Samvinnan - 01.11.1963, Síða 36
Verzlunarhús það, sem hefur verið í byggingu hjá Kaupfélaginu,
verður tekið 1 notkun að nokkru leyti núna um miðjan nóvember.
í>á verður opnuð 1 húsinú matvörudeild, en í apríl-maí’ á næsta
ári, er jjert ráð fyrir að hægt verði að opna vefnaðarvörudeildina
í hinu nyja húsi. Skrifstofum félagsins er hins vegar ekki ætlað
pláss 1 þeim hluta hins nýja húss, sem upp er risinn, heldur er gert
ráð fyrir sérstakri viðbyggingu við það, sem hýsa á skrifstofurnar.
DRÁTTARVÉLAR GEFA ÚT LEIÐARVfSI: Dráttarvélar h. f. , sem hafa umboð fyrir
hina þekktu og margreyndu Massey-Fergu-
son dráttarvélar hafa nú gefið út þarfan og góðan prentaðan leiðarvísi um notkun og
við hald Massey-Ferguson dráttarvélanna. í bæklingi þessum er leiðbeint um notkun
vélarinnar, sagt frá hreyflinum og öllu, sem honum við kemur, einnig er kafli um aðra
hluta dráttarvélarinnar, svo sem tengsli, drif, stýrisútbúnað, hemla og sporvídd. Þar
er auk þess að finna yfirlit um timabundið eftirlit og viðhald, hvað gera skuli eftir svo
og svo margar vinnustundir. Bæklingur þessi, sem er prentaður á góðan pappir og
með mörgum skýringarmyndum, nær yfir vélar, sem keyptar hafa verið 1960 og siðan.
Mun hann verða sendur öllum, sem keypt hafa vélar á þessu timabili.
ALLT MEÐ RAFHLÖÐUM: Fleiri og fleiri rafmagnstæki eru nú rafhlöðu-
knúin. Þannig er það með rakvélar, ferðavið-
tæki, segulbandstæki, sjónvörp og marga aðra hluti. Hin öra útbreiðsla
ferðaviðtækja hefur gert það að verkum, að markaður fyrir rafhlöður hefur
stóraukizt. Heimsins elzta rafhlöðuverksmiðja og sú stærsta ( Evrópu
"Hellesens" í Kaupmannahöfn gerir ráð fyrir, að ekki liði á löngu, þar til
hver einasta fjölskylda hefur að minnsta kosti þrjú "transistortæki" á
heimilinu. Eitt stórt, annað minna fyrir börnin, og hið þriðja, sem hægt
er að fara með út 1 garðinn og 1 skemmtiferðir. Þa er og hugsanlegt, að
fjórða tækið sé 1 fjölskyldubilnum.
Fleiri og fleiri "transistorferðaviðtæki" munu verða notuð 1 framtíðinni,
og þessi aukning mun svo að spálfsögðu auka markaðinn fyrir rafhlöður.
Hellesens fyrirtækið hefur, siðan það var stofnað af þeim, er fann upp
þurru rafhlöðuna, Wilhelm Hellesen, 1887 stöðugt verið að auka framleiðslu
sina sem nú er yfir 100 milljónir rafhlaða á ári.
í dag framleiða Hellesens verksmiðjurnar 138 mismunandi gerðir af raf-
hlöðum, frá 1, 5 volti og allt upp ( 300 volt, sem vega frá einu og hálfu grammi
upp í 10 kg. Nýjasta gerðin notuð í "transistorviðtæki" er hin svokallaða
Stálrafhlaða, sem umlukt er þunnri stálplötu og tryggir notandanum og tæki
hans góða endingu.