Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1963, Síða 27

Samvinnan - 01.11.1963, Síða 27
Hann lagði feita hendi á kist- una. — ... til að standa straum af öllu þessu hér. Nú finnst mér, að við getum ekki verið þekkt fyrir annað en að skjóta saman til að veita honum þá útför, sem miklum listamanni sæmir. Því vil ég biðja alla þá, sem hér eru staddir, að leggja af mörkum nokkra skildinga, og þegar ég segi skildinga, þá á ég við seðla. Feiti maðurinn sneri sér fram að dyrunum og gaf Gray- son, líkmanninum, merki. Hann kom þá með stóra postu- línsskál, sem hann setti á lítið borð við kistuna. Síðan gekk hann fram aftur. — Ég vil sjálfur verða fyrst- ur til með þessum hérna, sagði ræðumaður og hélt á lofti tuttugudollaraseðli og sýndi hann lengi, svo að allir mættu sjá, hversu mikil upphæð þetta væri. Hann hélt honum báðum höndum fyrir ofan höfuð sér eitt andartak, lagði hann í skálina og gekk síðan út úr salnum. Líkmaðurinn ræskti sig og tvísté órólega. Stúkubræð- urnir risu úr sætum, gengu hægt framhjá kistunni og lögðu hver um sig einn dollar í sjóðinn. Aðrir fylgdu hikandi dæmi þeirra. Blue Tick stóð lengi fremst í salnum og fylgdist með því, sem fram fór. Hann braut heil- ann um, hvernig Sledge hefði varið fjármunum sínum. Þrátt fyrir ummæli feita mannsins, hlaut hann að hafa unnið sér inn mikla peninga á svo löng- um tíma. Þegar allir aðrir voru farnir, gekk Blue Tick að kistunni og stóð lengi við hana og hug- leiddi, hve langan tíma það tæki, að deyja úr sulti í New York. Hann horfði niður í kist- una og tautaði við sjálfan sig: — Sledge, gamli þrjótur, þetta er í annað sinn, sem þú ferð þína leið og skilur mig eftir með sárt ennið. Og þegar lík- maðurinn kom og hnippti í öxlina á honum, varpaði Blue Tick fyrir borð öllum góðum áformum um að vera löghlýð- inn borgari og tók skjóta á- kvörðun. Hann stakk hend- inni í buxnastrenginn og kippti upp stórri Colt marghleypu, sem hann hafði fundið í kommóðuskúffu hjá matráðs- konu nokkurri og rak hlaupið í magann á líkmanninum. — Nú verður þú þægur og prúður og hefur hægt um þig, sagði hann, — því að ég þarfn- ast þessara peninga mjög og auk þess eru þeir minir með réttu, því Sledge skuldaði mér þá og reyndar miklu meira. Með vinstri hendinni tók hann að troða seðlunum í vas- ann þar til skálin var tæmd. Hann litaðist um í salnum. — Er enginn annar útgang- ur? spurði hann. Líkmaðurinn hristi höfuðið. — Það eru bara þessar einu dyr, sagði hann. — Hefur þú lykilinn? — Já, herra, svaraði lík- maðurinn. Blue Tick tók lykilinn, ýtti líkmanninum í stól og gekk öfugur fram að dyrum. — Hér skaltu dúsa fyrst um sinn, sagði hann. — Og ef þig langar að vita eitthvað, þá skaltu bara spyrja gamla Sledge. Hann segir þér alla söguna. Og svo læsti Blue Tick lík- manninn inni, og hélt leiðar sinnar. Þegar hann nálgaðist neðanjarðarstöðina, heyrði blindi maðurinn hann koma. Hann þekkti fótatakið, ein- kennilega haltrandi eftir fót- hlekki um árabil. — Það var bæði synd og skömm, að þú skyldir koma of seint til að hitta vin þinn á Draumar .... Framhald af bls. 15. var einnig líkleg til þess að vera Samvinnusparisjóðnum til mikils þroska. Og sú varð raunin á. Stofnun sjóðsins varð nauðsynlegt og heilla- drjúgt skref í átt að Sam- vinnubanka. Samvinnumenn vita vel, að Samvinnubankinn leysir ekki alla lánsfjárþörf sam- vinnufélaganna. En hann verður ómetanleg hjálp og styrkur. Þeir vita líka vel, að stofnun bankans út af fyrir sig er ekki neitt loka- takmark. Takmarkið er það, að efla nú bankann með ráðum og dáð. Þrjátíu og lífi. Hvernig fór athöfnin fram? — Ég er nú lítið gefinn fyrir þess háttar, sagði Blue Tick. — En þetta var ekki sem verst. Jón Ásgeirsson þýddi. tvö þúsund félagsmenn í kaupfélögum landsins standa að baki hans í orði. Að þeir geri það einnig á borði er forsenda þess, að hann verði sem allra fyrst því hlutverki vaxinn, að verða öflug styrktarstoð samvinnufélag- anna um leið og hann stund- ar alla venjulega bankastarf- semi, samkvæmt landslögum og reglugerð. Styrkur hins unga banka er fólginn í því, að vera banki þrjátíu og tvö þúsund félagsmanna. Með sameiginlegu átaki gera þeir bankann að traustum gæfu- banka. Páll H. Jónsson. SAMVINNAN 27

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.