo líð- ur dagurinn og drengurinn rekur ærn- ar heim í kvíar. Tvö ár eru liðin. Það er búið að kveikja ljós í baðstofunni á Strýtu í Hamarsfirði, því að enn er ekki áliðið vors. Jón bóndi fæst við koparsmíði. Finnur sonur hans hefur mulið tálgu- stein í femisolíu og málar. Það á fvr- ir honum að liggja að verða frægur málari. Ríkarður er nýlega kominn frá Hafranesi, þar sem hann hefur verið í tvö ár. Hann er knár ungling- vanur átökum til lands og sjávar. Þó er hann fremur hæggerður og draum- lyndur. Hann situr á rúmi sínu í baðstof- unni og greypir í stein mynd af Ijóni. Fyrirmyndin er gyllt ljón á tóbaks- bréfi frá föður hans. Hann hefur nokk- ur útskurðarjárn í höndum. Þau hef- ur Georg læknir Georgsson á Fá- skrúðsfirði sent honum. Ríkarður minnist þess með þakklæti. Hann hugsar um listina og framtíðina. Hann sér í huganum óunnin verk. — Á morgun ætlar hann suður — til náms. G. S. Þar glitra daggir... (Framh. af bls. 11) skríður liðlega krókótta skógargöt- una með Varpen og Ljusnan niður að Segersta, rekur Björkman aðaldrætt- ina úr þróunarsögu byggðarlagsins. Og eftir því, sem mínúturnar líða, breytir landið um svip. Undir sól að sjá verður árbakkinn svartur og speg- almynd trjátoppanna á vatnsfletin- um sem af ævintýralegum turnbygg- ingum og köstulum. Sums staðar sést líka ekki til neinna mannabýla fvrir hinum miskunnsama skógi, sem kann að fela, en týnir þó engu. Það gerir ekkert til, því að mannvirkin eru ekki til prýðis, þar sem guði hefur tekizt bezt upp við sköpunarverkið. Um- hverfið var fyrr en varði orðið óraun- verulegt. Þessar turnspírur höfðu sézt á vatnsfletinum, áður en skóhljóð mannsins rauf hér kyrrðina í fyrsta sinn. Og þó voru þær bara skuggar á vatnsfleti árinnar. Hún hafði ráðið hér ríkjum, brotið niður bakka og hlaðið upp eyrar og nes, áður en trén námu land. Hún hafði seitt til sín lækina og allar hinar árnar hvaðan- æva úr nágrenni sínu og lokkað til að fylgja sér út til sævar. Hún hafði sorfið landið til og mótað sem hönd hins þolinmóða meistara, sem hand- leikur leirinn af stakri vandvirkni og nostursemi, eyðir og endurbyggir, unz listaverkið er fullmótað og eins þótt svo aldrei verði. Hún var sú hönd, sem skapaði landið. FLIÓTIÐ LOKKAR FRUM- BYGGJANN. Fljót höfðu hvarvetna ærna þýð- ingu fyrir byggingu landa. Land, sem stórfljót fellur um, hafði meiri mögu- leika til að byggjast en annað, þar sem svo hagaði til, að mörg fljót smærri féllu hvert í sínu lagi til sæv- ar. Fljótið var inngangurinn í landið. Þannig hefur verið um Ljusnan og Helsingjaland. Hún hefur lokkað (Framh. á bls. 41) 29

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.