Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1963, Side 25

Samvinnan - 01.11.1963, Side 25
— Þú hefur rétt fyrir þér, sagði Sledge. Þeir skoðuðu þjölina og lögðu niður fyrir sér, hvernig þeir skyldu taka á móti hund- unum. Hundarnir tveir í vinnubúðunum voru frægir um gjörvallt fylkið. Þeir voru kyn- blendingar, sem voru þefvísir eins og sporhundar og grimmir eins og bjarnarhundar. Þeim þurfti ekki að fylgja fast eftir, né hafa í bandi. Það var nóg að sleppa þeim lausum. Þegar þeir höfðu elt uppi flóttamann- inn, héldu þeir honum föngn- um og biðu varðanna. Venju- lega glefsuðu þeir ofurlítið í hann hér og þar. — Hvað eigum við að gera, sagði Blue Tick. Sledge vingsaði þjölinni í þungum þönkum. — Ég verð að reyna að finna upp á einhverju, sagði hann, — ef ég get ekki kálað svona hundkvikindi, á ég líka, svo sem guð er uppi yfir mér, skilið að verða gripinn aftur. — Enn hefur enginn getc.ð kálað þessum hundum, sagði Blue Tick. — Það hefur heldur enginn gripið son móður minnar fram að þessu, sagði Sledge. — Komdu, við skulum reyna að komast áfram. Sólin var komin upp fyrir trjátoppana, þegar þeir fóru að hlaupa og brátt lagðist hitasvækjan eins og slæða yfir mýrarnar. Þeir áttu ekki gott með að hlaupa eftir að hafa verið í hlekkjum í tvö ár. Hundgáin barst óðfluga nær. — Ef við ætlum okkur að ráða við þá, verðum við að hætta þessum hlaupum, sagði Sledge. —• Við verðum að kom- ast að einhverri niðurstöðu um, hvernig við eigum að taka á móti þeim. En eitt er víst; ég læt ekki setja mig aftur í þessa óguðlegu hlekki. Landið var nú ekki eins erf- itt yfirferðar og áður, þeir voru komnir út úr mýrunum og í nokkurri fjarlægð skarst lítið gil í gegnum hæðardrag og niður að lítilli á. Vatnið myndi ná þeim í mitti, straumurinn þungur en þó ekki óviðráðan- legur. Þegar þeir komu að gil- inu, stanzaði Sledge og greip í Blue Tick. — Sjáðu, sagði hann, — hér er gott að verjast. — Flýttu þér, sagði Blue Tick. — Mér finnst eins og hundarnir séu farnir að glefsa í mig. — Hlustaðu nú á, sagði Sledge. — Við hlaupum niður gilið og út i ána. Síðan förum við uppúr aftur og felum okkur hér sitt hvoru megin á gil- barminurn. — Og hvað svo? — Þá rekja hundarnir slóð- ina niður gilið. Þegar þeir koma að vatninu, stanza þeir andartak og eru á báðum átt- um um, hvað þeir eigi að gera. Þá stökkvum við á þá og gerum út af við þá í eitt skipti fyrir öli. — Hvað um verðina? Eigum við líka að stökkva á þá? Þeir eru með byssur, maður. — Gerðu þér ekki rellu út af þvi, sagði Sledge, — þeir koma ekki fyrr en löngu síðar. Svona, komdu nú. Sledge hljóp niður gilið og fleygði sér á jörðina. Hann velti sér rækilega upp úr aurn- um og útí ána. — Nú fá þeir eitthvað til að þefa af, sagði hann. — Blue Tick gerði alveg eins og, síðan skriðu þeir aftur upp á bakkann og lögðust endilang- ir i grasið, sem óx alveg fram á gilbarminn. — Þú þyrftir reyndar líka að hafa eitthvað vopn, sagði Sledge. — Ég hef ekki tíma til að leita r.ð neinu þess háttar, sagði Fme Tick. — Heyrir þú ekki 1 hundunum? — Þeir heyrast vera eins ná- lægt og þú, sagði Sledge. — Ef ég sæi ekki að þú ert með lokaðan munninn, myndi ég halda að þú værir að gelta. Rétt í þessu komu hundarn- ir upp úr mýrunum og upp á barðið. Blue Tick og Sledge grilltu þá renna hiklaust eftir nýrri slóðinni hnakkakerta með glent ginin, öðru hverju geltu þeir óðslega. Þeir hlupu samsíða gegnum gilið, stönz- uðu á árbakkanum og sneru síðan aftur að upprótaða svæðinu í gjánni. Sledge ýtti við Blue Tick og lét sig renna fram af bakkan- um, beint ofan á annan hund- inn. Blue Tick sá þjölina hefj- ast og höggva í einni svipan. Svo fleygði hann sér fram af og reyndi að ná taki á feldi hins hundsins. Honum mis- heppnaðist, en náði þó taki á feldi hans og hélt fast. Hund- urinn streittist á móti glefs- andi og urrandi, Blue Tick missti jafnvægið og féll aftur á bak í ána. Um leið og hann féll, kenndi hann brennandi sársauka í öðru hnénu. Svo fór hann á kaf. Hann sleppti ekki taki sínu á hundinum en reyndi að drekkja honum áður en hann drukknaði sjálfur. Svo hætti hundurinn allt í einu að brjótast um og Blue Tick rétti sig upp. Þegar hann hafði þurrkað leðjuna úr aug- unum, sá hann, að Sledge hafði líka drepið hans hund, hann hafði farið á eftir Blue Tick út í vatnið og beitt þjölinni aftur. Hinn hundurinn lá enn í gjánni. — Flýttu þér, sagði Sledge, — við höfum nauman tíma. Hann dró hinn hundinn út í vatnið. Svo fór hann aftur upp á bakkann og eyddi verksum- merkjunum eftir bardagann. -—Nú verðum við að hlaupa aftur, sagði hann. — En í þetta sinn vita þeir ekki í hvaða átt við höfum farið. — Það getur svo sem vel verið að þú hlaupir, sagði Blue Tick, — en ég get að minnsta kosti ekki hlaupið neitt. Hann settist niður og tók báðum höndum um hnéð. Hann fann af sársaukanum, að það hafði eitthvað rifnað í því, sem ekki yrði lagfært að svo komnu. Eftir nokkra stund yrði það orðið digurt eins og lærið á honum og hart eins og girðingarstaur. Sledge leit SAMVINNAN 25

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.