Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Síða 19

Samvinnan - 01.12.1955, Síða 19
Ferð Umjaans gamla Þegar /?/ö/c/cumanna/iö/ð/ng/nn heimsótti borg hvltu mannanna UMJAAN SAT við bálið og lét fara vel um sig, ásamt öðrum höfðingjum ættflokksins. Þeir drukku öl af mikl- um móð og allt í einu fóru þeir að tala um hvítu mennina. Umjaan varð því miður að viðurkenna, að hann vissi ekki mikið um þá. Þegar hann var ungur maður og foringi fyrir einni af herdeildum konungsins, hafði hann tvisvar barizt við þá. Seinna hafði hann verið á friðarráðstefnu með þeim sem höfðingi og ráðgjafi og þá hafði hann uppgötvað, að þeir voru fólk, sem bæði brosti og hló. En hann hafði þó í rauninni ekki meiri vitneskju um þá heldur en þegar hann í fyrsta sinn kastaði spjóti sínu í þá. „Þeir eru allir saman galdramenn,“ sagði einn höfðinginn dapur í bragði. „Nei, þeir eru menn eins og við,“ hélt annar fram, „og ég ætti nú að vita það, því að ég hef drepið þá marga.“ „Eg er gamall maður,“ sagði Um- jaan glaður í bragði, „en ég hef nú heyrt svo mikið um þá um dagana, að mér finnst tími til kominn, að ég heimsæki þá til að kynnast þeim.“ Nú urðu umræður um málið. Sum- ir voru sammála Umjaan og aðrir ekki. En aðeins með því að lyfta litla fingri þaggaði Umjaan niður allar mótbárur. „Ég fer auðvitað einn,“ sagði hann, „því að hvítu mennirnir hljóta að þekkja mig, Umjaan, vitr- asta höfðingja kóngsins. Þess vegna er ekki nauðsynlegt fyrir mig að fara með stórt fylgdarlið.“ Einhver hélt því nú blákalt fram, að ef til vill væri Umjaan byrjaður að ganga í barndóm, en gamli höfð- inginn bara hló og fékk sér meira öl. „Farðu þá af stað, Umjaan,“ sagði sá, sem efaðist, „en þó að þú verðir svo heppinn að villast ekki eða lenda í ljónskjafti eða drepast úr sulti á leiðinni, þá er það víst, að þú ferð enga frægðarför til hvítu mannanna. Mundu það, að við tórum aðeins vegna þess, að við höfum forðast þá.“ EN UMJAAN hafði fengið það í kollinn að fara í heimsókn til Shamva, borgar hvítu mannanna, sem var dag- leið burtu. Næsta dag lagði hann land undir fót með matarbita í poka og skikkju úr apaskinni yfir axlirnar. Hann tók sér spjót í hönd af þeirri gerð, sem hann var vanur að nota við hátíðleg tækifæri. Það var fallegt, en ekki til stórræða. Umjaan fór sér að engu óðslega, að nokkru leyti af því, að hann var gamall maður, og að nokkru leyti af því, að það var svo margt að sjá á leiðinni. Hann ljóm- aði af gleði og athugaði landslagið; það hafði ýmislegt breytzt síðan hann fór hér um síðast fyrir tíu árum. Það eina, sem hann þekkti aftur, var risa- stórt tré. Umjaan var alveg gagntekinn af þessu öllu. Oðru hvoru hitti hann menn úr ættflokki sínum — þeir heils- uðu honum og bukkuðu sig með virð- ingu og þunna blóðið í gamla Umjaan tók að streyma örar af stolti eins og í gamla daga, þegar hann kannaði lið sitt fyrir orrustur. Nokkru seinna sá gamli Umjaan sér til undrunar og gleði hvítan mann koma á móti sér á reiðhjóli. Umjaan lyfti handleggnum og hrópaði: „Mangwani — sæll vert þú, bróðir.“ Hvíti maðurinn, sem hafði horft niður á veginn, þegar hann hjólaði, leit nú skyndilega upp og snarbeygði til þess að komast fram hjá gamla manninum, sem stóð á miðjum veg- inum. Við það missti hann jafnvæg- 19

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.