Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1958, Síða 2

Samvinnan - 01.06.1958, Síða 2
Útgefandi: Samband ísl. samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Blaðamaður: Gísli Sigurðsson. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími: 17080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 90.00. Verð í lausasölu kr. 9.00. Prentsmiðjan Edda. Efni: Forsíðumynd: MusteriMormóna í Salt Lake City. Fjárhagslegt lýðræði í fram- kvæmd, eftir Hauk Snorra- son......................... 3 Ævintýri um fyrirheitna land- ið, eftir H. K. Laxness, síð- ari hluti .................. 4 Þau gömlu, smásaga eftir Amalíu Líndal .............. 8 Pílagrímsför til Islands, eft- ir Þórð Björnsson.......... 10 „í átthagana andinn Ieitar“, þáttur um Grím Thomsen eftir Gils Guðmundsson . . 14 Æfingin skapar meistarann, íþróttaþáttur Samvinnunn- í minningu skálds, eftir Gunn- ar Gunnarsson........... 19 Samvinnuskólinn .......... 21 Vaðlaklerkur, framhaldssaga eftir St. Blicher.........23 J Ú N í 1958 Lll. árgangur 6. Amalía er íædd í Boston 1926. Hún stund- aði nám við háskólann þar og lauk það- an BS prófi. Amalía hefur skrifað sögur á ensku, sem auk þess gerast við banda- rískar aðstæður, en íslenzkt efni hefur hún ekki tekið til meðferðar áður. Hún var um tíma fréttaritari hins kunna stórblaðs Christian Science Monitor. Þátturinn um Grím Thomsen. Gils Guðmundsson, rithöfundur hefur tekið saman þátt um þjóðskáldið Grím T h o m s e n. Þa.ð er í ráði, að Gils skrifi fleiri slíka þætti um ýmsa gengna ágæt- ismenn. Gils er löngu þjóð- kunnur fyrir ritstörf sín. Af bókum eftir hann iná nefna „Skútuöldina", þjóðfræðasafnið „Prá yztu nesjum“, 6 bindi alls, „Drekkingar- hylur og Brimarhólmur", sagnarit um gömul dómsmál og ævisögur. Auk þess var Gils ritstjóri bókanna „Öldin okkar“ og „Öldin sem leið“. Gils er fæddur í Hjarðardal í Önund- arfirði 1914 og átti þar heima framund- ir tvítugt. Stundaði nám við Kennara- skólann og starfaði nokkur ár við kennslu. Ásamt náminu og eftir það stundaði Gils sjómennsku á Vestfjörðum og í Sand- gerði. Hann var ritstjóri sjómannablaðs- ins Víkings 1944—53. Næstu þrjú árin fékkst Gils við ritstörf og sat á alþingi. 1956 hóf Gils störf hjá Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins og hefur verið þar framkvæmdastjóri síðan. Smásagan „Þau gömlu“. Smásagan, sem birt- ist hér í blaðinu, er sérstæð að nokkru leyti. Hún er eftir bandaríska konu, sem gerzt hefur innflytj- andi til Islands og tekur til meðferðar íslenzkt söguefni: Öldruð hjón, sem verða að bregða búi Amalía og flytjast á mölina, þar sem ólíkt um- hverfi og önnur vandamál mæta þeim. Höfundur sögunnar heitir Amalía Lín- dal og er gift Baldri Líndal, efnaverk- fræðingi. Hún kynntist Baldri, þegar hann var við nám vestra og fluttist hing- að með honum 1949. Þau eiga 4 börn. Collingwood. Útvarpserindi Þórð- ar Björnssonar um erlenda gesti á öld- inni sem leið, eru mönnum í fersku minni. Þórður hefur í 17 ár safnað mikl- um fróðleik um þá hluti og er manna bezt að sér um þá. Þegar Samvinnunni barzt hin gullfallega Þórður bók með myndum Collingwoods, kom ekki til greina að leita til annars en Þórðar um lesningu með myndunum. Hinsvegar mundi það hafa takmarkað gildi að skrifa um Coll- ingwood án mynda hans. Þórður er fæddur í Reykjavík 1916. Hann lauk prófi frá menntaskólanum 1938 og prófi í lögfræði 1940. Að því búnu varð Þórður fulltrúi hjá sakadómara og gegnir hann því starfi enn. Um skeið dvaldi Þórður erlendis við frekara nám. Hann hefur átt sæti í flugráði frá stofn- un þess 1947 og í bæjarstjórn Reykjavík- ur hefur hann setið síðan 1950. Smásagnakeppnin. Úrslit eru nú kunn í smásagnakeppni Samvinnunnar og fóru þannig leikar, að Bjarni Benediktsson frá Hofteigi gekk með sigur af hólmi fyrir söguna „Undir dómnum“. Önnur verðlaun hlaut Guðný Sigurðardóttir, Hringbraut 43, fyrir sög- una „Tveir eins — tvær eins“ og þriðju verðlaun hlaut Ási í Bæ í Vestmanna- eyjum fyrir söguna „Kosningadagur- inn“. Mun fleiri sögur bárust nú en í tveim fyrri smásagnakeppnum Samvinnunnar, eða 152 alls. Þar af voru 53 eftir konur og 97 eftir karlmenn. Tvær voru ómerkt- ar. Dómarar voru Andrés Kristjánsson, Andrés Björnsson og Benedikt Gröndal. Töldu þeir sögurnar jafnari að gæðum en áður. Samvinnan mun nota forkaups- rétt að allmörgum sögum og verður höf- undum þeirra tilkynnt það. Verðlauna- saga Bjarna mun birtast í júlíhefti Sam- vinnunnar og hinar í næstu blöðum. Gils 2 SflMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.