Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1958, Síða 7

Samvinnan - 01.03.1958, Síða 7
VINIRNIR — Gömul saga — Jón Björnsson færði í letur Fyrri hluti Það var áreiðanlega leitun á betri og samhentari vinum en þeim Finni á Bergi og Kjartani í Urð. Þeir ólust upp í ná- býli og fundust nærri því á hverjum degi, þegar þeir höfðu tóm til frá vinnu, en strax og þeir fóru að stálpazt ofurlítið, voru þeir látnir ganga að störfum, eins og gengur og gerist. Þessi barnavinátta þeirra hélzt eftir að þeir voru orðnir full- orðnir og jafnvel treystist með árunum. Var það haft að orðtaki í sveitinni, að líklega gæti ekkert það komið fyrir, sem spillt gæti slíkri vináttu, svo falslausri og innilegri. Vinátta þessara tveggja manna staf- aði sízt af öllu af því, að þeir væru líkir að eðlisfari. Nei, þeir voru svo ólíkir í lundarfari, sem framast mátti verða um tvær mannverur. Finnur var glaðvær og gat oft fundið ýmislegt spaugilegt við hluti, sem fóru fram hjá flestum öðrum, af því að þá skorti kímnigáfu. En hann var talsvert uppstökkur og var þá gjarna stórorður og gætti ekki mjög orða sinna. En vonzkan sat ekki lengi í honum; allt í einu datt allt í dúnalogn og hann varð ljúfur eins og lamb og dálítið skömm- ustulegur á svipinn. Kjartani var þveröfugt farið. Fáir höfðu séð hann hlæja. Hlátur hans náði aldrei lengra en að daufu brosi á vörum hans. Hann var allt annað en bráður í lund og tók aldrei mikið upp í sig, eins og Finnur. Sumir héldu, að hann gæti aldrei reiðst, væri með öðrum orðum skaplaus. En ef betur var að gáð, sáust örsmáar hrukkur á nefinu á honum, ef honum misféll eitthvað. Vegna þessarar skapstillingar sinnar var hann í meiri metum hjá sveitungum sínum en Finn- ur. Finnur hafði eiginlega aldrei verið vinsæll, hvorki sem barn eða fullorðinn, en vinátta hans við Kjartan hafði oft fleytt honum yfir ýmsa erfiðleika, sem öðrum hefðu orðið að falli. Það var sannarlega réttnefni um vin- áttu þessara manna, að andstæðurnar laðist hver að annarri. Meira að segja stjórnmálin, sem oft eru eitthvert hættulegasta eitur fyrir vin- áttu manna, höfðu engin áhrif, enda þótt ætla mætti, að þeir hlytu vegna skap- lyndis síns að verða andstæðingar á þessu sviði. Svo mun og hafa verið innst inni. en það var eins og báðir sæju hætt- una, því að þeir tóku það ráð að stvðja báðir minnsta stjórnmálaflokkinn, enda þótt það væri ekki samkvæmt sannfær- ingu þeirra, en þetta var varúðarráðstöf- un. Og auðvitað létu þeir til sín taka á mannamótum. Finnur lýsti því jafnan yfir, að allir, sem væru á öðru máli en hann, væru gáfnasljóir bjánar. Kjartan Kjartan í Urð hafði alltaf fagnað komu Finns vinar síns á Bergi. En eftir að Unnur kom þar á heimilið, urðu heim- sóknir Finns Kjartani til hins mesta kvalrceðis. Og smám saman magnaðist eitrið í huga hans. ---—---------------------------- var á sama máli, þótt hann notaði mild- ara orðalag. Finnur brosti oft með sjálf- um sér eftir stjórnmálasennurnar, því að þar talaði hann ætíð gegn betri vitund, en alvörumaðurinn, Kjartan, öðlaðist smátt og smátt nýja sannfæringu. Eftir að þeirri hættu, sem mismunandi stjórnmálaskoðanir geta haft á vináttu manna, var bægt frá, virtist ekkert vera lengur til á himni eða jörðu, sem megn- aði að spilla vináttu þeirra. Þegar maður hefur vanið sig á að segja já og amen við öllu, sem vinur manns segir, og vin- urinn svarar með hinu sama jái og am- eni, eru engin líkindi til þess, að vinátt- an líði skipbrot á meðan ævin endist. — Eitt vorið varð gagnger brevting á högum Finns. Faðir hans var orðinn þreyttur á búskaparamstrinu og vildi nú taka sér þá hvíld, sem hann átti skilið fyrir strit heillar ævi. Lét hann því jörð- ina í hendur Finni syni sínum, enda var Finnur duglegur og gefinn fyrir búskap- inn og spáðu margir góðu fyrir honum, sem athafnasömum bónda á Bergi. En sá ljóður var á ráði hans, að hann var hvorki giftur né trúlofaður, og sá strax hver hængur var á að ætla sér að búa með ráðskonu. Hann fór því brátt að líta í kringum sig eftir myndarlegri stúlku. Nú vildi svo vel til, að faðir Kjartans hafði ráðið til sín óvenjulega geðþekka vinnustúlku á heppilegum aldri. Það mátti segja, að það væri ást við fyrstu sýn, er Finnur virti hana í fyrsta skipti fyrir sér, svona í laumi, og það leið ekki á löngu áður en hann varð sannfærður um, að þessa stúlku vildi hann eiga eða enga aðra, eins og kappar fornsagnanna mundu hafa orðað það. Stúlkan hét Unnur. Hún var einhvers staðar að vestan og þekkti engan í sveit- inni áður en hún kom þangað. Þetta var allra fallegasta stúlka, ekki beinlínis lag- leg og heldur ekki sérstaklega fallega vaxin, en allt við útlit hennar var þann- ig, að það kveikti eld í huga Finns. Hann gat ekki annað en verið að horfa á hana, stundum allfast, svo að hún tók eftir því og leit feimnislega niður fyrir sig og roðn- aði eilítið um leið. Þá fannst honum hún ennþá fallegri, því að þessi létti roði fór svo einstaklega vel á hinum búlduleitu kinnum hennar; Unnur var víst afskap- Iega saklaus. Hann var staðráðinn í að biðja hennar á góðan gamaldags máta strax er hann fengi tækifæri til þess. Finnur á Bergi hafði jafnan verið tíð- ur gestur í Urð, en eftir að Unnur var komin þangað, heimsótti hann Kjartan næstum því daglega. Það var hægara fyrir hann að skreppa af bæ nú, eftir að hann var orðinn húsbóndi, enda kvaðst hann þurfa að ráðfæra sig við Kjartan um marga hluti og sló vini sínum gull- hamra í ákafa fyrir hvað hann væri ráðagóður og útsjónarsamur í öllu, er að búskapnum laut. Faðir Finns var algjör- Iega afhuga öllu slíku og kvaðst ekki skipta sér af búskap sonar síns; hann væri full fær um hann sjálfur, drengur- inn! En auðvitað var erindi Finns fyrst og fremst það, að sjá Unni og tala við hana ef unnt væri, þótt ekki væri nema að segja eitt eða tvö orð við hana, svo að hann gæti heyrt rödd hennar. Stundum var hún ekki heima, svo að hann fór er- indisleysu. Varð hann þá svo vonsvikinn og reiður, að hann svalaði skapi sínu á steinunum í götunni með því að húð- skamma þá. Svona var ást hans orðin innileg. Innst inni vissi hann þó, að hann hafði SAMVtNNAN 7

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.