Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1962, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.03.1962, Qupperneq 23
ar óvænt orðið martröð fyrir skólastúlkuna fjórtán eða fimmtán ára, og hafði móðir náttúra þá tekið í taumana og miskunnsamlega þurrkað út minningar hins liðna? Þessi skýring var líklegust frá sjónarmiði Blacks. En hann var maður heilstevptur; honum var borgað vel fyrir rannsóknir sínar og hann var ráðinn í að fara ekki á fund viðskiptavinar síns að hálfn- uðu verki. Öll varð sagan að vera. Hann mundi að Mary Warner hafði farið til Carn- leath til að ná sér eftir sjúk- leikann, sem talinn var hafa verið gigt. Black ákvað að fara þangað. Fyrirtækið, sem hann starf- aði við, sá honum fyrir bifreið, og á henni lagði Black nú af stað. Honum flaug í hug að smávegis orðaskipti við Harris gamla garðyrkjumann gætu borið góðan ávöxt, og þar eð Long Common var í leið hans til vesturhluta landsins, kom hann þar við. Sem átyllu not- aði hann rós, sem hann hafði keypt og ætlaði að segja að væri úr sínum eigin garði. Hugðist hann færa garðyrkju- manninum rósina að gjöf sem í launaskyni fyrir ráðlegging- arnar, sem hann hafði þegið í fyrri heimsókninni. Um miðjan dag kom Black að koti gamla mannsins, sem hann hélt þá vera heima að miðdegisverði. En því miður var Harris ekki heima. Hann hafði brugðið sér á blómasýn- ingu í Alton. Hin gifta dóttir hans kom til dyra með ung- barn á handleggnum og kvaðst ekki hafa hugmynd um hve- nær sá gamli kæmi aftur. Hún var geðfelld kona og vingjarn- leg að sjá. Black kveikti sér í vindlingi, skilaði af sér rós- inni og dáðist að barninu. „Ég á einn svona ungling heima,“ sagði hann af sínum venjulega léttleika við að sýn- ast annar en hann var. „Er það virkilega, herra?“ sagði konan. „Ég á tvö í við- bót, en Roy er uppáhald fjöl- skyldunnar." Þau hjöluðu saman á tæpi- tungu meðan Black reykti vindlinginn. „Segið föður yð- ar að ég hafi verið í Hythe fyrir einum eða tveimur dög- um,“ sagði hann svo. „Ég var að finna dóttur mína, sem er í skóla þar. Og svo einkenni- lega vildi til, að ég hitti skóla- stjórann í St. Bee, skólanum sem ungfrú Mary Warner var í — faðir yðar var að segja mér frá því og hve reiður sóknar- presturinn hefði orðið, þegar dóttir hans sýktist þar af gigt- veiki — og skólastjórinn mundi vel eftir ungfrú Mary. Hann hélt því fram, eftir öll þessi ár, að gigt hefði ekki valdið þjáningum stúlkunnar, heldur einhver sóttkveikja, sem hún hefði fengið heima fyrir.“ „Ó, var það virkilega," svar- aði konan. ,Jæja, ég býst við að hann hafi orðið að segja eitthvað vegna skólans. Já, það var heitið á skólanum, St. Bee. Ég man að ungfrú Mary talaði oft um St. Bee. Við vorum þá farnar að þroskast töluvert og þegar hún var heima, var hún vön að lofa mér að nota reiðhjólið sitt. Það var stórkostleg skemmtun fyrir mig í þá daga.“ „Hún hefur þá verið heldur blíðari á manninn en prestur- inn,“ sagði Black. „Mér skild- ist að faðir yðar hefði ekki verið yfir sig hrifinn af hon- um.