Samvinnan - 01.11.1963, Side 16
í dáfögrum dal á Norður-
landi, ekki meir en steinsnar
frá aðalvegi sveitarinnar, hefur
gömul eyðijörð verið byggð
upp að nýju, lagt til hennar
nokkurt land frá nærliggjandi
höfuðbóli og gerð að forkunn-
ar góðu býli.
A nokkrum undanförnum ár-
um hefur þarna gerzt krafta-
verk. Gott og fagurt íbúðarhús
er frágengið utan sem innan.
Útihús og hlöður eru full-
byggð og aðeins eftir að mála.
Tún er stórt og slétt, liggur vel
við sól og er grasgefið. Véla-
kostur er þegar ágætur og bif-
reið stendur á hlaðinu.
Þarna búa ung hjón með
þremur yndislegum börnum
sínum. Amma er á bænum,
börnunum til halds og trausts
og heimilinu til gagns og prýði.
Kaupstaðaunglingar leita þar
athvarfs á sumrum.
Húsfreyjan býr við ágætan
vélakost, jafnt í eldhúsi sem til
þvotta. Stofurnar eru búnar
húsgögnum, sem húsbóndinn
smíðaði, er hann stundaði nám
við smíðadeild eins héraðsskól-
ans. Hannyrðir húsmóðurinnar
gera heimilið hlýtt.
Bústofn er mikill og góður,
bæði nautgripir og sauðfé.
Ekki verður annað séð en
fólkið á þessu fallega, unga
heimili hafi öll skilyrði til þess
að lifa hamingjusömu lífi,
njóta gleðinnar vfir því að hafa
átt þátt í að skapa nýjan og
betri beim og njóta fjölmargra
þeirra gæða, sem lífið hefur
upp á að bjóða. Alldimmt ský
hvílir að vísu yfir bóndabæn-
um. Ungu hjónin bera á herð-
um sér þunga skuldabyrði,
sem greiða verður af háa vexti
auk mikilla afborgana og þau
horfa fram á ákaílega langan
vinnudag og mjög takmarkað-
an tíma til þess að sinna hugð-
arefnum fyrir utan liin daglegu
skyldustörf. En vonandi skil-
ur þjóðfélagið sinn vitjunar-
tíma og sér, að það er bæði
synd og smán, að láta heimili
sem þetta og önnur slík, kikna
undan skuldabyrði og ungu
hjónin og ástvini þeirra verða
ánauðug vegna herleiðingar
vinnuþrælkunar.
Það er gleðiefni að vera
gestur á þessu fagra heimili,
njóta hóglátrar hlýju innan-
húss og vera um stutta stund
þátttakandi í sköpunargleði
fullþroska æsku. Ungur dreng-
ur kemur með brotinn bíl, sem
pabbi þarf að gera við þegar
tómstund gefst. Lítil stúlka er
þegar vaxin upp til hjálpar,
þegar hún hefur tíma til frá
eigin hugðarefnum og sköpun
nýs brúðuheimilis. Amma teng-
ir á fallegan hátt saman fortíð
og nútíð.
Um allt Island má finna
dæmi jiessu lík. Þetta heimili
er um fátt frábrugðið því sem
víða hefur gerzt og er að ger-
ast. Shk kraftaverk má finna í
öllum sveitum. En hvernig er
hægt að vera með í sköpun
veraldarinnar á þennan hátt?
Svörin verða efalaust svo mis-
jöfn sem menn eru ólíkir og
skoðanir margvíslegar. Hér
skal aðeins bent á staðreyndir
til umhugsunar og skýringar.
í næstum 80 ár hefur andi
samhjálpar og samvinnu hvílt
yfir þessu fagra héraði. Og
samvinnu og samhjálp fylgir
máttur til að skapa og löngun
til að skapa. Allt byggingarefni
í hin góðu og fögru hús bænda-
býlisins, sem hér er tekið sem
dæmi, er útvegað af kaupfé-
laginu í byggðinni. Vélarnar
líka. Það útvegar áburðinn á
túnið og það tekur við afurðum
búsins og útvegar fyrir þær
bezta fáanlegt verð. Mjólkur-
flutningarnir eru skipulagðir á
samvinnugrundvelli. í fjöl-
mörgum málum öðrum en
verzlun, hefur samvinnan ver-
ið súrdeig er sýrði brauðið í
þessu fagra héraði, svo sem
mörgum héruðum öðrum. Þeg-
ar börnin þrjú eru komin á
skólaskyldualdur, hefja þau
nám í barnaskóla, sem kaup-
félagið hefur veitt aðstoð til
að byggja. Þegar ungu hjónin
sjá sér fært að eyða nokkru af
hvíldartíma næturinnar til
skemmtunar og gleðileikja,
sækja þau til félagsheimilis
sveitarinnar. Þar hefur kaup-
félagið einnig komið við sögu
til óbeinnar og beinnar að-
stoðar.
Þar sem þannig hagar til og
á meðan þannig hagar til, geta
stórir draumar rætzt og ævin-
týri orðið að veruleika, því að
manndóm og löngun til að
vera þátttakandi í sköpun ver-
aldarinnar vantar ekki æsku-
Framh. á bls. 13.
ANNAÐ BRÉF TIL ÆSKUFÓLKS
16 SAMVINNAN