Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1963, Síða 24

Samvinnan - 01.11.1963, Síða 24
á brott og halda sig utan borg- arinnar um nokkurn tíma. Hann tók sér sæti aftarlega í bekkjaröðinni. Konan með brúgnahattinn sat beint fyrir framan hann. Hún talaði við fölleitan mann með stór horn- spangagleraugu. Blue Tick beygði sig áfram og hlustaði. — Með honum er horfinn síðasti góði vísnasöngvarinn, sagði hún. — Já, túlkun hans var svo sönn og tilgerðarlaus, sagði hann. — Já, það var honum svo eðlilegt, hann þekkti fólkið, sem hann söng um, sagði kon- an. — Já, það gerði hann víst ábyggilega, hugsaði Blue Tick með sjálfum sér. Gamalt útslitið stofuorgel byrjaði að stynja, og fólkið hætti að hvískra. Að sálmin- um loknum birtust fimm menn í stúkuklæðum, hrærðir af há- tíðleika stundarinnar. Fjórir þeirra settust á frátekna stóla í fyrstu röð. Hinn fimmti tók sér stöðu við kistuna, stóð þar andartak með lokuð augu og tók síðan til máls: — Vinir mínir, sagði hann, — við erum hér i dag saman- komin til að sýna jarðneskum leifum Ellisworth Winchester síðasta vott þakklætis og virð- ingar. Hann söng á mörgum frægum stöðum undir nafninu Sledge. Hann var reglubróðir okkar og hafði verið það allt frá þvi hann í fyrsta sinn kom til New York á för sinni um þennan heim. Við sáum hann ekki eins oft á stúkufundum og við hefðum kosið, en hann naut mikilla vinsælda meðal stúkubræðra sinna.... Hitinn í salnum eftir hina löngu og köldu ferð með vöru- lestinni, gerði Blue Tick syfj- aðan. Hann hætti að fylgjast með ræðu stúkubróðurins. Hon- um fannst heldur ekki mikið til hennar koma. Hann efaðist stórlega um að stúkubróðirinn hefði þekkt Sledge nokkuð að ráði. Hann var reyndar í mikl- um vafa um, að nokkuð af þessu fólki hefði í raun og veru vitað nokkuð um hann. Hvað skyldi það hugsa, ef hann nú stæði upp, ýtti stúkubróðurn- um til hliðar og segði því frá flóttanum úr hegningarbúð- unum þarna um árið. Hann myndi byrja á deginum, þegar Sledge fann þjölina. Þeir höfðu verið tvö ár í vegavinnuflokki, hlekkjaðir saman á fótunum og þeim hafði fundist það vera heil eilífð. Síðar hefðu tvö ár ekki vaxið þeim í augum, en í þann tíð voru þeir Sledge ungir og þeir töldu dagana. Dag nokk- urn ók smiðurinn fram hjá þeim við vinnu sína og þá datt þjöl af vagninum og niður í vegarrykið. Sledge hafði stung- ið henni á sig áður en verð- irnir sæju hann beygja sig. Um nóttina svarf Sledge öklajárnin á fótum sér næst- um í sundur og makaði i sárið trjákolum, sem hann stal í eldhúsinu. Næstu nótt gerði Blue Tick hið sama, og þriðju nóttina struku þeir. Þeir lædd- ust bsrfættir út úr búðunum með skóna í beltinu, án þess hundarnir yrðu þeirra varir. Strax og þeir voru komnir úr augsýn, greip Sledge steinvölu og í hvert skipti, sem þeir stönzuðu til að kasta mæð- inni, brýndi hann þjölina með henni, þar til hún hafði fengið sæmilega hvassa egg. Þeim sóttist ferðin vel yfir mýrarn- ar, en þeir áttu samt eftir drjúgan spöl að járnbrautinni, þegar þeir heyrðu fyrst til hundanna í morgunsárið. Þeir námu staðar og lögðu við hlustirnar. Blue Tick kólnaði um hjartaræturnar. Sledge hallaði sér upp að kýprustré og hvatti þjölina í ákafa með- an hann hleraði eftir leitar- mönnunum. — Þeir hafa ekki getað ver- ið búnir að uppgötva flóttann af sjálfsdáðum svona snemma. Einhver hefur kjaftað frá. Sá skal fá fyrir ferðina ef ég kemst einhvern tíma í tæri við hann. — Það verður ekki langt þangað til hundarnir verða hérna, sagði Blue Tick. 24 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.