Samvinnan - 01.11.1963, Síða 35
AUKIN VERKMENNING: SjávarafurSadeild SÍS hefur óskað eftir mönnum
til þátttöku ( eins til tveggja ára námskeiði, er
myndi gera þá hæfa til að veita forstöðu frystihúsum og fiskvinnslustöðvum.
Mikill skortur hefur verið á mönnum til þessara starfa, er hefðu til að bera
næ^ilega þekkingu og reynslu, en með þessu námi er væntanlega bætt ur
brynni þörf.
NÝR Bl~LL FRÁ VAUXHALL: Bifreiðaeign landsmanna eykst með
hverjum deginum sem liður, og stöð-
ugt bætast á markaðinn nýjar tegundir bifreiða. Ein ný tegund, sem
landsmenn eiga áreiðanlega eftir að sjá á vegum landsins er Vaux-
hall Viva frá Vauxhali verksmiðjunum ensku. Bill þessi er 5 manna
tveggja dyra, með vélina framm (. Farangursgeymslan er mjög
stór og bíllinn allur einkar rúmgóður. Vélin er fjögurra cylindra,
og girar eru fjórir áfram allir samhraða. Fjöðrun á hverju hjóli
er sjálfstæð, sem gerir það að verkum, að búllinn er mjög stöðugur
og þægilegur 1 akstri. Nánari upplýsingar um búlinn fast hjá Vela-
deild SÍS.
KAUPFÉLAG NORÐUR-ÞINGEYINGA: A Kópaskeri var i haust slátrað^23. 879 fjár og
er það 11 af hundraði færra en á s. 1. ári.
17. 434 skrokkar af dilkakjöti biða útflutnings hjá félaginu. Um 1100 fjár er slátrað á
dag, þegar slátrun stendur yfir í fullum gangi og við slátrunina vinna að jafnaði um 90
manns. Nokkrum erfiðleikum var bundið að fá fólk til vinnu núna, en með börnum og
eldra fólki bjargaðist allt við. Á Kópaskeri er notuð svokölluð hringfláning, þ. e. skrokk-
arnir ganga frá einum fláningarmanninum til annars, og hver þeirra leysir af hendi sitt
ákveðna verk við hve rn skrokk. Vænleiki fjárins var að meðaltali einu kg. minna nuna
en í fyrra, 1 3, 2 kg. á móti 14, 2 þá. Kenna bændur um hreti þvx, sem gerði á miðju
sumri og olli því, að gróður sölnaði á heiðum uppi.
Verið er að reisa vörugeymslu fyrir kaupfélagið, sem er 45x18 metrar að
flatarmáli. Hús þetta er steypt upp á venjulegan hátt og með stálgrindarþaki.
í sumar var byggt við frystihúsið 200 tonna frystigeymslu, svo nú er hægt að
geyma um 450 tonn af kjöti og sláturmat ( húsinu. Lokið var við viðbyggingu
þessa skömmu áður en slátrun hófst, svo hún kom að fullum notum í slatur-
tiðinni.
KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA: Lítill afli hefur verið hjá snurruvoðarbátum
frá Höfn í sumar, en aftur á móti hafa humar-
veiðibátarnir tveir, sem þaðan róa, aflað vel, og hefur aflinn verið nýttur á staðnum og
skapað nokkra atvinnu.
Slátrað var hjá kaupfélaginu tæpum 14 þús. dilkum og er það færra en í fyrra,
þvi þá var 16. þús. slátrað. Dilkarnir voru vel 1 meðallagi og vænni en
haustið 1962. Uppskera kartaflna heldur misjöfn. Hjá þeim, sem notað
höfðu úðunarlyf á arfann brást uppskeran að mestu, en hjá þeim, er ekki
notuðu lyfið var þó nokkur uppskera. Garðeigendur notuðu lyf þetta í fyrra,
og urðu fyrir miður góðri reynslu af þvi þá, enda kennt um mistökum við
úðunina. f vor var svo ráðunautur fen^inn til að leiðbeina um úðunina, og
samt er slæm reynsla af lyfinu. Má buast við að menn verði ekki ginkeyptir
fyrir notkun lyfsins á næsta vori, úr þvf það hefur algjörlega eyðilagt upp-
skeruna. Rófnaræktin lagðist að mestu niður, þegar kálmaðkurinn komst
austur í Hornafjörð. Þó hafa þeir, sem sáð hafa til rófna, fengið dagoða upp-
skeru með þvi að eitra fyrir kálmaðkinn illræmda.