“ Konan hló. „Nei,“ sagði hún. „Ég er hrædd um að svo hafi verið um fleiri, enda þótt ég þori að segja að hann hafi verið mjög góður maður. Ung- frú Mary var dásamleg. Öll- um féll vel við ungfrú Mary.“ „Yður hlýtur að hafa þótt leitt,“ sagði Black, „að hún skyldi fara til Cornwall án þess að koma heim til að kveðja.“ „Ó, svo sannarlega þótti mér það. Ég hef aldrei getað skilið það. Ég skrifaði henni meira að segja, en fékk aldrei svar. Það olli mér dálitlum sárindum og mömmu líka. Þetta var svo ólíkt ungfrú Mary.“ Black fitlaði við skúfinn, sem prýddi skó ungbarnsins. Andlit þess var farið að leggj- ast í grátviprur og hann vildi dreifa sorgum þess með ein- hverju móti. Hann kærði sig ekkert um að dóttir garðyrkju- mannsins færi inn að svo komnu máli. „Henni hlýtur að hafa þótt einmanalegt á prestssetrinu,“ sagði Black. „Ég geri ráð fyrir að hún hafi verið fegin fé- lagsskap yðar, þegar hún var heima í fríi.“ „Ég held að ungfrú Mary hafi aldrei verið einmana,“ sagði konan. „Hún lagði gott til allra og talaði við hvern sem var, algerlega laus við dramb prestsins. Við vorum vanar að leika okkur saman, þóttumst vera indíánar og fleira þvíumlíkt. Þér vitið hvernig krakkar eru.“ „Engir piltar eða bíó á þeim tímum?“ „Neinei. Ungfrú Mary var ekki þannig. Stúlkurnar eru hræðilegar nú á dögum, finnst yður ekki? Eins og ungar kon- ur. Þær hundelta karlmenn- ina.“ „Ég þori að veðja að þið hafið báðar átt einhverja að- dáendur, þrátt fyrir allt.“ „Nei, herra, í sannleika sagt var ekki um slíkt að ræða. Ungfrú Mary var svo vön piltum frá St. Bee að hún hugsaði aldrei um þá úr hófi fram. Auk þess hefði prestur- inn aldrei þolað neitt, sem minnti á „aðdáendur.“ „Ég geri ráð fyrir því. Var ungfrú Mary hrædd við hann?“ „Það veit ég ekki. En henni var mjög umhugað að gera honum ekki gramt í geði.“ „Hún hefur auðvitað alltaf orðið að vera komin heim áð- ur en dimmt var orðið.“ „Ójújú. Ungfrú Mary var aldrei úti fram í myrkur.“ „Ég vildi að ég gæti fengið dóttur mína til að hætta að koma seint heim,“ sagði Black. „Á sumrin kemur hún stund- um ekki heim fyrr en klukkan er nærri því ellefu. Það er ekki gott. Sérstaklega meðan það gerist, sem maður les um í blöðunum." „Skelfilegt, finnst yður ekki?“ samþykkti dóttir garð- yrkjumannsins. „En hér er að sjálfsögðu alltaf rólegt. Ég geri ekki ráð fyrir að þið hafið haft nokkuð af neinu leiðindafólki að segja, hvorki fyrr né síðar.“ „Nei, það höfum við ekki,“ svaraði konan. „Nema auð- vitað þegar humaluppskeran stendur yfir. Þá er hér tölu- vert fjör." Black kastaði frá sér vind- lingnum, sem var farinn að brenna hann á fingrunum. „Humaluppskeran?" endurtók hann. „Já, herra. í þessu héraði er mikið ræktað af humal. Á HÚ5RÁÐ ... 1. Hafið ætíð límband og glæran dúk úr plasti eða öðru efni í bílnum. Verði framrúðan fyrir stein- kasti, má með þessum hlutum framkvæma nauð- synlega bráðabirgðavið- gerð. 2. Fitublettir á skinnfatnaði fjariægjast með eter. 4. Bleytið miðann — velgið flöskuna — miðinn laus. 3. Bronsaða hluti er bezt að hreinsa með sítrónusafa. •------------- /?<> 3. Þunnt plast yfir bakaðar bollur, lyftir þeim. SAMVINNAN 23

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.