Samvinnan - 01.11.1963, Blaðsíða 20
*
Daninn Peder Moos þykir flestum arki-
tektum snjallari viS að leiða í Ijós beztu
eiginleika viðarins sem húsgagnaefnis,
enda hafa verk hans verið í hávegum
höfð og þykja meðal hins ágætasta,
sem gert hefur verið á sviði handiðnar.
Stólarnir og borðið á myndinni eru hand-
unnin, enda er hin einstaklingsbundna
tækni við srníði þeirra slík, að óhugsandi
væri að ná henni í fjöldaframleiðslu.
Enda þótt skandinavísk húsgagnasmíði
og hýbýlaskreytingar eigi sér sumpart
þjóðlegar rætur, er svipur þeirra fyrst
og fremst alþjóðlegur, eins og myndin
til hægri ber með sér. Er hún tekin inn-
anhúss í húsi, þar sem danski arkitekt-
inn Arne Jacobsen hefur gert teikning-
araar. Stólarnir bera gott vitni um hinn
vandaða og glæsilega stíl arkitektsins.
SKANDINAVÍSK
HÚSGÖGN II.
Hér birtum við öðm sinni myndir af fáeinum sýnishornum skandinavískrar
húsgagnaiðnar. í þetta sinn eru það verk tveggja frægra danskra innanhúss-
arkitekta, sem við sjáum hér á síðunni.
20 SAMVINNAN